Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.03.2011, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 21.03.2011, Qupperneq 4
21. mars 2011 MÁNUDAGUR4 SAMGÖNGUR Reykjavíkurborg hefur eytt um 1,2 milljörðum króna í snjómokstur og aðra vetrartengda þjónustu á árunum 2008 til 2010. Veturinn 2008 kostaði þjónustan borgina um 500 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var óvenjumikill snjór það árið og var hann víða til trafala við samgöngur. Útgjöld við mokstur og annað því tengdu hafa verið minnkuð um helming síðan árið 2008. Heildarkostnaður við þjónustuna síðasta vetur var 280 milljónir og 375 milljónir veturinn 2009. Það sem af er vetrinum í ár, hefur borgin eytt tæpum 130 milljónum í mokstur og er talið ólík- legt að sú tala muni hækka mikið úr þessu. Er þetta fjórðungur af þeim kostnaði sem borgin varði í þjónustuna árið 2008. Guðbjartur Sigfússon, yfirverkfræðingur hjá Reykjavíkurborg, segir að þrátt fyrir mikla skerðingu í fjárveitingum til moksturs þá hafi það ekki bitnað mikið á þjónustu við borgarbúa. „Það hefur ekki borið mikið á kvörtunum. Við reynum að sinna þessu eftir því sem þörf er á,“ segir Guðbjartur. „Svo er það ekki fjárveitingin sem ræður alltaf, heldur er það veðráttan sem skiptir öllu máli.“ Akureyrarbær eyddi 65 milljónum króna í snjómokstur árið 2008. Heildarkostnaður við mokstur í bænum síðustu fjóra vetur hefur kostað 252 milljónir króna. Mokstur í desember einum í fyrra kostaði um 20 milljónir. Kostnaður Akureyrarbæjar við snjómokstur hefur verið frá 52 milljónum og upp í 72 millj- ónir hvert ár frá vetrinum árið 2007, en mestu var eytt í fyrra sé miðað við síðustu ár. Ástæðan fyrir auknum kostnaði er sögð einföld: Veðurfar. „Það var bara miklu meiri snjór,“ segir Helgi Már Pálsson, bæjartæknifræðingur hjá Akur- eyrarbæ. „Ég held að hér sé mjög vel mokað og er nokkuð viss um að þjónustustigið sé nokk- uð hátt. En það eru auðvitað meira en 17 þús- und aðrir sérfræðingar í bænum sem eru allir ósammála mér.“ Samkvæmt Veðurstofunni voru 9 alhvítir dagar á Akureyri síðasta vetur. sunna@frettabladid.is DANMÖRK 72 prósent danskra ung- lingspilta og 3,6 prósent danskra unglingsstúlkna horfa á klámefni á netinu, í sjónvarpi eða í blöðum tvisvar sinnum í viku eða oftar og falla því undir skilgreiningu fræðimanna á stórnotendum á klámi. Danskir unglingar nota klám í mun meiri mæli en jafnaldrar á hinum Norðurlöndunum, sam- kvæmt könnunum. Samsvarandi hlutfall í Svíþjóð er 37 prósent hjá drengjum en 1,5 prósent hjá stúlkum. Í samtali við Politiken segir sagn- og kynjafræðingurinn Anette Dina Sørensen að menn- ing Dana sé mun umburðarlynd- ari gagnvart klámi en menning annarra Norðurlandaþjóða. - pg Danir umburðarlyndir: Nota klámefni í stórum stíl DÓMSMÁL Tæplega fertugur maður hefur verið dæmdur í sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á sambýliskonu sína í ágúst síðastliðnum. Konan hafði komið heim frá móður sinni með mat á postulíns- diski. Maðurinn var þá dauða- drukkinn og þegar hún freist- aði þess að fá hann til að fara að sofa brást hann hinn versti við, þreif postulínsdiskinn og kastaði honum í andlit konunnar. Diskur- inn brotnaði við höggið. Konan hlaut sjö sentimetra gapandi skurð á augabrún og smærri skurði á vörum. Maðurinn, sem á nokkurn brotaferil að baki, var sakfelld- ur gegn neitun sinni. Hann þarf jafnframt að greiða konunni 400 þúsund krónur í bætur. - sh Dæmdur í hálfs árs fangelsi: Kastaði postu- línsdiski í konu ÞÝSKALAND, AP Knútur, ísbjörninn góðkunni, drapst í dýragarðinum í Berlín um helgina. Fjöldi aðdáenda Knúts flykktust að