Sameiningin - 01.12.1918, Qupperneq 10
298
lijálpa þeim; sýna þeim að frjálsir menn þola enga kúgun,
þola Iteldur ekki að óvinir sínir séu kúgaðir. Kristnir
menn og öll kristin kirkja á að koma nú alveg sérstaklega
til sögunnar, ganga á milli, friða og sætta, bæta og græða.
(xuð hjálpi oss til þess. Guð hjálpi oss til að fyrirgefa og
blessa og biðja fyrir þeim, sem verið hafa óvinir vorir.
Guð hjálpi kirkjunni til að útrvma hatrinu og grimdinni
úr hjörtum mannanna og semja frið og hræðralag um
heim allan.
Og það, sem nú frá kristilegu sjónarmiði er ekki sízt
að þakka, er sú von, sem maður hefir um það, að við frið-
argjörð þá, sem nú verður samin og við þá umsköpun
heimsins, sem lienni verður samfara, fái að ráða alkristn-
ar grundvallarsetningar um mannfélagsskipulag og sam-
l>and þjóða. Það er meiri gleði en með orðum verði lýst,
að vita það, að þeir menn, sem nú gangast mest fyrir
málum heimsins og mest munu ráða örlögum lians, eru
alkristnir menn, sem hiklaust hafa látið uppi kristilega
stefnuskrá. Stjórnarformaðurinn brezki, Mr. Lloyd
George og Bandaríkjaforsetinn, Mr. MToodrow Wilson, ern
þeir tveir menn, sem allra augu vona á. Báðir hafa talað
drengilega og lvst kristilegu hugarfari. Bæða sú, er hinn
fyrnefndi flutti þegar er vopnalilé var samið, er út af
fyrir sig viðburður í mannkynssögunni. Þar lýsir hann
því vfir, að ekki skuli hugsað til hefnda, lieldur það eitt
haft fyrir augum, að 'hjálpa hinum sigruðu óvinum og
leiða blessun yfir heiminn. Stefnuskrá Bandaríkjaforset-
ans, sem þegar er lögð til grundvallar fyrir hinu nýja
testamenti alþjóðamálá, er hið fyrsta alkristilega heims-
prógram, sem lagt hefir verið fyrir þjóðfundi stórveld-
anna. Þó þetta tvent sé nefnt, eru margir fleiri menn og
mörg önnur atvik, sem jarteikna ])að, að eftir friðarsátt-
mála og friðarþing, rísi eins og úr rústum nýr og hetri
heimur, þar sem réttlæti og jöfnuður verður, og þjóðir
játast undir Guð og boðorð hans, ei síður en einstaklingar.
Guði sé lof að nú rofar fyrir nýjum degi á austurlofti, og
þó nokkuð sé ef til vill enn að bíða uppkomu réttlætisins
heilögu sólar og albirtu alheimsfriðar og bræðralags, þá
er morgunroðinn, sem kominn er, gleðilegur fyrirboði
dagsins, dagsins þá smíðuð verða plógjárn úr öllum sverð-