Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1923, Qupperneq 5

Sameiningin - 01.12.1923, Qupperneq 5
355 Við getum jafnvel ekki líkt eftir dýrðinni. Þó við vildum reyna að mála sjálfa okkur líka Jesú, þá gæt- um við það ekki. Margir reyna það. Bera nafn bans utan á. sér, hafa upp orð hans eftir honum, kenna sig við hann. Fyrir það eitt verður maður samt ekki Kristi líkur, eignast ekki dýrð hans. Kristur málar okkur, en við ekki hann. Til þess gaf Guð okkur Jesúm, að við yrðum dýrðlegir fyrir hann. En það skeður á þann hátt, að Krists-dýrðin samlagar sig okkur. Til þess gaf Guð okkur Jesúm, að hann sameinist okkur, sameinist insta eðli okkar, andi hans og dýrð taki sér bústað í okkur. Þá þurfum við ekki að mála okkur, þá ljómar dýrð Jesú út frá okk- ur, innan frá sálunni. Við fáum það aldrei fullþakkað, sem Kristur hefir afrekað fyrir okkur. 0g mestu varðar það, sem Krist- ur hefir afrekað i ohkur. Dýrð Krists er mikil á kross- inum, þar sem hann endurspeglar með fórn sinni guð- dómlegan kærleika. En öll sú dýrð fer raunar fram hjá okkur, nema svo, að Jesús sé dýrðlegur orðinn í okkur sjálfum. 1 Jesú er okkur sagt að búið hafi öll fylling guð- dómsins. Með Jesú eignast sálir okkar alla auðlegð vizku, þekkingar og náðar guðs. Það sem Guð sjálfur er og alt, sem Guð sjálfur á, það fáum við með Jesú, þegar við meðtökum hann. “Öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann mátt til að verða Guðs hörn. ” Það er jólagjöfin bezta, að fyrir Jesúm Krist er okkur gefinn máttur til þess sjáJf að verða Guðs börn. “Þökk sé Guði fyrir sína óumræðilegu gjöf,” ritaði Páll postuli. Öðrum gjöfum má lýsa, en gjöf Guðs verður ekki lýst; hún er “óumræðileg”. Aðrar gjafir má mæla og meta, reyna og rannsaka. En jóla- gjöf Guðs! Hver getur lýst Jesú til fulls, metið liann

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.