Fréttablaðið - 21.03.2011, Side 10

Fréttablaðið - 21.03.2011, Side 10
21. mars 2011 MÁNUDAGUR10 Ég veit ekki hvort þú skil-ur ástandið og ég held að þú skiljir ekki alveg hvað er að vera atvinnulaus. Gerir þú þér grein fyrir því að sá atvinnulausi getur verið með börn á heimili, hann getur ekki greitt af húsnæðislánum sínum eða leigu, börnin fá ekki nema það allra lífsnauðsynlegasta. Móðir eða faðir lifir í ótta, kvíða og þunglyndi. Þetta smitast niður í börnin, þeim líður illa í skól- anum [...] Börnin koma heim úr skólanum og vonast til að foreldr- ar sínir verði hressari. Það tekur á að vera atvinnulaus og það eru margir hlutir sem geta misfar- ist og alltaf bitnar þetta á börn- unum,“ skrifar ónefndur bloggari. Viðurkennd sannindi Börn, ungar barnafjölskyldur og einstæðir foreldrar eru að margra mati þeir hópar sem standa verst í kreppu og langvar- andi atvinnuleysi. Um tveggja ára skeið hafa fimmtán til sautj- án þúsund manns verið á atvinnu- leysisskrá og um helmingur þess hóps með börn á sínu framfæri. Á heimilum þeirra eru tíu til ellefu þúsund börn. Af þeim hópi hafa á bilinu 450 til 600 börn átt báða foreldra án vinnu. Það er viðurkennd staðreynd að bernskan er mikilvægasta mót- unarskeið ævinnar og viðeigandi viðbrögð á erfiðum tímum geta skipt sköpum fyrir framtíð barns. Á sama tíma er það einnig viður- kennd að staðreynd atvinnuleysi eykur álag á fjölskylduna og getur leitt til skilnaða, heimilisofbeldis og vanrækslu barna. Börn á Íslandi eru um áttatíu þúsund alls og því eiga um fjórtán prósent barna atvinnulaust for- eldri. Þau sem eiga báða foreldra atvinnulausa eru á um 350 heimil- um þannig að í nálega fimmtungi tilvika er um systkini að ræða, segja ársgamlar tölur Vinnumála- stofnunar. Á þeim tímapunkti áttu 22 prósent barna á Suðurnesjum atvinnulaust foreldri, en þar er staðan verst. Heilsu og vellíðan ógnað „Viðvarandi atvinnuleysi er alvar- legt áhyggjuefni þeirra sem láta sig varða velferð barna og fjöl- skyldna þeirra. Rannsóknir hafa sýnt að atvinnuleysi hefur ekki aðeins neikvæð áhrif á fjárhag fjölskyldunnar heldur einnig á félagslega, andlega og líkamlega heilsu og vellíðan fjölskyldunnar,“ segir Elísabet Karlsdóttir, verk- efnisstjóri við Rannsóknastofnun í barna og fjölskylduvernd (RBF). „Foreldri sem missir vinnuna missir ákveðna stjórn á eigin lífi, erfiðara verður að standa við fjár- hagsskuldbindingar og uppfylla þarfir barna og maka, þetta veld- ur streitu og vanlíðan. Verri fjár- hagsstaða fjölskyldunnar dregur úr möguleikum til þátttöku í sam- félaginu til jafns við aðra. Þetta gerir fjölskylduna viðkvæmari fyrir erfiðleikum og hefur áhrif á samskiptin og samstöðu innan fjölskyldunnar.“ Vítahringur Fram hefur komið í rannsóknum Sigrúnar Júlíusdóttur, prófessors við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, að einstæðir foreldar eiga í vaxandi erfiðleikum við að sjá sér og börnum sínum far- borða. Atvinnuleysi þeirra sjálfra eða ungmennis á heimilinu sem hvorki sækir nám eða vinnu, getur orðið upphaf að vítahring vonleysis og félagslegrar einangr- unar. Vaxandi fjöldi ungs fólk sem býr í foreldrahúsum, hefur flosnað upp úr skóla og glímir við atvinnuleysi, er líklega eitt brýnasta úrlausnarefnið í dag, að hennar mati. Kerfið Velferðarvaktin, stýrihópur á vegum velferðarráðuneytisins, sendi frá sér vinnuskýrslu í mars 2009 þar sem segir að mikilvægt sé að allir sem vinna að málefn- um barna, einkum félagsmálum, menntamálum og heilbrigðismál- um, vinni náið saman. Eigi það sérstaklega við um ráðuneyti og stofnanir á vegum ríkis og sveit- arfélaga. En hefur þessu tak- marki verið náð? Það er mat viðmælenda Frétta- blaðsins að samvinnu og samstarf í velferðarþjónustu megi bæta og gera markvissara og það sé nauð- synlegt að svo verði til að ná meiri árangri fyrir skjólstæðinga og samfélagið. Svo virðist sem minni hefð sé fyrir samstarfi á höfuð- borgarsvæðinu, þar sem vandinn er mestur, en á landsbyggðinni. Á þetta benti Halldór S. Guðmunds- son, lektor við félagsráðgjafar- deild Háskóla Íslands, í fyrsta hluta þessarar fréttaskýringar. Velferðarþjónustan hér á landi hefur byggst upp á tiltölulega skömmum tíma. Margar stofnan- ir eru að gera góða hluti með upp- byggilegum aðferðum til hagsbóta við fólk sem glímir við atvinnu- leysi. Hin síðari ár hefur verið aukin áhersla á samstarf í vel- ferðarþjónustunni og hún sam- þætt á einu stjórnsýslustigi. Má þar nefna nýlega breytingu ráðu- neyta í Velferðarráðuneyti, yfir- færslu málefna fatlaðra til sveit- arfélaga, samþættingu félags- og skólaþjónustu sveitarfélaga í fjöl- skylduskrifstofur og þjónustumið- stöð Reykjavíkurborgar. Þá verð- ur að nefna verkefni eins og Ungt fólk til athafna sem skapað hefur samstarfsvettvang fyrir stofnanir og sjálfboðaliðasamtök. Í þeim efnahagserfiðleikum og atvinnuleysi sem nú gengur yfir verða sífellt fleiri að reiða sig á aðstoð og ráðgjöf einhverra þátta velferðarþjónustunnar og meira áberandi verður þörfin fyrir sam- starf stofnana. Samhliða er aukið álag vegna síendurtekinnar kröfu um hagræðingu eða niðurskurð. Þessi staða kallar fram ólíka hagsmuni sem stjórnendur vel- ferðarþjónustunnar þurfa að tak- ast á við og er engum til hagsbóta. Það má ekki gleymast hversu ólík staða atvinnulausra er og að úrræði sem þeim bjóðast geta verið mismunandi eftir því í hvaða kerfi þeir sækja sína þjón- ustu. Þetta á ekki síst við um barnafjölskyldur. Skólarnir Margrét María Jóhannsdóttir, umboðsmaður barna, segir fá erindi hafa borist sér þar sem atvinnuleysi er tilgreind ástæða skrifa fólks. Hún bendir á að afleiðingar kreppunnar á börn og barnafjölskyldur komi ekki fram strax og erfitt sé að meta þær og mæla. „Það virðist vera að þorra barna líði vel. En það er ákveð- inn hópur sem virðist vera í verri málum en þekkst hefur lengi.“ Petrína Ásgeirsdóttir, fram- FRÉTTASKÝRING: Atvinnuleysi á Íslandi 5. hluti 11.000 11.000 börn eru á heim ilum atvinnulausra 7.000 7.000 á atvinnuleysisskrá eiga börn 8,6% atvinnuleysi 487börn eiga báða foreldra atvinnulausa Vakandi samfélag er lykillinn Þeir hópar sem taldir eru berskjaldaðri en aðrir fyrir kreppu og atvinnuleysi eru börn, ungar barnafjölskyldur og einstæðir foreldrar. Þeir sem gerst þekkja telja vandamál vegna atvinnuleysis vera að koma fram fyrst núna og séu meiri en þekkst hefur lengi. Ráðgjöf utan seilingar Elísabet Karlsdóttir, verkefnisstjóri við Rannsóknastofnun í barna og fjöl- skylduvernd, segir að langvarandi atvinnuleysi hafi ekki bara slæm áhrif á fjárhagsstöðu fjölskyldunnar heldur einnig félagsstöðu og heilsufar foreldra og það bitnar á börnum. „Mikilvægt er að gott aðgengi sé að ráðgjöf fyrir fjölskyldur og einstaklinga á þessum tíma. Félagsráðgjafar, og aðrir fjöl- skylduráðgjafar með sérþekkingu á þessum málum, veita aðallega hjóna- og fjölskylduráðgjöf á einkastofum. Hún er oft of dýr fyrir barnafjölskyldur ekki síst einstæða foreldra. Fjölskyldur innflytjenda og flóttafólks eiga einnig undir högg að sækja við harðnandi samfélagsaðstæður.“ Elísabet segir mikilvægt að hafa í huga hvernig hægt sé að draga sem mest úr áhrifum atvinnuleysis á börn og ungmenni. Eitt af því er að tryggja yngri börnum rétt til skólamáltíða og tómstundastarfs til jafns við börn efna- meiri foreldra. Miklu skipti að mæta þörfum fjölskyldna í þessum aðstæðum með skipulegum aðgerðum stjórnvalda, meðal annars með markvissum stuðningi en einnig starfsráðgjöf, starfsþjálfun og starfsmiðlun. Eigi slíkar aðgerðir að skila sem mestum árangri þarf að tengja þær fjölskyldusamráði og samræmdu átaki þeirra þjónustukerfa sem í hlut eiga. Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Fimmti hluti af níu Næsta grein: Vandi einstaklingsins Myndin tengist efni greinar ekki á neinn hátt. FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúk- linga og annarra skyldra sjúkdóma heldur fræðslufund fimmtudaginn 24. mars nk. Fundurinn sem hefst kl. 20.00 verður haldinn á hjúkrunarheimilinu Eir, Híðarhúsum 7, 112 Reykjavik Dagskrá: • Formaður FAAS Fanney Proppé Eiríksdóttir setur fundinn • Kynning á hjúkrunarheimilinu Eir • Hilmar Pétur Sigurðsson kynnir lokaverkeni sitt frá sálfræðideild HÍ: „Þekking almennings á Alzheimerssjúkdómnum“: útdráttur úr BS-ritgerð. • Fyrirspurnir og umræður Félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta. Kaffiveitingar verða í boði hjúkrunarheimilisins Eir Bestu kveðjur Stjórn FAAS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.