Fréttablaðið - 24.03.2011, Side 70

Fréttablaðið - 24.03.2011, Side 70
24. mars 2011 FIMMTUDAGUR54 LÖGIN VIÐ VINNUNA „Þetta kom mér mjög á óvart,“ segir rithöfundurinn Viktor Arnar Ingólfsson. Útgáfufyrirtækið Amazon Cross- ing, sem er í eigu bandaríska netr- isans Amazon, hefur keypt útgáfu- réttinn á þremur bókum Viktors Arnars. Flateyjargáta kemur út í Bandaríkjunum í haust, Engin spor í apríl á næsta ári og Afturelding í júlí sama ár. Amazon hefur einnig tryggt sér útgáfuréttinn á Galdri, skáldsögu Vilborgar Davíðsdóttur. „Maður hefur litið þannig á að Bandaríkjamarkaður væri óvinn- andi vígi og það tæki því ekki að streða við að komast þangað en þarna er alveg nýr vinkill á útgáfu sem er gaman að skuli vera kominn til,“ segir Viktor Arnar. Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að Amazon Crossing ætl- aði að gefa út tíu bækur eftir tíu íslenska höfunda bæði í prentuðu og Kindle-rafbókarformi í tilefni af heiðurssessi Íslands á bókamess- unni í Frankfurt í haust. Nú er ljóst að bækurnar verða fleiri en tíu og eru það góð tíðindi fyrir íslenskar bókmenntir. Með því að gera þriggja bóka samning við Viktor sýnir fyrir- tækið að það ætlar ekki að tjalda til einnar nætur í samstarfinu við Ísland. Eitt lykilatriðið í vali Ama- zon á bókum Viktors og Vilborgar eru umsagnir lesenda á heimasíð- um þess í mismunandi löndum. Fyrrgreindar bækur þeirra eiga það einmitt sammerkt að hafa hlotið frábærar umsagnir á þýsku Amazon-síðunni en þar í landi hafa bækur Viktors selst í um 150 þús- und eintökum. Aðspurður segist hann ekki fá fúlgur fjár fyrir samninginn við Amazon Crossing, enda séu rithöf- undar yfirleitt láglaunafólk. Heið- urinn sé fyrst og fremst mikill. Hann býst ekki við að ferðast til Bandaríkjanna til að kynna bæk- urnar en mun ræða þau mál betur við starfsfólk Amazon á bókamess- unni í Frankfurt í haust. - fb Amazon gefur út bækur Viktors Arnars Þýska tvíeykið Booka Shade vill fá íslenskt sælgæti og nóg af því í búningsherbergi sitt í Laugar- dalshöll. Booka Shade kemur fram á aðdáendahátíð íslenska EVE Online, í Laugardalshöll á laug- ardaginn, en hátíðin hefst í dag. Þeir Walter Merziger og Arno Kammer meier, sem skipa tvíeyk- ið, hafa áður komið til landsins og kynntust þá greinilega lystisemd- um íslenska sælgætisins. Þeir biðja sérstaklega um súkkulaði-, lakkrís og marsípan sæluna Tromp en taka fram á kröfulistanum að það verði að vera nóg af öðrum tegundum. Félagarnir eru augljóslega mikl- ir matmenn því þeir vilja pitsur, hamborgara og kjúklingavængi eftir tónleikana ásamt nógu af áfengi; viskíi, vodka, kampavíni og orkudrykknum Red Bull. Þá vilja þeir gott úrval af íslenskum snafsi og því má búast við að skipuleggj- endur bjóði þeim upp á Brennivín, en fáir útlendingar sleppa úr land- inu án þess að smakka það. Booka Shade drengirnir báðu sérstaklega um að fá aðgang til að spila EVE Online, en óvíst er hvort þeir hafi prófað leikinn. Loks óskuðu þeir eftir að eftir- partí yrði haldið þeim til heiðurs í kjallara skemmtistaðarins Rex. Hann er ekki til lengur og ekki heldur Jacobsen, sem var opnaður síðar í sama húsnæði. Kaffihúsið Laundromat er núna í húsnæðinu og var þeim því tjáð að kjallarinn væri í dag sérstaklega ætlaður börnum. Eftirpartíið verður því á Kaffibarnum. - afb