Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1927, Page 3

Sameiningin - 01.06.1927, Page 3
H>ametmn8ín. Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi Islendinga gefið út af Hinu ev. lút. lárkjufélagi Isl. í Vesturheimi. XLII. WINNIPEG, JÚNÍ 1927. Nr. 6 Afmœlishátíðin í Canada. Dagana 1.—3. jiílí verður hátíð haldin í Canada um land alt, til þess að minnast sextugs-aldurs fylkja-sam- bandsins. Verður það margfaldlega mesta hátíðin, sem nokkru sinni hefir haldin verið í Canada. Hátíðahöld á fimtugs-alfmælinu fórust fyrir vegna stríðsins, sem þá var í algleymingi. 1 liátíðahaldinu fyrirhugaða er ætl- ast til að allir hinir mörgu þjóðflokkar, sem til landsins liafa flutzt, taki jafnan þátt. Er þar eng’um liærra gert undir höfði en öðrum. Allir íhúar landsins minnast fagnandi þeirra undursamlegu framfara, sem átt hafa sér stað þau sextíu ár, sem liðin eru síðan canadiska þjóðfélagið var stofnað, svo að úr fáeinum aðskildum hjálendum, er orðin stór og sjálfstæð þjóð, sameinuð innan lands og sjálfráð í ötlum greinum, -sú þjóð, sem að líkindum á allra þjóða mestan viðgang- fyrir höndum á næstu áratugum, „sökum landrýmis og enn óunninna auðsuppspretta. Síðasti dagur hátíðarinnar er sunnuda gur (3. júlí). Landstjórnin hefir skorað á kristna kirkju að gangast fyrir hátíðar-guðsþjónustum þann dag um þvert og’ endilangt landið. Er það trúuðum mönnum fagnaðar- efni, að ekki verður skaparanum glejmit, né undir hö'f- uð lagst að þakka almáttugum Guði og biðja um blessun lians á þessari miklu hátíð. Svo er til ætlast, að í öllum kirkjum landsins, smáum og stórum, fari fram guðsþjón- usta á sama tíma dags (kl. 11 f.h.), og að svo miklu leyti, sem því verður við komið, verði nákvæmlega á sömu stundu sami sálmur, þar til valinn, sunginn í öllum kirkj-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.