Fréttablaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 58
24. mars 2011 FIMMTUDAGUR42
bio@frettabladid.is
> LAW Í ÖNNU
Jude Law hefur samþykkt
að leika í kvikmyndinni Önnu
Kareninu ásamt Kick-Ass-
stjörnunni Aaron Johnson og
Keiru Knightley. Myndin segir
frá Önnu, sem er föst í ástlausa
hjónabandi og verður hrifin af
heillandi hermanni. Stóra spurn-
ingin hlýtur að vera sú: hvort
verður Jude?
Þrátt fyrir að enn sé rúmt
ár þangað til 23. myndin
um leyniþjónustumanninn
James Bond verður frum-
sýnd eru spekingar og net-
nirðir farnir að spá í hver
fái það bitastæða hlutverk
að gera Bond lífið leitt.
23. myndin um James Bond verð-
ur gerð. Fyrir ekki svo margt
löngu leit allt út fyrir að Bond
væri endan lega úr sögunni, kvik-
myndaverið MGM var á leið í
gjaldþrot og Bond sömuleiðis. En
með fjárhagslegri skipulagningu
jakkafataklæddra karla tókst að
bjarga skipinu og James sömu-
leiðis og það verður að teljast
jákvætt; Bond-mynd er endalaus
uppspretta frétta og vangaveltna
enda vilja allir vita hver sé næsta
Bond-stelpan og hver skúrkurinn.
Vitað er að Daniel Craig verð-
ur á sínum stað enda þykir honum
hafa tekist vel upp í bæði Casino
Royal og Quantum of Solace. Sam
Mendes mun leikstýra myndinni
og myndin verður hugsuð sem
sjálfstætt framhald af þeim svaðil-
förum sem Bond hefur þurft að
klóra sig út úr í síðustu tveimur
myndum. Og þá má auðvitað bæta
því við að Judi Dench verður M.
Og þetta eru allt staðfestar fréttir.
Hins vegar hefur ekkert verið
staðfest hvaða leikkonur hreppa
þann eftirsóknarverða titil að
verða Bond-stúlka. Það má raunar
búast við miklu húllumhæi þegar
þær skrifa undir þann ráðningar-
samning. Netmiðlar eru lítið farn-
ir að velta möguleikum fyrir sér
enda vita þeir kannski sem er
að það er til lítils. Nýju Bond-
stúlkurnar hafa allar verið frem-
ur óþekktar.
Hins vegar grasserar allt í sögu-
sögnum um hvaða karlleikarar
komi til greina í hlutverk þrjóts-
ins. Ein lífseigasta sagan er reynd-
ar um leikkonu en á einhverjum
tímapunkti fór sú saga hátt að
Rachel Weisz myndi leika aðal-
skúrkinn. Þeirri hugmynd hefur
Skúrkarnir raða sér upp
David Fincher er sagður vera í
bílstjórasætinu til að hreppa eitt
eftir sóknarverðasta hnoss Holly-
wood um þessar mundir; að fá að
leikstýra nýrri útgáfu af Kleó-
pötru. Það er framleiðsludeild
Sony sem hefur verkefnið á sínum
snærum en James Cameron (hver
annar?) var fyrsti valkostur. Hann
kaus hins vegar að einbeita sér enn
frekar að Avatar-mynd númer tvö
og þá kom Paul Greengrass til
skjalanna. Hann þótti
nokkuð líklegur en
gaf verkefnið frá
sér fyrir kvikmynd-
ina Memphis, mynd
um morðið á Martin
Luther King.
Og þá var komið að
David Fincher. Hann
er nú sagður vera
í samningavið-
ræðum við fram-
leiðandann Scott
Rudin en þeir
tveir hafa unnið
saman að kvik-
myndunum The
Social Network
og Karlar sem
hata konur
eða The Girl
with the Dra-
gon Tattoo.
Eins og gefur
að skilja er
um rándýra fram-
leiðslu að ræða en
talað hefur verið
um að Angelina Jolie
leiki hina duttlunga-
fullu keisaraynju
frá Egyptalandi
og feti þar með í
fótspor Elizabeth
Taylor. Það hlýt-
ur því að liggja
í augum uppi að
Brad Pitt leiki
Markús Anton-
íus sem Rich-
ard Burton lék
í kvikmynd-
inni frá árinu
1963.
Ný Kleópatra í
bígerð í Hollywood
Fjórar myndir verða frumsýndar í íslenskum kvik-
myndahúsum um helgina. Sérstaklega verður að
minnast á bresku gamanmyndina Four Lions sem
fengið hefur afbragðsgóða dóma en hún er frum-
sýnd í Bíó Paradís. Myndin segir frá hópi lánlausra
hryðjuverkamanna sem undirbúa árás í
ensku borginni Sheffield. Leikstjórinn
Chris Morris vann til Bafta-verðlauna
fyrir þessa frumraun sína og myndin var
ein af tíu bestu myndum ársins að mati
Time Magazine.
Kvikmyndin Limitless með Bradley
Cooper og Robert De Niro verður einnig
tekin til sýningar um helgina. Hún segir
frá hinum lata Eddie Morra sem varla nenn-
ir að draga andann. Hann kemst hins
vegar í kynni við dularfullan mann
sem gefur honum pillu en hún
gerir honum kleift að sjá heiminn
upp á nýtt. Myndin hefur fengið
ágætis dóma og situr á toppnum í
Bandaríkjunum.