Booka Shade vill íslenskt nammi ÞÝSKIR NAMMIGRÍSIR Booka Shade vill nóg af íslensku nammi í búningsher- bergi sitt í Laugardalshöll. KOM Á ÓVART Rithöfundurinn Viktor Arnar Ingólfsson segir að áhugi Amazon Crossing hafi komið sér mjög á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Það er kominn tími á að sýna og sanna í eitt skipti fyrir öll hver er bestur,“ segir Davíð Rúnarsson, eða Dabbi Rú, eigandi Gullaldar- innar í Grafarvogi. Opna Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen verður haldið á Gull- öldinni á laugardaginn. Sigurveg- arinn fær glæsilegan bikar í sinn hlut ásamt því að þátttökugjaldið rennur óskipt í verðlaunafé. Dabbi segir að titillinn sé stór og að ýmislegt fylgi því að vera Íslandsmeistari í þessu aldagamla spili. „Það er ekki bara mikil kven- hylli sem fylgir þessu heldur fylgir mikil athygli fjölmiðla og virðing í undirheimum,“ segir hann. „Þetta er náttúrlega spil spilanna og sýnir klókindi og kænsku.“ Útsláttarfyrirkomulag verður á mótinu og Dabbi segist geta tekið á móti allt að 200 keppendum. Í fyrstu umferðunum er spilað einn á einn og sá sem fyrr vinnur tvö spil fer áfram. Þegar lengra verð- ur komið í mótið þarf að vinna þrjú spil til að komast áfram. „Það er mjög mikill áhugi fyrir mótinu,“ segir Dabbi, sem er viss um að mætingin verði góð. „Fólk er heitt fyrir þessu. Ég get lofað að það verður alveg pakkað hérna.“ En nú eru ömmur sérstaklega slyngir Ólsen ólsen-spilarar. Eru þær sérstaklega hvattar til að mæta? „Já. Alveg sérstaklega eins og allir. Það verður nýliðakennsla ef svo ólíklega vill til að einhver kunni ekki reglurnar.“ - afb Íslandsmeistaramót í Ólsen ólsen ÓLSEN ÓLSEN! Dabbi Rú býst við fjölmörgum keppendum á Íslandsmeist- aramótið í Ólsen ólsen á laugardaginn. „„Ég er eiginlega alltaf með í eyrunum plötuna hans Helga Hrafns Jónssonar, For the Rest of My Childhood, hún hefur verið í eyrunum á mér frá að- draganda HönnunarMars.“ Greipur Gíslason, verkefnisstjóri HönnunarMars. „Staðurinn er svona góð blanda af kósí kaffihúsi og menningarleg- um vínbar,“ segir Dóra Dúna Sig- hvatsdóttir en hún opnaði á dög- unum kaffihúsið The Log Lady á besta stað í miðbæ Kaupmanna- hafnar, nánar tiltekið við á Studie- stræde, hliðargötu af verslunar- götunni frægu, Strikinu. Dóra á og rekur kaffihúsið með vinkonu sinni Henriette og hefur verið mikið að gera síðan þær opnuðu „Við getum alls ekki kvartað yfir viðtökunum og þetta er ótrúlega gaman,“ segir Dóra. Hún er alls ekki ókunn bar- rekstri en hún opnaði á sínum tíma barinn Jolene með nöfnu sinni Takefusa. Það virðist vera eins konar tískubóla hjá Íslendingum að opna kaffihús eða bar um leið og þeir flytja til Kaupmannahafnar, kann Dóra Dúna einhverja útskýr- ingu á því? „Nei, ætli það sé ekki bara tilviljun. Það er allavega ekki auðveldara ferli hér en heima. Allt tekur miklu lengri tíma hérna enda Danir ekki þekktir fyrir að flýta sér og öll leyfi renna mjög hægt í gegnum kerfið. Mér finnst samt mjög gaman að standa í þessu.