Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1927, Síða 9

Sameiningin - 01.06.1927, Síða 9
16y Þarfasta iðjan. í “kverinu”, sem við hin eldri lærðum flest eða öll í æsku, stóð þessi g-rein: “Bænin er vor. þarfasta iðja; því að hún losar - hjatað við lieiminn, en dregur það að Guði, veitir oss styrk í veikleikanum og huggun í hörmungunum, styður trú vora og eflir elsku vora til Guðs.” Hvað sem sagt vei’Sur um “ kver-lærdóm ” og’ hvern dóm, sem menn fella nú yfir gamla kverinu okkar, þá er það víst, að liolt hefir os.s verið að setja á minnið þessa grein; og svo er þar vel sagt frá blessun bænarinnar, að þau orÖ falla aldrei úr gildi. Hér er það staðhæft skýrum orðum, að bænin sé vor þarfasta iSja, — ekkert, sem við aðhöfumst, sé jafn- nytsamlegt eins og bænin; ekkert sé okkur jafn-ómiss- andi eins og bænin; við getum lifað nærri því án alls annars, en án bænarinnar fáum við ómögulega lifað. Höfundur orða þessara í lærdómskveri barnanna færir rök fyrir þessari staðhæfing sinni og styður þau rök með orðum Krists og po.stula laans. Nytsemi bæn- arinnar er fitskýrð frá þrenskonar sjónarmiði: 1. Bænin losar Jij'artað við keiminn, en dregur það að Guði. Því meiri lífsreynslu, sem við fáum, því meir finn- um við til þess, hve það er okkur ómissandi að losa hjörtu okkar sem oftast við heiminn, .svo við getum varð- veitt þau hrein og lieit. I heiminum óhreinkast hjörtun og kólna fyrir daglega umgengni við böl og syndir. Yerðum við því öll að eiga okkur þann helgidóm, þar sem við fáum laugað hjörtu okkar og vermt þau. Sá helgi- dómur er bænin, því “hún dregur oss að Guði”. Guðleg áhrfin bæði helga hjörtu okkar og verma þau. Án þeirra áhrifa fáum við ekki lifað góðu og réttlátu lífi. 1 þessum helgidómi þurfum við sem oftast að vera einir hjá Guði, þar sem ekkert glepur huga okkar. Einhverja slíka bænastund ætti hver kristinn maður að eiga á hverjum einasta degi. Sfi stund ætti aÖ vera honum jafn-ómiss-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.