Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1923, Síða 16

Sameiningin - 01.12.1923, Síða 16
366 af þeim sjóði í starfrækslusjóð Betels. Fyrir nokkru síðan, þegar töluverður tekjuafgangur var, voru $1,000 teknir úr starfrækslusjóði og látnir í þennan nýja styrkt • arsjóð stofnunarinnar. 1 sjóðnum eru nú um $1,750. Eins og nafn sjóðsins ber með sér, er hann sérstaklega til minningar um vestur-íslenzka landnámsmenn. Minn- ing þeirra er sérstaklega heiðruð með gjöfum í þann sjóð. Æ'tlast er til, að dánargjafir gangi í þennan minn- ingarsjóð, en auðvitað geta menn gefið aðrar sérstakar gjafir í hann, og verða þær þakksamlega meðteknar. Með tíð og tíma vonum vér, að þessi minningarsjóður vorði svo stór, að vextir af honurn nægi að miklu leyti til þess að starfrækja stofnunina. Tilgangur vor með þessum línum er að vekja at- hygli fólks vors á þörfum, sem vér trúum fastlega að úr verði bætt. Vér vitum að Betel og það starf, sem þar er unnið, er öllum góðurn mönnum svo kært, að þeir gjöra sitt ítrasta því til blessunar. 0g um leið og vér þokkum af alhug fyrir alla góðvild Betel til handa alt til þessa tíma, þá vonum vér, að menn haldi áfram að sýna þá sömu góðvild nú, þegar þeim er bent á, að þess er sérstaklega þörf. Fyrir hönd stjórnarnefndar Betel, Winnipeg, 4. des. 1923. B. J. Brandson, forseti nefndarinnar. Jólahöllin, Eftir J. Magmís Bjarnason. Jólahöllin fagra stóð við þjóðveginn, þar sem hann iá um fjallaskörðin, veðurnæm og þröng. Hún var áfanga- staður og sæluhús langferðamanna. þar var engum út- hýst, hvort sem hann var auðmaður eða öreigi. Og öllum þótti þar gott að vera. Eitt vetrar-kvöld, í myrkri og hríð, bar þar að garðí riddara nokkurn. Hann var hniginn á efra aldur, en var þó vel ern og hraustur. Hann hafði farið óravegu, dagfari

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.