Fréttablaðið - 21.03.2011, Page 40
21. mars 2011 MÁNUDAGUR24
sport@frettabladid.is
TEITUR ÞÓRÐARSON stýrði liði Vancouver Whitecaps til sigurs í fyrsta leik sínum í
amerísku MLS-deildinni í knattspyrnu. Vancouver lék þá gegn Toronto og vann öruggan sigur,
4-2. Vancouver var tekið inn í MLS-deildina fyrir tímabilið og lofaði leikur liðsins á undirbúnings-
tímabilinu góðu og sigurinn um helgina gefur Vancouver-liðinu byr undir báða vængi.
Iceland Express-deild karla:
Stjarnan-Grindavík 91-74
Stjarnan: Renato Lindmets 29/5 fráköst, Justin
Shouse 23/7 stoðsendingar, Jovan Zdravevski
19/7 fráköst, Ólafur Aron Ingvason 7, Daníel
G. Guðmundsson 6, Marvin Valdimarsson 4/6
fráköst, Fannar Freyr Helgason 3/6 frákösT.
Grindavík: Páll Axel Vilbergsson 27, Ryan Pett-
inella 15/13 fráköst, Mladen Soskic 10, Ólafur
Ólafsson 10/4 fráköst, Nick Bradford 10, Helgi
Björn Einarsson 2
Njarðvík-KR 80-96
Njarðvík: Jóhann Árni Ólafsson 19, Giordan
Watson 18/6 fráköst/10 stoðsendingar, Melzie
Jonathan Moore 18, Nenad Tomasevic 9, Páll
Kristinsson 6, Friðrik E. Stefánsson 4/12 fráköst,
Guðmundur Jónsson 3, Egill Jónasson 2,
Brenton Joe Birmingham 1.
KR: Marcus Walker 21, Brynjar Þór Björnsson 20,
Pavel Ermolinskij 16/18 fráköst/9 stoðsendingar,
Finnur Atli Magnússon 12, Fannar Ólafsson 6/5
fráköst, Jón Orri Kristjánsson 6/4 fráköst, Ólafur
Már Ægisson 6, Skarphéðinn Freyr Ingason 5,
Hreggviður Magnússon 4.
ÚRSLIT
IE-deild kvenna:
Keflavík-KR 63-60
Keflavík: Jacquline Adamshick 15/22 fráköst/3
varin skot, Pálína Gunnlaugsdóttir 15/7 fráköst,
Bryndís Guðmundsdóttir 13/5 fráköst, Birna Ingi-
björg Valgarðsdóttir 10, Marina Caran 7, Ingibjörg
Jakobsdóttir 3.
KR: Hildur Sigurðardóttir 19/12 fráköst, Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir 11/6 fráköst, Chazny Paige
Morris 9/6 fráköst, Sólveig Helga Gunnlaugs-
dóttir 8, Hafrún Hálfdánardóttir 4/6 fráköst, Signý
Hermannsdóttir 4/9 fráköst, Helga Einarsdóttir 3,
Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 2.
Hamar-Njarðvík 85-77
Hamar: Jaleesa Butler 24/13 fráköst, Kristrún
Sigurjónsdóttir 16, Slavica Dimovska 15/5
stoðsendingar, Guðbjörg Sverrisdóttir 12/6
fráköst, Jenný Harðardóttir 8, Fanney Lind
Guðmundsdóttir 5, Íris Ásgeirsdóttir 3, Þórunn
Bjarnadóttir 2.
Njarðvík : Shayla Fields 26/13 fráköst, Dita
Liepkalne 23/6 fráköst, Julia Demirer 18/19
fráköst, Ína María Einarsdóttir 7, Ólöf Helga Páls-
dóttir 3/5 fráköst/5 stoðsendingar.
ÚRSLIT
N1-deild kvenna:
Fylkir-Stjarnan 28-28
Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 9, Sunna
Jónsdóttir 5, Sigríður Hauksdóttir 3, Arna Erlings-
dóttir 3, Tinna Soffía Traustadóttir 3, Unnur
Ómarsdóttir 2, Anna María Guðmundsdóttir 2,
Nataly Sæunn Valencia 1.
Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét Ragnarsdóttir 9,
Elísabet Gunnarsdóttir 4, Hanna Guðrún Stefáns-
dóttir 3, Hildur Harðardóttir 3, Kristín Jóhanna
Clausen 3, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2,
Gunnur Sveinsdóttir 2, Sólveig Lára Kjærnested 2.
ÍR-HK 15-38
Mörk ÍR: Sif Jónsdóttir 3, Silja Ísberg 3, Jóhanna
Guðbjörnsdóttir 2, Ella Kowaltz 2, Guðrún
Eysteinsdóttir 2, Hekla Ámundadóttir 1, Þorbjörg
Steinarsdóttir 1, Steinunn Sveinbjörnsdóttir 1.
Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 12, Jóna Sigríður
Halldórsdóttir 7, Elísa Ósk Viðarsdóttir 6, Elín
Anna Baldursdóttir 5, Tinna Rögnvaldsdóttir 3,
Elva Björg Arnarsdóttir 2, Auður Ómarsdóttir 1,
Líney Guðmundsdóttir 1, Guðrún Bjarnadóttir 1.
FH-Haukar 24-22
Mörk FH: Birna Íris Helgadóttir 5, Heiðdís Guð-
mundsdóttir 4, Berglind Björgvinsdóttir 4, Mar-
grét Aronsdóttir 4, Ingibjörg Pálmadóttir 2, Sigrún
Gilsdóttir 2, Steinunn Snorradóttir 2.
Mörk Hauka: Þórunn Friðriksdóttir 5, Elsa Björg
Arnardóttir 5, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 4, Þórdís
Helgadóttir 3, Karen Sigurjónsdóttir 2, Viktoría
Valdimarsdóttir 2, Erla Eiríksdóttir 1.
ÍBV-Valur 23-35
Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 11, Guðbjörg Guð-
mannsdóttir 3, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2,
Aníta Elíasdóttir 2, Sigríður Lára Garðarsdóttir 2,
Rakel Hlynsdóttir 1, Sandra Gísladóttir 1.
Varin skot: Berglind Dúna Sigurðardóttir 11.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Það var mikil spenna
þegar lokaumferð N1-deildar
kvenna fór fram.
Fylkir og HK börðust um síð-
asta sætið í úrslitakeppninni.
Fylkir þurfti að fá stig gegn
Stjörnunni því HK átti auðveldan
leik gegn ÍR enda kom það á dag-
inn að HK rúllaði yfir Breiðhylt-
inga.
Fylkir barðist grimmilega
fyrir sínu gegn Stjörnunni og
náði í stigið sem upp á vantaði.
- hbg
N1-deild kvenna:
Fylkir í úrslita-
keppnina
ÖFLUG Sunna María Einarsdóttir var
sterk í liði Fylkis. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Undanúrslit Iceland
Express-deildar kvenna hófust
um helgina.
Deildarmeistarar Hamars
unnu þá sigur á Njarðvík og
Keflavík vann heimasigur á KR.
Leikur Keflavíkur og KR var
jafn og hörkuspennandi frá upp-
hafi til enda. KR leiddi lengi vel
en Keflavíkurstúlkur voru sterk-
ari á endasprettinum.
KR lék án Margrétar Köru
Sturludóttur sem var í leikbanni.
Blikur voru á lofti að Kara gæti
leikið þar sem Haukar ætluðu að
áfrýja leikbanninu sem hún fékk.
Ekkert varð af því að Haukar
kærðu og Kara mun því taka út
sitt tveggja leikja bann.
Njarðvík náði síðan að velgja
Hamri ágætlega undir uggum.
Þær gáfust aldrei upp en Ham-
arsliðið var einfaldlega of sterkt.
