Fréttablaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Saumaði þvottarennu niður í kjallarann
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Klifurjurt
milli hæða
É
g henti gjarnan taui í tröppurnar til að taka með
mér niður í þvottahús í næstu ferð. Þá fékk ég
þessa hugmynd að útbúa langan poka milli hæð-
anna, sem væri eins og klifurjurt upp vegginn,“
segir Kristín Birna Bjarnadóttir vöruhönnuður þegar
Fréttablaðið forvitnast um hlutverk þriggja metra langs
taupoka á heimili hennar.
„Munstrið á efninu minnti mig svolítið á klifurjurt. Ég
saumaði langan hólk sem dreginn er saman með snúru í
botninn og festi hann með skrúfum efst við stigahand-
riðið. Það besta er hversu mikið kemst í pokann, ég þarf
ekki að þvo eins oft,“ segir Kristín Birna hlæjandi.
Hún hefur reyndar engan tíma til að þvo þessa dag-
ana þar sem hún er önnum kafin við að undirbúa þátt-
töku í HönnunarMars sem hefst á fimmtudaginn. Krist-
ín Birna er hluti af hönnunarteyminu Gerist sem mun
meðal annars sýna Reykjavíkurhandklæðin og -sápuna á
Laugavegi 91. Vörurnar unnu samkeppni um minjagrip
Reykjavíkur árið 2010. heida@frettabladid.is
Leirkrúsin býður upp á fjölbreytt námskeið í vor.
Má þar nefna handmótun fyrir byrjendur, mótun
á rennibekk og helgarnámskeið í rakú- og tunnu-
brennslu. Sjá nánar á www.leir.is
NÝTT12 mánaða vaxtalausar greiðslur
Listh
Fermingartilboð
GÆÐA- og verðsamanburð
Verð nú
109.900 kr.
Verð
164.900 kr.
Söluaðilar.: Járn og gler - Garðheimar - Húsasmiðjan
www.weber.is
Söluaðilar.: Járn og gler hf - Garðheimar - Húsasmiðjan
www.weber.is