Sameiningin - 01.07.1919, Blaðsíða 23
145
skrá í kirkjunni, er spursmálið um flokkaskiftinguna innan
hinnar kristnu kirkju. Margir vilja það heimta nú (og
hefir sú krafa fengið byr undir báða vængi á stríðstímun-
um) að sú flokkaskifting hverfi með öllu, og mikil og al-
menn sameining verði. pessi krafa hefir mikið til síns
máls, og verður því að takast stillilega og skynsamlega til
greina af öllum kirkjunnar mönnum. pað er vandi fyrir
kirkjuna að fara vel með það mál, og í því sambandi er oss
líka brýn þörf á leiðsögn andans. Geta mætti þess hér að
prestur einn í Bandaríkjunum, sem um þetta ræðir, alls
ekki frá andstæðu eða þröngu sjónarmiði, minnir á það, að
ekki megum vér vera þungir í dómum um feðurna, sem
deildu um trúar-atriði og kenninga-atriði og áttu því oft
beina eða óbeina sök á því að kirkjan klofnaði í flokka.
Hann sýnir fram á, að þar var mikið alvörumál á ferðum.
Kenningarnar mismunandi, sem samvinnan stundum
strandaði á, voru þeim höfuð-kenningar, er þeir í einlægni
hjartans álitu vera rétta skýringu guðsorðs. En í all-
mörgum tilfellum hefir sá skilnings-auki orðið, að menn
sjá nú, að auka-atriði var þar um að ræða, sem þeir í ein-
lægni töldu höfuðatriði. parf þess vegna það, sem þá olli
klofningu, alls ekki að valda áframhaldandi sundrung.
Sumstaðar væri því hægt að sameina, þar sem nú er skift
í flokka. Og sannarlega ætti þar að sameina, sem nokkrir
möguleikar eru á því, og ekki láta persónulegt sundurlyndi,
spillandi tillögur einstakra manna eða syndsamlegan flokka-
drátt standa í vegi. Hin evangeliska kristni ætti sannar-
lega að stefna að því, að sameinast öll í eina göfuga ósigr-
andi heild. En ef ekki fæst félagsleg sameining á sumum
stöðum og sumum svæðum, út af því að enn standi í vegi
þau atriði, sem talin eru höfuðatriði, ætti þó sannarlega að
vera öflug samvinna með öllum kristnum mannflokkum,
sem ná til að vinna saman að öllum göfgandi, blessunar-
ríkum og uppbyggilegum málefnum, sem mögulegt er að
starfa saman að og fyrir hendi eru. Já, meiri samvinna, —
bróðurleg, þjónustufull, kristileg samvinna, — það er at-
riði, sem aldrei verður lögð of mikil áherzla á. par er þörf
á umbótum. pað atriði þarf að básúna í krafti heilags
anda um heim allan. Vér þurfum allir kristnir menn að
taka höndum saman, til þess sameiginlega að byggja
Drotni veglegt og dýrlegt mannlífs-musteri á þessari jörð
— til þess að leggja steina í hans heilaga ríki á þessari
jörð. En muna þurfum vér það, að musterið verður að