hliði dýra- garðsins í gær og lögðu þar niður blóm og kransa til að minnast hans. Talið er að ísbjörninn hafi fengið einhvers- konar flogakast eftir að hafa legið í sólinni á laugardag. Hann datt í laugina í búri sínu í kjölfarið og drukknaði þar, fyrir framan augu mörg hundruð áhorfenda. Einn áhorf- endanna, Eveline Litowski, sagði í samtali við þýska fjölmiðla að Knútur hefði verið afar ánægður að sjá og ekki sýnt nein merki þess að hann væri að veikjast. Svo hafi hann allt í einu kippst við eins og í flogakasti og dottið niður í laugina. Hræ Knúts var dregið upp úr lauginni í gær. Sérfræðingar munu kryfja það í dag til þess að komast að dánarorsök, en starfsmenn dýragarðsins telja víst að dauða hans hafi ekki borið að með eðlilegum hætti. Öll heimsbyggðin fylgdist með þegar mynd- ir af nýfæddum ísbjarnarhúni, sem hafði verið afneitað af móður sinni, birtust í fjöl- miðlum árið 2007. Knútur varð umsvifalaust eitt vinsælasta dýr heims og stjarna dýra- garðsins í Berlín. Hann varð þó einungis fjög- urra ára gamall, en meðal ævilengd ísbjarna er á milli 15 til 20 ár. - sv Knútur, vinsælasti ísbjörn heims, drapst í dýragarðinum í Berlín um helgina, fjögurra ára að aldri: Talinn hafa drukknað eftir flogakast THOMAS DÖRFLEIN OG KNÚTUR Dörflein tók Knút að sér eftir að móðir Knúts afneitaði honum. Hann lést úr hjartaáfalli árið 2008, 44 ára að aldri. NORDICPHOTOS/AP VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 13° 12° 11° 14° 12° 8° 8° 20° 15° 17° 11° 27° 2° 14° 14° 6°Á MORGUN 10-15 m/s V-til, annars hægari. MIÐVIKUDAGUR Fremur hægur vindur um allt land. 3 0 -1 0 -1 1 -1 4 3 5 -4 9 11 3 9 6 5 5 10 4 10 9 1 -4 -3 -1 0 2 -5 -4 -5 0 ÁFRAM SVALT Í dag og næstu daga verða suðvest- lægar og vestlægar áttir ríkjandi. Búast má við éljagangi, einkum vestan til á landinu en á mið- vikudaginn léttir heldur til suðvest- anlands er líður á daginn. SA- og A-til mun eitthvað sjást til sólar. Enn er því bið eftir vorinu. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður Helmingi minna fé eytt í snjómokstur í Reykjavík Reykjavíkurborg eyddi 500 milljónum króna í snjómokstur árið 2008. Kostnaður fór niður í 280 milljónir 2010. Akureyri hefur aukið fjármagn í mokstur á milli ára. Reykjavík dregur saman um 100 milljónir á ári. MOKSTUR Í GRAFARVOGI Mokstursþjónusta hefur dregist saman um helming í Reykjavík á síðustu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Veturinn 2007 Snjór var meiri suðvestanlands en verið hefur í nokkur ár. Þrálát snjóflóðahætta og mjög úrkomusamt. Metúrkoma víða sunnanlands. Veturinn 2008 Snjór var til trafala við sam- göngur og illviðri voru tíð. Snjór var meiri sunnanlands en algengt hefur verið síðustu árin. Óvenjumikið snjóaði í Vest- mannaeyjum. Veturinn 2009 Úrkoma vetrarins var í ríflegu meðallagi, um 12 prósent umfram meðallag í Reykjavík, en um 20 prósent á Akureyri. Desember var úrkomusamastur í Reykjavík, en janúar á Akureyri. Veturinn 2010 Mjög snjólétt var sunnan lands og jörð var alhvít í Reykjavík aðeins 5 daga. Alhvítu dagarnir á Akureyri voru 9 og er það 3 dögum minna að meðaltali síðustu 10 árin. Heimild: Veðurstofa Íslands - www.vedur.is Úttekt Veðurstofunnar á veðurfari síðustu vetra GENGIÐ 18.03.2011 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 215,7971 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,42 114,96 184,25 185,15 161,17 162,07 21,609 21,735 20,355 20,475 17,925 18,031 1,4034 1,4116 181,05 182,13 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR fyrir 12 mánaða og eldrihipp.is Við lífrænt

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.