Sameiningin - 01.04.1942, Blaðsíða 18
64
V orsálmur
Lag: Ó þá náð að eiga Jesúm.
Hingað Guðs að helgidómi
hringja klukkur oss í dag.
Alt með friðar feginsrómi
flytur himneskt morgunlag.
Vorsins kveðju vil eg hlýða,
vorið blessað komið er.
Vorsins tign og veðurblíða
vefur alt í faðmi sér.
Drottinn er í dag að senda
dýrð og fögnuð sinn til þín.
Hann er enn að biðja og benda
börnum jarðar heim til sín.
Út hann breiðir arma sína
öllum mót, sem ljósið þrá,
ársól þar má eilíf skína
yfir löndin fagurblá.
Vorsins andi frjáls og fagur
fer með gleðisöng um jörð,
meðan sól og dýrðardagur
dregur bros á land og fjörð.
Himintærar leika lindir
ljóð, sem vorið helgar sér.
Leggur þessar ljóssins myndir
lífsins Guð að hjarta sér.
Árni Sigurðsson.
LEIÐRÉTTING
I æfiminningu séra H. B. Thorgrimsen’s eftir séra K. K.
Ólafson féll úr lína og önnur kom í staðinn, í síðasta tölu-
blaði Sam. Við þetta ruglaðist lesmálið á bls. 34 að mun.
Málsgreinin, sem um er að ræða á að hljóða þannig:
“Ekki heldur var þetta af ræktarleysi við ættjörðina, því
til dauðadags bar hann fasta trygð til íslands, Það var
heilbrigð útþrá, sem forsjónin hér notaði f sína þjónustu
til heilla þeim yfirleitt er af henni voru leiddir og ættjörð-
inni einnig þó bíða þyrfti þess að árin og atburðirnir leiddu
hvorutveggja í Ijós.”