Fréttablaðið - 29.03.2011, Qupperneq 26
29. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR18
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
HERA BJÖRK
ÞÓRHALLS-
DÓTTIR
söngkona er
39 ára.
HALLDÓRA
BJÖRNS-
DÓTTIR
leikkona er 45
ára.
LAUFEY
STEINGRÍMS-
DÓTTIR
matvæla-
fræðingur er
64 ára.
ÞÓRIR
BALDURSSON
tónskáld er 67
ára.
ELLE MACPHERSON ofurfyrirsæta er 48 ára.
„Mér finnst óþægilegt að einblína á útlitið, en finnst ég fallegust þegar ég
er sátt við sjálfa mig, hugulsöm við aðra og les bækur fyrir börnin mín.“
Merkisatburðir
„Menn óttuðust menntun kvenna á
19. öld því hún vakti konur af værum
blundi og gerði þær meðvitaðri um
að þær mættu og gætu meira. Því
hefur hún verið kölluð „kynjapólitískt
sprengiefni“ sem braut upp formgerðir
samfélaga og breytti hugmyndum fólks
um hlutverk og eðli kvenna,“ segir Erla
Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur
sem í dag flytur síðasta fyrirlesturinn
í fyrirlestraröð Minjasafns Reykjavík-
ur um konur í Reykjavík á 19. öld.
„Vitaskuld þótti hættulegt að konur
færu að hugsa meira um sjálfar sig og
til dæmis þótti varhugavert að sveita-
stúlkur menntuðu sig því þá urðu þær
fínar með sig og fráhverfar sveitinni,“
upplýsir Erla og vísar til gríðar legrar
umræðu víða um lönd um menntun
kvenna á þessum tíma, en margir
karlmenn urðu strax öflugir talsmenn
kvenréttinda þótt fljótlega kæmi fram
sterkur andróður um að ekki mætti
mennta konur í hverju sem væri.
„Menntun mundi gera þær að karl-
konum, auk þess sem þær skorti ein-
faldlega hæfileika og næga rökhugsun
til að geta tekist á við pólitík, flók-
inn reikning eða náttúruvísindi, eins
dásamlegar og þær voru að öðru leyti,
eins og hvað varðaði næmi og tilfinn-
ingagreind til að takast á við uppeldi
barna,“ segir Erla um spennandi inni-
hald fyrirlestur síns. Hún kallar hann
Frökenerne Johnsen og uppfræð-
ing kvenna, eftir systrunum Þóru og
Ágústu Johnsen, dætrum Gríms Jóns-
sonar, amtmanns á Möðruvöllum. Þóra
stofnaði meðal fleira fólks Kvennaskól-
ann í Reykjavík 1874 og Ágústa lítinn
stúlknaskóla í Dillonshúsi 1851, en þar
kenndi hún barnungum dætrum emb-
ættismanna frönsku, sögu og hann-
yrðir, ásamt því að standa fyrir salon-
kvöldum með nemendum sínum.
„Franska var heimsmál á þessum
tíma, en á árunum 1850-70 vildu marg-
ir meina að Reykjavík væri hálfdönsk
og hálffrönsk. Þá voru franskar skútur
á veiðum meðfram allri suðurströnd-
inni og þeim fylgdu herskip til verndar,
sem lágu við Reykjavíkurhöfn sumar
eftir sumar. Franskir yfirmenn og
skipverjar áttu í miklum samskiptum
við bæjarbúa og þá þótti gott að geta
talað frönsku, auk þess sem herfor-
ingjarnir buðu á dansleiki í herskip
sín. Einnig var lenska í þá tíð að allar
heldri manna stúlkur lærðu frönsku
til að verða dyggðum prýddari og geta
staðið í samræðum við fólk sem skipti
máli,“ segir Erla sem einnig fjallar
um tilraunir heldri kvenna til að skóla
hinar lægra settu með handavinnu- og
sunnudagaskólum.
Fyrirlestur Erlu fer fram klukkan 17
á Landnámssýningunni, Aðalstræti 16.
Allir eru velkomnir og ókeypis aðgang-
ur. thordis@frettabladid.is
ERLA H. HALLDÓRSDÓTTIR SAGNFRÆÐINGUR: UM MENNTUN KVENNA Á 19. ÖLD
Dásamlegar en takmarkaðar
FRÓÐ UM KONUR Erla Hulda Halldórsdóttir hefur um árabil fengist við rannsóknir á sögu kvenna og birt niðurstöður þeirra á íslenskum og
erlendum vettvangi. Nýverið lagði hún fram doktorsritgerð sína, Nútímans konur, við Sagnfræði- og heimspekideild. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
48
Henný Hermannsdóttir, 18 ára Reykjavíkurmær,
var kjörin Miss Young International Beauty í
keppni sem fram fór í Tókýó í Japan fyrir 41 ári.