Hamar og Keflavík því komið
í 1-0 í rimmunum en það lið sem
fyrr vinnur þrjá leiki kemst í
úrslit. - hbg
Iceland Express-deild kvenna:
KR tapaði án
Köru
HILDUR SIGURÐARDÓTTIR Átti fínan leik
í liði KR en það dugði ekki til.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI KR vann öruggan sigur
á Njarðvík, 80-96, í 8-liða úrslit-
um Iceland Express-deild karla í
Ljónagryfjunni í gær og vann því
einvígið 2-0.
Frábær varnarleikur KR-inga
og gríðarlega mikil barátta ein-
kenndi sigurinn í gær og algjört
kennslubókadæmi hvernig lið eiga
að vinna saman í hópíþróttum.
Gestirnir í KR lögðu grunn-
inn að sigrinum í þriðja leikhlut-
anum en þá spiluðu þeir frábæran
varnarleik og Njarðvíkingar náðu
aðeins að skora níu stig.
Brynjar Þór Björnsson, leikmað-
ur KR, átti virkilega fínan leik en
hann skoraði oftar en ekki á mik-
ilvægum tímapunkti þegar Njarð-
víkingar virtust vera að nálgast
KR. Liðið lék aftur á móti mjög vel
sem heild og allir leikmenn komu á
einhvern hátt að sigrinum.
„Þetta er virkilega góð tilfinn-
ing,“ sagði Brynjar Þór Björns-
son, leikmaður KR, eftir sigurinn
í gær. „Við vissum alveg að Njarð-
vík væri með gott lið en það er
erfitt að búa til liðsheild á tveim-
ur vikum og það varð þeim að falli
í þessu einvígi. Við höfum spilað
saman í allan vetur og það er búið
að reyna mikið á okkar hóp. Það
var virkilega sterkt að vinna þetta
einvígi sérstaklega eftir að hafa
spilað heldur illa í síðustu leikj-
um mótsins. Körfubolti er leikur
áhlaupa, þeir komu með sitt áhlaup
á okkur en við misstum samt sem
áður aldrei tök á leiknum og því
var sigurinn aldrei í hættu. Núna
fáum við ágætis hvíld og Fannar
(Ólafsson) getur hvílt á sér puttann
aðeins, en það er samt hundleið-
inlegt að fá ekki að spila strax,“
sagði Brynjar Þór.
„Við töpuðum bara fyrir mun
betra liði í kvöld,“ sagði Friðrik
Ragnarsson, annar þjálfari Njarð-
víkinga, eftir tapið í kvöld.
„Ef við hefðum tapað í hörku
spennandi leik í kvöld þá væri ég
hugsanlega meira svekktur en svo
var ekki og við áttum í raun ekk-
ert í þá. KR er hreinlega bara með
betra lið en við í dag og því var
þetta fyllilega sanngjarnt. Leik-
urinn spilaðist ekki eins og við
höfðum lagt upp með en markmið-
ið var að halda þessu í lágu stiga-
skori en við áttum bara fá svör
við sóknarleik KR. Það verður
að segjast alveg eins og er að við
hefðum þurft lengri tíma til að ná
upp meiri liðsheild,“ sagði Friðrik
svekktur eftir leikinn. - sáp
KR komst fyrst allra liða í undanúrslit Iceland Express-deildar karla er Vesturbæingar sópuðu Njarðvík í frí:
KR-ingar flugu létt inn í undanúrslitin
STERKUR Marcus Walker átti góða leiki gegn Njarðvík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Stjarnan náði að knýja
fram oddaleik í baráttunni um
sæti í undanúrslitum eftir frá-
bæran sigur á Grindavík, 91-74
í gærkvöldi. Stjörnumenn voru
betri á öllum sviðum körfuboltans
og léku gestina úr Grindavík oft
grátt. Liðin þurfa nú að mætast í
þriðja sinn á miðvikudagskvöld í
hreinum úrslitaleik um hvort liðið
kemst áfram í undanúrslitin.
