Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1927, Page 26

Sameiningin - 01.06.1927, Page 26
i84 lokum komiÖ nieÖ honum til Róm og veriÖ þar, er hörmungarnar gengu yfir. ÁriÖ 64 kveikti Neró keisari í borginni og kendi síð- an um kristnum mönnum þar. Ægileg ofsókn hefst á hendur þeirn og foringjarnir láta líf sitt. Hföfuð Páls fellur fyrir böðuls- öxi Nerós og Pétur deyr sama dauða og Drottinn hans. Margir skírast blóðskírn Jesú og drekka kvalabikar hans. Postular Jesú eru að hverfa af jörðunni, og þeim fækkar óðum, sem þektu hann persónulega. Þetta verður Markúsi köllun til að skrifa guðspjall sitt um hann. Minninga-arfurinn verður að geymast áfram kris'tnum mönnum til styrktar og huggunar í eldraununum. Hann verður að bæta þeim skilnaðinn við þá, sem burt eru farnir, og hjálpa þeirn til þess, að varðveita rnynd Jesú lifandi hjá sér. Mar- kús vill gefa þeim bestu gjöfina, sem hann hafði þegið, aleiguna, og svala við það hjarta sínu, sem enn titrar eftir ofsóknirnar. Þannig verður Markúsarguðspjall til. Tvær meginkvíslar falla þar sam- an og marka sér farveg, straumur minninganna frá Pétri og Öðr- um fyrstu lærisveinum Jesú um líf hans á jörðinni, og kraftur og reynsla þess manns, er lifði á andlegan hátt nánustum samvistum við Jesú upprisinn. Það er alt orðið Markúsi sjálfum líf, sem hann skrifar. VIII. Elzta heimild um Markúsarguðspjall eru orð Papíasar bisk- ups í Plíerapólis frá miðri annari öld, og skírskotar hann aftur til háaldraðs manns, sem hann hefir þekt í æsku, Jóhannesar safnað- aröldungs í Efesus, höfundar guðspjallsins og fleiri rita Nýja testamentisins. Þau eru á þá leið, að Markús, túlkur Péturs, hafi ritað upp miningar hans um Jesú, en þó eklci í réttri röð, heldur sem líkast því, sem Pétur kendi; hafi Markús ekki skrifað upp eftir Pétri, heldur eftir minni. Guðspjallið sjálft staðfestir þetta. Það er sízt samfeld æfisaga Jesú, heldur er brugðið upp myndum hverri af annari til þess að lýsa honum og starfi hans hér á jörðu. Og þær eru svo skýrar margar og lifandi, að það dylst ekki, að sjónarvottur s'egir frá. Víða kemur jafnvel berlega fram orðalag Péturs. Frá síðustu dvöl Jesú í Jerúsalem er sagt lang-nákvæm- legast, enda styðst Markús þar einnig við minningar sjálfs sín og .annara borgarbúa. Fullur þriðjungur guðspjallsins er um hana, og má fylgjaast með því, er gerist, dag frá degi og sumstaðar meira að segja stund eftir stund. Markús veit, að þar er þunga- miðja kenningarinnar: dvöl Jesú, dauði og upprisa samkvæmt ráðsályktun Guðs. Jesús er ekki Messías þrátt fyrir pínu sína, heldur einmitt vegna hennar. “Mannssonurinn er ekki kominn

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.