Fréttablaðið - 24.03.2011, Síða 30

Fréttablaðið - 24.03.2011, Síða 30
Fermingartilboð Mjúk a fermi ngarg jöfin Skipholti 29b • S. 551 0770 FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN KOMDU Í ÖLL HELSTU PARTÝIN MEÐ OKKUR m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. „Þetta opnar mér margar dyr,“ segir Elísabet Inga Kristófers- dóttir, nemi í fatahönnun við The Art Institute of Seattle. Hún tók nýlega þátt í einni stærstu skóla- sýningu í Washington-ríki, Fashion Roulette – AIS Fashion Show 2011, og hlaut verðlaunin „the most market able collection“ fyrir söluhæfustu fatalínuna. Elísabet valdi sér þemað arki- tektúr og míni- malismi til að vinna út frá á sýningunni. „Ég sýndi átta alklæðnaði, mest buxur og jakka en líka kjól,“ segir Elísa- bet, sem vinnur helst með mynstr- uð og margbrotin efni og leiðist látlaus efni. Hún vann að sýning- unni hörðum höndum frá jólum en verðlaunin komu henni þægilega á óvart. „Keppt var í fimm flokkum, frumlegasta f l íkin, besta rauðadregilsflíkin í karla- og kvennaflokki, besta fatalínan og svo verðlaunin sem ég hlaut,“ segir Elísabet ánægð. Hún segir verð- launin fyrst og fremst fe l a s t í heiðrinum. „Þetta er frábært á ferilskrána en auk þess hef ég fengið fullt af tilboð- um,“ upplýsir hún. Henni hefur til dæmis verið boðið að taka þátt í tísku sýningu í Bellevue Art Museum í Seattle í vikunni og svo annarri sýn- ingu í byrjun apríl. Elísabet hefur fullan hug á að markaðssetja flíkurnar úr línunni. Fötin eru óvenju- leg að mörgu leyti en samt klæðileg. „Til dæmis er ég með skálmar yfir buxur með keðj- um,“ segir Elísa- bet, sem mun útskrifast af heiðurslista skólans í júní. Fram- tíðin er enn óráðin. Hug- urinn stefnir þó til Los Angeles en Elísabet hefur verið að hanna fyrir íslensku stelpurnar í The Charlies. solveig@frettabladid.is Elísabet Inga Kristófersdóttir Spennandi efni eru Elísabetu hugleikin. Elísabet sýndi átta alklæðnaði á sýningunni. MYNDIR/DAVID GALLO Tískuvikurnar fjórar (The Big Four eins og þær eru nefndar) í New York, London, Mílanó og París fara alltaf fram í fyrrgreindri röð, það er fyrst í New York, svo í London, næst Mílanó og síðast í París. Yfir fjörutíu tískuvikur eru haldnar ár hvert um allan heim en þessar eru stærstar. Hlaut verðlaun fyrir söluhæfustu flíkurnar Elísabet Inga Kristófersdóttir útskrifast sem fatahönnuður frá The Art Institute of Seattle í júní. Námið hefur gengið framar vonum. Hún útskrifast af heiðurslista og nýlega hlaut hún eftirsótt verðlaun. Föt frá árunum 1920 til 1960 má flokka sem vintage en föt sem voru framleidd eftir 1960 eru retro. Það var upp úr 1960 sem farið var að líta á gömul föt sem tískufyrirbæri enda þá farið að fjöldaframleiða í meiri mæli en áður og eftirsóknarvert að vera ekki eins og allir aðrir. Heimlid: vintagevixen.com

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.