Kvikmyndin The Adjustment
Bureau skartar Matt Damon
og Emily Blunt í aðalhlutverkum en hún segir frá
manni sem vill breyta lífi sínu og örlögum. Myndin
er byggð á smásögu eftir Philip Dick, þann sama og
skrifaði Blade Runner.
Fjórða myndin er síðan No Strings Attached en
hún er kannski til marks um ókosti
ófrumleika. Myndin segir nefnilega
frá vinum sem ákveða að sænga
saman án þess að það hafi neinar
afleiðingar. Sama söguþráð er
hægt að finna í kvikmyndinni
Friends with Benefits sem verður
frumsýnd á þessu ári. No Strings
skartar Ashton Kutcher og Óskars-
verðlaunaleikkonunni Natalie Port-
man í aðalhlutverkum.
Sængað hjá vinum og ofurpilla
Grínleikstjórinn Judd Apatow kann
þá list að kitla hláturtaugar hins vest-
ræna heims með kvikmyndum á borð
við The 40 Year Old Virgin og Knocked
Up. Og nú er leikstjórinn byrjaður á
nýrri mynd. Ekkert hefur verið gefið
út hver söguþráðurinn er en vefmiðlar
hafa gert að því skóna að gifta parið
úr Knocked Up, þau Paul Rudd og
Leslie Mann, verði í aðalhlutverk-
um að þessu sinni. Apatow hefur
haldið mikilli tryggð við sína leik-
ara en samkvæmt Empire Online
gæti hann leitað út fyrir þann hóp
því sögusagnir eru á kreiki um að
Megan Fox kunni að fá hlutverk í
myndinni.
Megan Fox sló eftirminnilega í
gegn í kvikmyndinni Transformers 1
og 2 og virtist ætla að leggja heiminn
að fótum sér. Hún lenti síðan upp á
kant við leikstjórann Michael Bay
og var hent út á götu. Fox taldi
sig hafa ýmislegt annað til
brunns að bera en að vera sæt
í kringum vélmenni og ætlaði
að nýta vinsældir sínar með
kvikmyndinni Jonah Hex.
Henni var slátrað af öllum
og ekki berast betri fréttir
af næstu kvikmynd henn-
ar, Passion Play, því hún fer
víst beint á DVD.
Fox gæti því vel þegið
smá hjálp við að endur-
reisa annars stuttan feril.
Apatow gæti bjargað Megan Fox
FJÖRUGT Matt Damon og
Bradley Cooper keppa
um hylli íslenskra
kvikmyndahúsagesta
með kvikmynd-
irnar Limitless og The
Adjustment Bureau.
VERÐUGIR ANDSTÆÐINGAR
Óskarsverðlaunahafarnir Javier Bar-
dem og Anthony Hopkins hafa
báðir verið orðaðir við þrjóta-
hlutverkið í næstu James Bond.
Og það hefur Ralph Fiennes
raunar líka verið. Hopkins er sá
eini sem hefur neitað þessu af
fullri alvöru en sögusagnirnar
í kringum Fiennes og Bardem
lifa góðu lífi. Daniel Craig
gæti því fengið ansi
verðugan andstæðing
í 23. myndinni um
leyniþjónustumanninn
ráðagóða.
örugglega verið slátrað fljótlega
eftir að framleiðendurnir fréttu
að Craig og hún væru nýjasta
parið í Hollywood. Nýju nöfnin eru
svo sem ekkert slor. Óskarsverð-
launahafinn Javier Bardem hefur í
marsmánuði verið stöðugt spyrtur
við Bond-hlutverkið. Sem er ekk-
ert skrítið. Þeir sem muna eftir
frammistöðu hans í No Country
for Old Men geta allir kvittað upp
á að Bardem myndi sóma sér vel í
hlutverki skúrksins.
Annað nafn hefur einnig skot-
ið upp kollinum og sá er vanur að
leika þrjóta og illmenni. Nefnilega
Ralph Fiennes, sá og hinn sami og
leikur Voldemort, seiðkarlinn sem
gerir Harry Potter lífið leitt. Einn
vefmiðill gekk meira að segja svo
langt að greina frá því Ralph væri
byrjaður að undirbúa sig undir
hlutverkið og að hann ætti að
vera „dæmigerður enskur þrjót-
ur“. Bæði Bardem og Fiennes eru
nefndir til sögunnar á imdb.com-
síðu Bond-myndarinnar.
Þriðji leikarinn til að vera orð-
aður við hlutverkið er síðan Ant-
hony Hopkins en á blaðamanna-
fundi fyrir skömmu vísaði hann
þeirri hugmynd á bug, hann ætlaði
ekki að fara að leika í Bond-mynd.
Sem er sorglegt því vissulega hefði
verið forvitnilegt að sjá Hannibal
Lecter eltast við James Bond.
ÞARF EITTHVAÐ GOTT
Megan Fox hefur ekki gert
góða hluti á hvíta tjaldinu
eftir að hafa verið sparkað út úr
Transformers. Hún treystir á Judd
Apatow.
STÓRMYND David Fincher er sagður vera
í viðræðum við Sony um að leikstýra
endurgerð Kleópötru. Angelina Jolie er
sögð eiga að leika Kleópötru
og þá hlýtur það að liggja í
augum uppi að Brad Pitt
leiki Markús Antoníus.