Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1944, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.06.1944, Blaðsíða 15
93 anda. “Það sem mótast í sál unglingsins er sem greypt í stein.” segir spekingur einn. Hver sem ekki meðtekur guðsríki eins og barn, mun alls eigi inn í það koma, segir frelsarinn. Menn vita að jarðvegur barnshjartans er afar gljúpur; því auðvelt til gróðurs. “Hvað hefi eg lært um lífði hinumegin? Eg lærði fátt, er barnið ekki veit,” segir Mattías. Það er ekki út í'hött bænin hans B. Gröndals: “Gerðu mig aftur sem áður eg var, alvaldi guð, meðan æskan mig bar.” Gefið börnunum Guðsorð í góðri útgáfu og fallegu bandi með ykkar áritun, jafnvel áður en það er lesandi. Sú getur komið tíð, að það taki ástfóstri við þessa bók, og ræki lestur hennar, eftir að það er horfið úr foreldra- húsum. Það getur ef til vill lagt bókina á hylluna, en fullar líkur eru til þess að að því komi, að það kunni að meta gjöf þessa, og færi sér hana í nyt. Fæstir af oss munu hafa borið mjög hlýjan hug eða tekið miklu ástfóstri vði Barnalærdómskverið okkar, meðan verið var að læra það, en þess veit eg dæmi, að eldra fólk metur það sem gersemi, eins og vera ber. Árangur af ástundunarsamri uppfræðslu kemur sjaldan í ljós á svipstundu; en um það verður þó ekkert sagt. Fyrir nokkru síðan fermdist unglingur, sem ólst upp á vel kristnu heimili. Piltur þessi var dulur nokkuð og hægur í dagfari, en ekkert frábrugðinn öðrum unglingum. En svo kom það fyrir, að hann varð snögglega veikur og dó innan fárra daga. Faðir hans var við dánarbeð hans; bjóst drengurinn dauða sínum með því að hafa yfir fræði kversins og það annað, sem hann' hafði lært um Guð. Með þetta veganesti lagði hann svo áleiðis til landsins ókunna. Efast eg alls ekki um það, að frelsarinn hefir kannast við mynd sína í brjósti hins unga læris,veins síns. Atburður þessi hafði áhrif, ekki aðeins á foreldra og systkini drengsins, heldur og líka á fermingarsystkini hans; ef til vill fleiri. Einhver öruggasti vegur til þess að afla unglingum kristilega drenglund er það, að með stöðugri ástundun að

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.