Henný hlaut 3.000 dali og fjölmargar gjafir í
sigurlaun, auk fjölda tilboða.
Forsaga málsins var sú að Japaninn Charlie
See hafði komið til Íslands í janúar sama ár og
valið Henný úr stórum stúlknahópi til að koma
fram fyrir Íslands hönd í fegurðar- og hæfni-
keppninni, sem þá var hin fyrsta sem fór fram en
alls kepptu stúlkur frá 42 löndum. Keppnin hafði
staðið í tólf daga þegar perlum skrýdd kóróna var
sett á höfuð Hennýar, en auk þess fékk hún tvo
silfurbikara og til stóð að gera vaxmynd af Henný
í eðlilegri stærð og íslenskum þjóðbúningi við
hlið Brigitte Bardot á vaxmyndasafni Tókýó.
Í samtali við Vísi 1970 segist Henný hafa tárast
en ekki gert sér minnstu vonir þegar hún komst
í 15 manna úrslit, en í keppninni var hæfni þátt-
takenda reynd á ýmsum sviðum.
ÞETTA GERÐIST 29. MARS 1970
Henný Hermanns fegurst í heimi
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hreinn Óskarsson
múrari, Mýrarvegi 113, Akureyri,
lést fimmtudaginn 24. mars. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 4. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Heimahlynningu á
Akureyri.
Sigurjóna Kristinsdóttir
Margrét Kristín Hreinsdóttir Sigurður Valur Ingólfsson
Agnea Björg H. Sandvold Jon Christian Sandvold
Guðrún Hreindís Hreinsdóttir
Kristinn Hreinsson Kolbrún Jónsdóttir
og afabörn
Okkar ástkæri
Eyþór Ágústsson
fæddur í Flatey á Breiðafirði,
búsettur í Stykkishólmi,
varð bráðkvaddur í Flatey þann 24. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Dagbjört Höskuldsdóttir
Óskar Eyþórsson Helga Sveinsdóttir
Ingveldur Eyþórsdóttir
Aðalsteinn Þorsteinsson Helga Finnbogadóttir
Höskuldur Þorsteinsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Þórey Einarsdóttir
kennari,
Mávahlíð 23, Reykjavík,
lést á Krabbameinslækningadeild Landspítalans
föstudaginn 25. mars. Útförin verður auglýst síðar.
Smári Þórarinsson
Örvar Þóreyjarson Smárason Birgitta Birgisdóttir
Vala Smáradóttir Illugi Torfason
Adda Smáradóttir
Alda Örvarsdóttir og Þórey Illugadóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Guðbjartur Á. Kristinsson
múrari, Dalseli 20,
sem andaðist 22. mars í Skógarbæ, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 30. mars kl. 13.00.
Helga Pétursdóttir
Guðrún Guðbjartsdóttir Guðjón Þ. Sigfússon
Kristinn H. Guðbjartsson Laufey Ó. Hilmarsdóttir
Álfheiður J. Guðbjartsdóttir Olaf Sveinsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Áskell V. Bjarnason
skipasmiður, Ránargötu 18, Akureyri,
lést á heimili sínu mánudaginn 21. mars.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
1. apríl kl. 13.30.
Þórhildur Margrét Ingólfsdóttir
Jakobína Elín Áskelsdóttir Rúnar Davíðsson
Bjarni Áskelsson Anna Rósa Magnúsdóttir
Ingólfur Áskelsson Helga Signý Hannesdóttir
Sæmundur Guðmundsson
og afabörn
1787 Jón Eiríksson kon-
ferensráð deyr með
sviplegum hætti í
Kaupmannahöfn, 59
ára.
1881 Bjarndýr skotið á
Látrum við Eyjafjörð.
1947 Heklugos hefst eftir
102 ára hlé. Gos-
mökkurinn náði 30
kílómetra hæð og
aska barst til Evrópu.
1961 Lög um launajöfnuð
kvenna og karla
staðfest.
1985 Maður frá Akureyri
fellur í jökulsprungu
í Kverkfjöllum og er
bjargað eftir 32 tíma.
2004 Írar banna fyrstir
þjóða reykingar á
almannafæri.