Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1923, Blaðsíða 22

Sameiningin - 01.12.1923, Blaðsíða 22
372 inn hennar stóð hjá arninum, og í honum var ný og falleg sessa, en á bakinu lá þykt, hvítt ullarsjal. Og fyrir fram- an stólinn stóðu Ijómandi fallegir, loðfóðraðir morgunskór. “pér er kalt, amma,” sagðli Jón, og hann tók af henni hattinn og vetlingana, og færði hana úr kápunni, svo ein- staklega hpurlega og þýðlega, og setti hana í stólinn. Hann hagræddi sessunni nýju við bak henni, vafði utan um hana hvíta sjalinu, tók af henni stígvélin og færði hana í hlýju morgunskóna. “petta eru jólagjafirnar okkar Maríu,” sagði hann. “Fer nú vel um þig, amma?” Amma var eins og í draumi. Hún tók báðum höndum um höfuð þessa nýja sonar síns og kysti hann innilega. Ef til vill hefir hann fundið gömlu varimar hennar titra, því þegar hann rétti úr sér aftur, glitruðu tár í augum hans. “pú ert ósköp góður við mig,” sagði hún, og fagnað- artárin runnu niður eftir vöngum hennar. pá kallaði María úr eldhúsinu: “Kondu hingað, Jón; þú þarft að hjálpa mér. Hann var ekki seinn að hlýða, og að stundarkormi liðnu kom María inn með stóran bakka í höndunum. Hún setti hann frá sér og hljóp til ömmu sinn- ar og faðmaði hana að sér. Gleðileg jól, elsku amma mín!” sagði hún. “Hvernig lízt þér á þetta tiltæki okkar Jóns?” Ömmu var svo mikið niðri fyrir, að hún gat engu orði upp komið. pá kom Jón inn með steikta kalkúna á fati, og sagði: “Við skulum borða matinn á meðan hann er heitur, María mín; við getum talað saman á meðan við er- um að borða. Amma hlýtur að vera hungruð eftir kirkju- ferðina, og eg finn bezt hvað mér sjálfum líður.” “Ekkert er heldur að matarlystinni minni,” sagði María brosandi. “En nú verður þú að sætta þig við það, amma mín, að vera gestur okkar í dag, þó að þú sért í þín- um eigin húsum.” Á meðan Jón var að sneiða niður fuglinn, sagði María ömmu sinni hvernig stæði á komu þeirra. “Hann Jón átti upptökin að þessu öllu saman,” sagði hún og leit broshýr- um augum til elskhuga síns, sem sat hinum megin við borðið. “pegar hann kom heim til okkar í gær, og sá að þú varst þar ekki, þá stakk hann upp á því, að við færum hingað og héldum upp á jólin hjá þér. Eins og þú getur nærri, þótti mér ekki margt að því, svo að við fórum út og

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.