Fréttablaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 29
FASTEIGNIR.IS21. MARS 2011 11
F
élög fasteignasala á Norðurlöndum hófu
nýverið sameiginlega vinnu við að kanna
ýmsa þætti er varða fasteignamarkaðinn á
Norðurlöndum. Kannanir eru gerðar meðal
fasteignasala í hverju landi og sömu spurningar settar
fram. Eitt af því sem spurt var um var hvað það væri
sem helst hefði áhrif á fasteignamarkaðinn í dag en
hægt var að nefna þrettán atriði. Það voru þrír þættir
sem yfirgnæfandi meirihluti íslenskra fasteignasala
var sammála um að hefðu helst áhrif en 77% töldu að
bankarnir væru strangari varðandi útlán, 77% nefndu
stöðuna á vinnumarkaði og 73% nefndu óvissuna, þ.e.
að það að bíða og sjá til hvað verður réði miklu. Það
sem talið var hafa minnst áhrif á fasteignamarkaðinn
var veðurfar en 11% nefndu það og næst minnst var
bjartsýni gagnvart eigin fjárhag en 17% nefndu það.
Hjá Norðmönnum var það bjartsýni gagnvart eigin
fjárhag sem hafði mest áhrif á fasteignamarkaðinn
en 72% fasteignasala töldu það og 68% nefndu að
lítið framboð eigna hefði mikil áhrif á markaðinn.
Hjá Svíum var það helst að bankarnir væru strangir
varðandi útlán en 65% fasteignasala töldu það hafa
mest áhrif. Hjá Dönum var það staðan á vinnumarkaði
sem fasteignasalar nefndu helst eða 76%.
Þessi niðurstaða þarf alls ekki að koma á óvart hvað
Ísland varðar, enda enn talsverð óvissa um efnahags-
mál í þjóðfélaginu þó svo að fasteignaviðskipti hafi
nokkuð aukist á sl. vikum og almennt ríki talsvert meiri
bjartsýni en áður um fasteignamarkaðinn.
Grétar Jónasson hdl.
framkvæmdastjóri Félags fasteignasala
Hvað hefur áhrif
á markaðinn?
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.
- með þér alla leið -
Kjarninn Selfossi til sölu:
Verslunarhúsnæði með góðum leigusamningum.
Traustir leigutakar og langir samningar.
Mikill gestafjöldi í hverjum mánuði.
Í sama húsi eru til leigu ca. 1000 fermetrar við hliðina
á Krónunni og er tilvalið fyrir verslunar- og
þjónustustarfsemi svo sem, sportvörubúð,
veiðiverslun, kaffihús, bókabúð,
heimilistækjaverslun, húsgagnaverslun,
veitingasölu osfrv.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson
Lögg.fasteignasali í síma 897 0634.
Allar nánari upplýsingar
veitir þröstur í síma 897 0634
Vorum að fá í sölu þetta sögufræga hús
í miðbænum. Húsið er ca. 1000 fm. á
þremur hæðum og er allt í útleigu.
Fjárfestar !
Síðumúla 13 - 108 Reykjavík Sími: 569 7000 - Fax: 569 7001
www.miklaborg. is netfang:miklaborg@miklaborg.is
Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar