Fréttablaðið - 29.03.2011, Page 16

Fréttablaðið - 29.03.2011, Page 16
16 29. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR Gerum nú- verandi kerfi atvinnu- leysisbóta og Lánasjóðs námsmanna sveigjanlegri. Í „góðærinu“ fóru ýmsar stofn-anir/fyrirtæki borgarinnar vel fram úr sér hvað laun og fjárfest- ingar varðar. Á sama tíma voru leikskólar borgarinnar reknir fyrir lítið fé, og starfsfólk þeirra hélt starfinu gangandi á lúsar- launum á meðan laun viðskipta- og lögfræðimenntaðra með- reiðarsveina útrásarvíkinganna hækkuðu í Range Rover á mán- uði – þrátt fyrir að þeir hefðu fáir setið lengur á skólabekk en fag- menntaður leik- eða grunnskóla- kennari. Góðærið heimsótti aldrei leikskólana, frekar en önnur skólastig, og ekki skilaði ráðgjöf meðreiðarsveinanna þeirri ávöxt- un sem menn vonuðust til. Nú hafa foreldrar og fjöl margir sérfræðingar ályktað gegn tillög- um starfshóps um sameiningu leik- og grunnskóla. Fyrir utan starfshópinn sjálfan telja fáir, ef einhverjir, þessi þunnu sam- einingarrök vera vel ígrunduð. Ennþá er ósvarað spurningum er snúa að því hvers vegna samein- ing leggst með svo miklum þunga á sum hverfi umfram önnur. Þá þarf að útskýra hver séu megin rök þess að sumar af uppruna- legum tillögum hugnuðust starfs- hópnum ekki og voru slegnar út af borðinu. Getur það verið að félagslegur styrkur foreldra í nærsamfélagi geti haft þar áhrif? Á hverfafundi nýverið var fulltrúi starfshópsins til svara þegar rætt var um hvernig standa ætti undir kostnaði við fjölgun barna í Vest- urbænum; en þar átti að reisa skúra sem nú er búið að fjarlægja. Spurt var, hvers vegna? Svarið var að „foreldrar í Vesturbænum eru svo kröfuharðir og þeir mót- mæltu“. Það verður að hrósa for- eldrum í Vesturbænum fyrir að mótmæla illa ígrunduðum ákvörð- unum, en hvað vinnubrögð meiri- hlutans varðar þarf auðvitað að spyrja; hverslags pólitík er þetta eiginlega? Ef við skoðum Breiðholtið betur má sjá að sameiningartillögur ná til 86% leikskóla en til 20% í Vesturbænum. Rúm 34% leikskóla sem á að sameina er í Breiðholt- inu og þar á að ná fram tæpum 35% hagræðingarinnar í rekstri leikskólanna. Ef starfshópurinn hefði kynnt sér nærsamfélag leik- skólanna betur hefðu þeir komist að því að hvergi er eins hátt hlut- fall tilvísana til félagsþjónustu er varða börn á leikskólaaldri og þar. Í hverfinu er mjög hátt hlutfall einstæðra foreldra og nýbúa, en sá hópur hefur ekki mjög sterka rödd á hinum pólitíska vettvangi, þar sem þessar ákvarðanir eru teknar. En á hverfafundum síð- ustu daga hefur meirihlutinn fengið að heyra álit nærsam- félagsins á þessum tillögum. Undir skriftum gegn tillögunum fjölgar einnig mjög hratt á netinu. Starfshópurinn hefði einnig auðveldlega geta komist að því með vönduðum vinnubrögðum að mjög erfitt hefur verið að upp- fylla reglugerð leikskóla um að 2/3 hlutar starfsfólks sé fagfólk. Og það er þannig með suma af þeim leikskólum sem lagt er til að séu sameinaðir, að litlu fleiri en leikskólastjóri og aðstoðar- leikskólastjóri eru fagmenntaðir. Hvert verður þá hlutfall fagfólks eftir þær sameiningar sem fyrir liggja? Foreldrar og börn eiga að geta gengið að því vísu að sú þjónusta sem þau sækja uppfylli reglugerð leikskóla – það er í raun þjónustusamningur borgarinnar við borgarana. Ætlar meirihlutinn að gefa einhvern „afslátt“ af því lögbundna verkefni en innheimta samt fullt gjald fyrir þjónustuna? Með vandaðri vinnu hefði hópur inn einnig komist að því að vegalengd á milli leikskólanna Hraunborgar og Aspar, sem eru í sitthvoru skólahverfi og á að sam- eina, er ekki 300 metrar eins og fram kemur í skýrslunni, heldur 460 metrar í beinni línu og 600 metrar eftir göngustíg. Það tekur fimmtán mínútur að ganga hvora leið. Ef við gefum okkur að leik- skólastjóri þurfi að fara tvær ferðir á dag milli leikskóla gerir það klukkustund á dag í göngu, fyrir utan þann tíma sem fer í að loka og byrja verkefni á hvor- um stað fyrir sig. Þetta gæti því talið tíu klukkustundir á viku; tíma sem auðvitað væri betur varið með börnunum. Þá er ótal- inn kostnaður við keyrslu á milli skóla með mat þegar eldhús eru sameinuð. Ég mótmæli þeirri aðför sem gerð er að leik- og grunnskólum í Breiðholtinu. Þar eru fjórtán leikskólar og tveir af þeim voru sameinaðir síðastliðið sumar og nú á að sameina tíu til við- bótar. Til lögur að sameiningu grunn skólanna Hólabrekku- og Fellaskóla eru einnig gegn hverfa skipan og skólamenningu hverfanna. Undir það taka örugg- lega allir íbúar þeirra hverfa er sækja þjónustu í þessa skóla. Leikskólastjórnendum hefur tekist að veita borgarbúum fram- úrskarandi þjónustu síðustu ára- tugi við þröngan fjárhag. Stjórn- endur og starfsfólk hafa náð miklum árangri í starfi og hlotið fyrir mikið lof og þakklæti, bæði frá börnum og foreldrum sem notið hafa þjónustunnar. En slíkt hið sama gildir ekki um marga stjórnendur innan borgar kerfisins og ráðgjafa þeirra síðustu miss- erin. Ef meirihlutanum er alvara í að ganga metnaðarfullt fram í hagræðingu, og hafa alla upp- byggingu og stjórnun til framtíð- ar ábyrga, þá hlýtur næsta skref að vera að sameina meirihlutann við Trúðaskólann og fá svo reynda og menntaða leik- og grunnskóla- stjórnendur til þess að taka við stjórn borgarinnar. Trúðaskólar sameinaðir og skóla- stjórnendur taka við borginni Leikskólar Sigurborg Sveinbjörnsdóttir leikskólastjóri á Hraunborg Ég mótmæli þeirri aðför sem gerð er að leik- og grunnskólum í Breiðholtinu. Á árunum fyrir hrun var atvinnuvinnuleysi lítið – sem betur fer. Þótt orsakir atvinnu- leysisins nú megi rekja til krepp- unnar má líka færa rök fyrir því að atvinnuleysi hafi verið hér dul- búið um árabil. Sveiflum í atvinnu- stigi höfum við mætt með gengis- fellingum og launa lækkunum. Því miður er atvinnulíf hér í reynd tiltölulega fábreytt. Við höfum reitt okkur um of á fáar en stórar gjaldeyris skapandi atvinnu- greinar. Sjávarútvegurinn skilar um 40-50% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar en nýtir aðeins um 5% mannaflans. Aflabrögð og verð á sjávarafurðum hefur því gríðarleg áhrif á efnahagslífi. Heróínhagkerfið Stjórnvöld hafa mætt þessu á markvissan en óheppilegan hátt með uppbyggingu orkufreks iðn- aðar sem hefur kallað á mannafls- frekar framkvæmdir í stuttan tíma með tilheyrandi efnahags- sveiflum, örum en óstöðugum hagvexti. Lokum slíkra stór- framkvæmda fylgir efnahags- samdráttur. Einatt hefur honum verið mætt með frekari stór- framkvæmdum, oft á kostnað náttúrunnar. Þetta kalla ég „Heróínhagkerfi“ því þegar frá- hvarfseinkennin koma fram í hægari hagvexti þarf nýjan skammt framkvæmda. Hag- rænum „vellíðunar skammti“ er sprautað í æðar hagkerfisins. Hér er skammtímahugsunin ráðandi, ekki hugsað um efnahagslega heilsu til langs tíma. Þessu þarf að breyta. Líklega er aldrei betra tækifæri en nú – og vissulega aldrei meiri þörf. Nú þarf að skilgreina og ákveða atvinnustefnu til fram- tíðar með fjölbreytt- um störfum í fjölþjóð- legu umhverfi. Ísland er eyland í eiginlegum skilningi en í efnahags- legum skilning er landið hluti af alþjóðlegu efna- hagskerfi. Í því felast í senn ógnanir og tæki- færi. Því fjölbreyttari sem störfin verða því minni verður áhætta þjóðarinnar. Þannig er hægt að draga úr vægi einstakra atvinnugreina og þar með þeim land- lægu efnahagssveiflum sem við höfum búið við. Menntun er fjárfesting ekki kostnaður En atvinnustefna til framtíðar ein og sér er ekki nóg. Lærum af vinum okkar Finnum. Í kjölfar gríðarlegs efnahagshruns á níunda áratug síðustu aldar skilgreindu þeir og og bjuggu sér til skarpa framtíðarsýn í atvinnumálum byggða á „upplýsingatækni“. Atvinnulíf Finna varð betra og stöðugra. Hins vegar ráku menn sig á að ekki var til „rétt menntaða“ fólkið í nýju störfin. Ekki hafði verið hugsað til þess að mennta- stefnan fylgdi framtíðarsýninni í atvinnumálum. Þetta þurfum við að hafa í huga. Stefna í atvinnu- málum og stefna í menntamálum verða að fylgjast að. Við þurfum að horfa á menntun sem langtíma- fjárfestingu í atvinnulífinu en ekki rekstrarkostnað hins opinbera. Fjárfestum í mennt- un fyrir atvinnu- líf framtíðar. Gerum núve r a nd i ke r f i atvinnuleysisbóta og Lánasjóðs námsmanna sveigjanlegri, sam- hæfðari, búum okkur til vænlega framtíð. En núna strax í dag þurf- um við að bæta í frekar en að skera niður í full- orðinsfræðslu, kvöld- skólum og atvinnu- tengdu námi og námskeiðum. Við þurf- um að virkja þá óvirku, hvetja og skapa þeim og okkur öllum fram- tíðarsýn. Framtíðarsýn byggða á menntun við hæfi einstaklinga fyrir atvinnulífið – fyrir heildina. Stéttarfélög eins og VR geta þarna lagt hönd á plóg. Allt þarf að skoða með opnum hug. Atvinnustefna framtíðarinnar er byggð á menntastefnu samtímans. Vinnum saman – þá vinna allir. Atvinnustefnu til framtíðar VR Kristinn Örn Jóhannesson formaður VR Íbúðarhúsnæði er ein af grunn-þörfum fólks. Hvar á að búa? Er rétt að kaupa eða leigja húsnæði fyrir fjölskylduna. Hér á landi hafa valskostirnir verið fáir. Til að skapa fjölskyldunni öruggt skjól hefur helsti valkosturinn verið að kaupa íbúð enda húsaleigumarkaðurinn á Íslandi frumstæður ef við berum okkur saman við mörg Evrópulönd eins og Þýskaland, Frakkland og Norðurlöndin. Nú hillir undir að breyting verði á þessu .VR hefur verið leiðandi stéttar félag í 120 ár og ég tel að svo eigi að vera áfram. Með hugmynda- auðgi og áræðni þeirra sem veljast í forustusveit VR getum við hald- ið áfram á þeirri braut. Með sögu félagsins að leiðarljósi lagði ég fram tillögu um stofnun húsnæðisfélags VR á stjórnarfundi í janúar. Tillag- an var samþykkt einróma í stjórn VR og þykir það nokkrum tíðindum sæta þar á bæ þessi síðustu misseri. Markmið húsnæðisfélagsins á að vera að kaupa eða byggja íbúðar- húsnæði til leigu eða með búsetu- rétti fyrir félagsmenn VR án til- lits til aldurs eða tekna. Ekki er um félagslegt húsnæði að ræða í hefð- bundnum skilningi þess orðs, heldur áhugaverðan kost til hliðar við sér- eignarkerfið fyrir þá VR-félaga sem ekki geta eða vilja binda fjármagn í eigin húsnæði. VR á umtalsvert fé í sjóðum sem nú eru ávaxtaðir í verðbréfum ýmiss konar. Er ekki tilvalið að nýta fjár- muni VR til jákvæðrar uppbygg- ingar í félagsstarfinu og til hags- bóta fyrir félagsmenn VR? Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu og á fast- eignamarkaði tel ég að þetta sé ein- stakt tækifæri fyrir öflugt félag eins og VR. Með fjárfestingu á þessum tímapunkti í fasteignum, sem einn- ig nýtast félagsmönnum, eru slegnar tvær flugur í einu höggi. Þetta er eitt það jákvæðasta sem frá VR hefur komið undanfarin misseri. Þakka ber öllum stjórnar- mönnum VR sem samþykktu þessa tillögu. Það sýnir að þrátt fyrir þrálátar deilur innan stjórnar geta menn lyft sér yfir ágreining og þras og sameinast um jákvæða stefnu og markmið til framtíðar. Mikil kjaraskerðing í formi kaup- máttarrýrnunar hefur átt sér stað allt frá hruni bankanna. Það á að vera hlutverk forustu VR að endur- heimta þennan kaupmátt með öllum tiltækum ráðum. Það er ljóst að VR félagar leggja mikla áherslu á kaup- máttaraukningu samkvæmt kjara- þingi sem haldið var síðast liðið haust og var fylgt eftir með skoð- anakönnun meðal félagsmanna. Þessa kaupmáttaraukningu þurf- um við að sækja í kjarasamningum með réttmætum kröfum á samtök atvinnurekanda. Öll viljum við ná hinum glataða kaupmætti til baka sem allra fyrst en verðum að huga að því að kollvarpa ekki almenn- um stöðugleika með hættu á auknu atvinnuleysi og verðbólgu. En það þýðir ekki að við eigum að beygja okkur í duftið heldur sækja okkar rétt af festu. Ég hef setið sem varamaður í stjórn VR frá síðustu kosningum og er formaður þeirrar nefndar sem á að annast undirbúning að stofnun íbúðarhúsnæðisfélags VR. Ég óska eftir stuðningi ykkar til að leiða það verkefni til lykta. Jákvæðar og upp- byggilegar fréttir af VR er það sem við þurfum. VR og húsnæðismál VR Bjarni Sigurðsson verkefnastjóri hjá visir.is *Verð á mann miðað við flug fram og til baka til Reykjavíkur, Egilsstaða, Akureyrar eða Ísafjarðar. SKEMMTUM OKKUR INNANLANDS FLUG OG GISTING Í EINA NÓTT FRÁ AÐEINS 21.030 KR.* FLUGFELAG.IS ÍS LE N SK A/ SI A. IS /F LU 5 38 64 0 3/ 11 Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.