Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1942, Síða 18

Sameiningin - 01.04.1942, Síða 18
64 V orsálmur Lag: Ó þá náð að eiga Jesúm. Hingað Guðs að helgidómi hringja klukkur oss í dag. Alt með friðar feginsrómi flytur himneskt morgunlag. Vorsins kveðju vil eg hlýða, vorið blessað komið er. Vorsins tign og veðurblíða vefur alt í faðmi sér. Drottinn er í dag að senda dýrð og fögnuð sinn til þín. Hann er enn að biðja og benda börnum jarðar heim til sín. Út hann breiðir arma sína öllum mót, sem ljósið þrá, ársól þar má eilíf skína yfir löndin fagurblá. Vorsins andi frjáls og fagur fer með gleðisöng um jörð, meðan sól og dýrðardagur dregur bros á land og fjörð. Himintærar leika lindir ljóð, sem vorið helgar sér. Leggur þessar ljóssins myndir lífsins Guð að hjarta sér. Árni Sigurðsson. LEIÐRÉTTING I æfiminningu séra H. B. Thorgrimsen’s eftir séra K. K. Ólafson féll úr lína og önnur kom í staðinn, í síðasta tölu- blaði Sam. Við þetta ruglaðist lesmálið á bls. 34 að mun. Málsgreinin, sem um er að ræða á að hljóða þannig: “Ekki heldur var þetta af ræktarleysi við ættjörðina, því til dauðadags bar hann fasta trygð til íslands, Það var heilbrigð útþrá, sem forsjónin hér notaði f sína þjónustu til heilla þeim yfirleitt er af henni voru leiddir og ættjörð- inni einnig þó bíða þyrfti þess að árin og atburðirnir leiddu hvorutveggja í Ijós.”

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.