Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1919, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.07.1919, Blaðsíða 11
133 Vandamál á vegamótum. Fyrirlestur eftir séra Harald Sigmar. fluttur á kirkjuþingi í Árborg 26. Júní 1919. Mannfélagið stendur nú á vegamótum. Stríðið, sem grúfði yfir með svo mikilli skelfingu, jafnvel þá er vér síð- ast mættum á þingi, er nú á enda og íriðurinn fenginn. Eftir fyrstu gleði-óp og íagnaðarlæti, sem brutust út úr sálum þúsundanna, þá er endir blóðugra bardaga varð, eru menn nú farnir í allri alvöru að hugsa, og snúa sér að verk- efnum þeim, sem friðurinn flytur í skauti sínu, — endur- byggingar og umbyggingarstarfinu mikla, sem óhjákvæmi- lega verður að vinna. Nú hugsa menn líka um það með mikilli alvöru, hvort friðurinn og sigur málstaðar vors muni, þegar til alls kemur, megna að flytja oss þau dýru hnoss, sem vér höfum verið að vænta sem ávaxtar. Eru nú stríð og styrjaldir á enda í heiminum? Blasir nú við þjóð- um og einstaklingum, smáum sem stórum, það frelsi, sem þörf er á? Verður nú hugsjón lýðveldis og réttlætis í öll- um viðskiftum ofaná? Er nú víst, að þjóðirnar í heiminum gangi í bandalag til þess að aðstoða hver aðra, og þjóna hver annari og efla hver annarar hag, í stað þess að berast á banaspjótum? Fæst nú mikill og varanlegur sigur fyrir guðsríki á þessari jörð? pessar og þvílíkar spurningar eru í hugum manna víðsvegar. Stórmenni í ýmsum stéttum víðsvegar reyna að starfa kappsamlega að því, að svo geti orðið. Og þjóðirnar sýnast (að minsta kosti sumar) vera að vakna til meðvitundar um, að þetta þurfi nú að vera ávöxturinn. Líka sýnast þær eitthvað vera að átta sig á því (þó ef til vill sé það ekki vel Ijóst fyrir sum- um enn), að kærleiks- og þjónustulögmál það, sem Jesús Kristur lagði svo sterka áherzlu á, nái til þjóðfélaga alveg eins og til einstaklinga. En ýmsir eru næsta seinir að vakna, og seinir að læra, og eríitt virðist að uppræta ill- gresi eigingirninnar úr hjarta þjóðlífsins, eins og það ávalt er erfitt að uppræta það úr hjarta einstaklingsins. Fyrir þær ástæður ekki sízt, að alt hjá oss mönnum er sífeldlega í svo miklum veikleika gjört, og vér erum svo skamt komnir á veg fullkomnunar, er tregt um, að ávextirnir dýru þrosk- ist, og því eru mörg stór og mikil vandamál uppi á þessum vegamótum sögunnar. Og upp koma þung og erfið spurs-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.