Grindvíkingar byrjuðu leikinn
af krafti með Pál Axel Vilbergs-
son í fararbroddi en hann skoraði
tíu fyrstu stigin í liði Grindavík-
ur. Stjörnumenn náðu þó fljót-
lega yfirhöndinni og voru fjórum
stigum yfir, 26-22, eftir fyrsta
leikhluta. Renato Lindmets lék
frábærlega í fyrri hálfleik í liði
Stjörnunnar því hann skoraði 18
stig og fiskaði ófáar villurnar á
Grindvíkinga. Stjarnan leiddi í
hálfleik, 44-38.
Síðari hálfleikurinn var eign
Stjörnunnar sem lék hreint út
sagt magnaðan varnarleik og áttu
gestirnir úr Grindavík engin svör.
Heimamenn pressuðu Grindvík-
inga hátt upp völlinn sem var held-
ur betur að skila sér því Grindvík-
ingar töpuðu alls 25 boltum í kvöld.
Mestur var munurinn kominn
upp í um 20 stig þegar Grindvík-
ingar bitu frá sér undir lok leiks-
ins. Lokatölur 91-74 við mikla kát-
ínu stuðningsmanna Stjörnunnar.
Lindmets var atkvæðamestur
i liði Stjörnunnar en hann skor-
aði 29 stig, Justin Shouse skoraði
23 stig ásamt sjö stoðsendingum
og Jovan Zdraveveski með 19 stig
og tók sjö fráköst. Hjá Grindavík
dró Páll Axel Vilbergsson vagn-
inn með 27 stig og Ryan Pettinella
skoraði 15 stig og tók 13 fráköst.
„Ég er hrikalega sáttur og við
spiluðum nákvæmlega eins og
ég lagði upp með. Við náðum upp
varnarleiknum sem við höfum
verið að spila eftir áramót og nú
fáum við einn möguleika í við-
bót til að komast í undanúrslitin
eins og við höfum stefnt að í allan
vetur,“ sagði Teitur Örlygsson,
þjálfari Stjörnunnar kátur í leiks-
lok.
„Við vorum gríðarlega öruggir á
öllum sviðum og gáfum Grindvík-
ingunum engin færi á okkur. Við
fáum frábært framlag frá strákun-
um af bekknum og nú höfum við
kannski örlítið sálfræðilegt for-
skot fyrir oddaleikinn. Síðustu tvö
ár höfum við tapað þessum þriðja
leik í 8-liða úrslitum en nú ætlum
við að komast áfram.“
Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálf-
ari Grindavíkur var hundóánægð-
ur með frammistöðu sinna manna
og heimtar að menn girði sig í brók
fyrir oddaleikinn.
„Þetta var skelfilegur seinni
hálfleikur hjá okkur og Stjörnu-
menn voru augljóslega berjast
fyrir lífi sínu. Við vorum allt-
of slakir og það vantaði alla bar-
áttu í okkar leik. Það er ekki hægt
að vinna körfuboltaleik þegar
þú tapar 25 boltum,“ sagði Helgi
óhress.
Nick Bradford hefur haft hægt
um sig síðan hann mætti til leiks
með Grindvíkingum og skoraði
aðeins 10 stig í gærkvöld. Helgi
segir að það hafi ekki verið mis-
tök að fá hann í liðið.
„Ég fékk Nick til landsins vegna
þess karakters sem hann hefur að
geyma. Hann átti slakan leik eins
og flestir í liðinu en vonandi sýnir
hann úr hverju hann er gerður.“
- jjk
Stjarnan neitar að fara í frí
Stjörnumenn neituðu að láta sópa sér í frí er Grindavík kom í heimsókn í
Garðabæinn í gær. Stjarnan lék magnaðan varnarleik í síðari hálfleik og réði
lögum og lofum á vellinum. Liðin mætast í úrslitaleik í Grindavík.
BARÁTTA Nick Bradford fékk ekkert gefins hjá varnarmönnum Stjörnunnar í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI