Fréttablaðið - 21.03.2011, Side 12

Fréttablaðið - 21.03.2011, Side 12
12 21. mars 2011 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 A tvinnuleysið er eitt brýnasta úrlausnarefni Íslendinga. Það er meira en verið hefur áratugum saman. Þúsundir manna hafa nú verið án atvinnu lengur en ár, sem hefur sömuleiðis verið óþekkt staða um langt árabil. Ný störf verða ekki til í opinbera geiranum, þar sem skatttekjurnar hrökkva ekki fyrir útgjöldum og verið er að skera niður. Atvinna verður til í öflugum einkafyrirtækjum sem hafa skilyrði til að ráðast í ný verkefni, fjárfesta og bæta við sig fólki. Alltof hægt hefur gengið að skapa þessi skilyrði hér á landi eftir bankahrunið. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var harðorður í gagnrýni sinni hér í blaðinu á laugardaginn þar sem hann orðaði það svo að atvinnu- lífinu væri að blæða út. Fjárfest- ingar væru alltof litlar og fyrirtækin ekki að endurnýja sig. Þetta hefði í för með sér tekjutap ríkissjóðs vegna minni umsvifa, sem gæti leitt af sér enn nýjan niðurskurð og skattahækkanir. Vilhjálmur benti á að framkvæmdir við álver Norðuráls í Helgu- vík og tilheyrandi orkuframkvæmdir myndu skipta sköpum við að koma atvinnusköpun aftur í gang. „Þegar menn eru á móti þessu verkefni eru þeir um leið að boða skattahækkanir upp á tólf til fimmtán milljarða. Ef Helguvík væri komin á fullt myndi það skipta ríkissjóð máli upp á allt að milljarði á mánuði,“ sagði Vilhjálmur. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra tók gagnrýni Vilhjálms óstinnt upp í fréttum Stöðvar 2 og sagði ekkert standa upp á stjórn- völd í Helguvíkurmálinu. Fjárfestingarsamningi hefði verið lokið og pólitískur vilji væri „beggja vegna borðsins“ í ríkisstjórninni að klára málið. Það væru eingöngu deilur Norðuráls og HS orku sem stæðu í vegi fyrir verkefninu. Málið er þó engan veginn eins einfalt og Katrín vill vera láta. Fyrir helgi gagnrýndu bæjarstjórar Reykjanesbæjar og Garðsins að Helguvík væri ekki að finna á lista Jóhönnu Sigurðardóttur for- sætisráðherra yfir verkefni, sem skapa myndu ný störf á næstunni. Þeir töldu upp ýmis mál, sem hefðu tafið fyrir framkvæmdinni. Þar á meðal væri töf á rammaáætlun um orkunýtingu umfram það sem eðlilegt gæti talizt, hótanir um eignarnám á HS orku, tregða Orku- stofnunar til að heimila stækkun Reykjanesvirkjunar, þvert á álit sérfræðinga og ólögmætar aðgerðir umhverfisráðherra, sem tafið hefðu fyrir framgangi leyfisveitinga til virkjana í Þjórsá. Við þetta má bæta ýmsum yfirlýsingum ráðherra Vinstri grænna, sem benda til að yfirlýsing iðnaðarráðherrans um pólitískan vilja í báðum stjórnarflokkum til að ljúka málinu sé orðum aukin. Álver í Helguvík er það tækifæri til atvinnusköpunar sem liggur beinast við. Það myndi skapa allt að tíu þúsund störf á framkvæmda- tímanum og allt að tvö þúsund til frambúðar, að afleiddum störfum meðtöldum – á því svæði þar sem atvinnuleysið er mest. Alþjóð- legt fyrirtæki, sem Íslendingar hafa góða reynslu af, er tilbúið með tugi milljarða króna til að leggja í verkefnið. Dræmur áhugi í stjórnarliðinu á að það nái fram að ganga bendir til að stjórnin sé líka hálfvolg í því verkefni að vinna bug á atvinnuleysinu. Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN HALLDÓR Evrópa er fjölmenningarsamfélag. Í öllum ríkjum álfunnar, þar með talið á Íslandi, eru fjölmennir hópar innflytjenda sem fóstra menningu uppruna- landsins og aðlagast smátt og smátt menningu heimalandsins. Hugmyndir um að ólíkir menn- ingarheimar renni áreynslulaust saman á tveimur til þremur kyn- slóðum hafa reyndar ekki gengið upp. Þriðja kynslóð innflytjenda hefur ekki tileinkað sér mál og menningu upptökulandsins í nægilegum mæli og heimalöndin hafa ekki opnað faðminn nógu vel. Gettó hafa orðið til, einkum meðal ungra múslima. Þjóðamósaík Evrópu er marg- brotin og flókin. Hefðbundin landamæri draga nokkur mörk milli þjóða en eru alls ekki afmarkandi. Tyrkir lifa í Þýska- landi, Serbar í Montenegro, Ung- verjar í Búlgaríu og áfram í það óendanlega. Hugtakið ein menn- ing – eitt ríki á ekki við. Fjölmenning er staðreynd þó að menn deili um tungumál, blæjur, búrkur og krossa. Þó að sumum þyki óþægilegt að fólkið allt um kring sé ekki allt eins á litinn eða játi ekki allt sömu trúna og tali ekki allt eins „þróað“ mál og afi og amma þá eru þeir fleiri sem njóta fjölbreytninnar og aðkomnir hafa á öllum tímum í sérhverju ríki auðgað menningu þess lands sem hefur tekið þá upp á arma sína. Í dag 21. mars er einmitt alþjóðlegur baráttudagur gegn kynþáttafordómum og um leið gegn kynþáttamisrétti. Alls- herjarþing Sameinuðu þjóðanna valdi þessa dagsetningu í minn- ingu 69 mótmælenda sem myrtir voru 21. mars 1960 er þeir tóku þátt í friðsamlegum mótmælum gegn aðskilnaðarstefnu stjórn- valda í Suður-Afríku. Í tilefni dagsins boðar þjóð- málanefnd Þjóðkirkjunnar til hádegismálþings í safnaðarheim- ili Neskirkju. Þar munu Tos- hiki Toma og undirritaður ræða um kynþáttafordóma og íslenskt samfélag og Magnús Erlingsson og Svavar Stefánsson segja frá því hvernig kirkjan nálgast innflytjendur. Allir eru velkomnir. Málþingið hefst kl. 12.00. Mósaík þjóðanna Kynþátta- fordómar Baldur Kristjánsson formaður þjóðmálanefndar Þjóðkirkjunnar, sérfræðingur í ECRI Í dag 21. mars er einmitt alþjóðlegur baráttudagur gegn kyn- þáttafor- dómum og um leið gegn kynþáttamis- rétti. Frummælendur Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar Loftslagsbreytingar og aðildarríkið Ísland Hádegisfundur Evrópuvaktar Samfylkingarinnar á Kaffi Sólon þriðjudaginn 22. mars kl. 12–13. xs.isAllir velkomnir Vill ríkisstjórnin vinna bug á atvinnuleysinu? Hvað með Helguvík? Sjálfstæðismenn á móti Viðskiptablaðið birti á fimmtudag skoðanakönnun um stuðning við Icesave-samkomulagið sem kosið verður um 9. apríl. Athygli vakti að 59,1 prósent Sjálfstæðismanna voru mótfallin samkomulaginu. Þann 25. janúar birti Fréttablaðið könnun um sama mál en hún var gerð áður en forysta Sjálfstæðis- flokksins tilkynnti að hún hygðist styðja sam- komulagið. Þá sögðust 52,7 prósent Sjálfstæðis- manna vilja hafna samkomulaginu. Fylgja ekki forystunni Búist var við því að stuðningur við samkomulagið myndi aukast meðal Sjálfstæðismanna í kjölfar ákvörð- unar forystunnar. Ef marka má þessu nýju könnun hefur það hins vegar ekki gerst, þvert á móti hefur stuðningur minnkað. For- ysta flokksins hefur að vísu ekki beitt sér að ráði gegn samkomulaginu en engu að síður virðist ljóst að meirihluti Sjálfstæðis- manna treystir ekki forystunni í þessu máli. Hægri kratar ókyrrast Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu og varaþingmaður Samfylkingarinnar, lýsti því yfir í Silfri Egils í gær að hún teldi farsælast að Sjálfstæðis- flokkur og Samfylking mynduðu nýja ríkisstjórn. Er þessi yfirlýsing í takt við þverrandi þolinmæði hægri krata í Samfylkingunni á núverandi ríkisstjórn ekki síst í kjölfar yfir- lýsinga þingmanna um ofurskatta á ofurlaun og áframhaldandi hiks stjórnarinnar í atvinnumálum. Finnst mörgum hægri krötum erfitt að styðja ríkisstjórnina því hún starfi of langt til vinstri. magnusl@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.