“ Í fyrra seldi hún sinn hlut í Jolene-barnum, sem henni fannst hafa misst sjarmann, og hóf þá að leggja drög að kaffihúsinu. „Mig langaði að opna stað sem var meira fullorðins og menningarlegri. Við ætlum til dæmis að bjóða upp á ljóðaupplestur, fræðandi fyrir- lestra og sérstök spákonukvöld,“ segir hún en nafn staðarins, The Log Lady, er komið frá sjónvarps- þáttunum vinsælu Twin Peaks sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá henni. „Ég elska þessa þætti og karakter- inn sem gengur undir nafninu The Log Lady er svona spákona sem er sjúk í tré og við reyndum að taka mið af því þegar við hönnuðum staðinn, sem er kannski smá eins og notalegur sumarbústaður.“ Dóra Dúna fékk einmitt hug- mynd að hönnuninni frá plötu- snúðnum og klipparanum Jóni Atla Helgasyni en hann er nýfluttur til Kaupmannahafnar og ætlar eitt- hvað að þeyta skífum fyrir gesti staðarins í framtíðinni. „Hann er svo skemmtilegur og kom með margar frábærar hugmyndir. Við erum til dæmis með einn vegg sem heitir fermingarveggurinn og báðum alla vini okkar um koma með fermingarmyndir af sér og hengja upp á vegg. Það er mjög fyndið þar sem flestir geta nú verið sammála um að maður er ekki á sínu fallegasta skeiði í kringum fermingaraldurinn. Þessi veggur fær mann allavega til að brosa.“ Dóra Dúna hefur nú búið í Dan- mörku í fjögur ár og líkar vel. Hún er búin að koma sér vel fyrir í borg- inni þar sem hún býr ásamt kær- ustu sinni Djunu Barnes, sem er einn af frægustu plötusnúðum Dan- merkur. „Ég er komin til að vera og held að ég geti hiklaust sagt að ég muni aldrei flytja aftur til Íslands. Tækifærin leynast frekar hér en heima,“ segir Dóra Dúna áður en hún snýr sér aftur að kaffiþyrstum gestunum. alfrun@frettabladid.is DÓRA DÚNA SIGHVATSDÓTTIR: INNBLÁSIN AF TWIN PEAKS Opnar kaffihús á besta stað í Kaupmannahöfn GÓÐ STEMMING FYRIR ÖLLU Dóra Dúna lýsir kaffihúsinu sínu, The Log Lady, sem góðri blöndu af kósí kaffihúsi og menningarlegum vínbar með heimilislegu yfir- bragði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANIKALORI ... af notuðum fötum ... Fatabúð Hjálpræðishersins Garðastræti 6, Reykjavík. Opin alla virka daga kl. 13.00 – 18.00. Lau 26.3. Kl. 19:00 Fim 31.3. Kl. 19:00 Síð.sýn Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Sun 27.3. Kl. 13:30 Sun 27.3. Kl. 15:00 Sun 3.4. Kl. 13:30 un 3.4. Kl. 15:00 Sun 10.4. Kl. 13:30 Sun 10.4. Kl. 15:00 Sun 17.4. Kl. 13:30 Sun 17.4. Kl. 15:00 Sindri silfurfiskur (Kúlan) Allir synir mínir (Stóra sviðið) Sun 27.3. Kl. 14:00 Sun 27.3. Kl. 17:00 Sun 3.4. Kl. 14:00 Sun 3.4. Kl. 17:00 Sun 10.4. Kl. 14:00 Sun 10.4. Kl. 17:00 Sun 17.4. Kl. 14:00 Sun 17.4. Kl. 17:00 Sun 1.5. Kl. 14:00 Sun 1.5. Kl. 17:00 Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Fim 24.3. Kl. 20:00 6. sýn Fös 25.3. Kl. 20:00 7. sýn Fös 1.4. Kl. 20:00 8. sýn Lau 2.4. Kl. 20:00 Mið 13.4. Kl. 20:00 Fim 14.4. Kl. 20:00 Mið 27.4. Kl. 20:00 Lau 30.4. Kl. 20:00 Fim 5.5. Kl. 20:00 Brák (Kúlan) Ö Ö Ö Ö Fim 24.3. Kl. 20:00 Aukas. Fös 25.3. Kl. 20:00 Sun 27.3. Kl. 20:00 Mið 30.3. Kl. 20:00 Lau 2.4. Kl. 20:00 Lau 9.4. Kl. 20:00 Sun 10.4. Kl. 20:00 Lau 16.4. Kl. 20:00 Sun 17.4. Kl. 20:00 Hedda Gabler (Kassinn) Ö U U Ö Ö Ö Lau 26.3. Kl. 20:00 Aukas. Fös 8.4. Kl. 20:00 Fös 15.4. Kl. 20:00 U U Ö Ö Ö Ö U U U Ö Ö U Ö U U Ö Bjart með köflum (Stóra sviðið) Fös 8.4. Kl. 20:00 Lau 9.4. Kl. 20:00 Fös 15.4. Kl. 20:00 Lau 16.4. Kl. 20:00 Fim 28.4. Kl. 20:00 Fös 29.4. Kl. 20:00 Fös 6.5. Kl. 20:00 Lau 7.5. Kl. 20:00 U Ö Ö U Ö Ö Ö Ö

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.