Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1923, Side 11

Sameiningin - 01.12.1923, Side 11
361 ekki æðstu og fegurstu tilfinningum lífsins, þá er lnín ekki hin sanna jólagleði. Hvernig er jólagleðin hjá okkur alment? Er það hin hávaðasama heimsgleði, eða er það liin cljúpa, helga gleði, sem snertir viðkvæmustu og beztu strengi mann- legra tilfinninga? Geta börnin okkar haft eins helgar endurminningar um jólin, þegar þau eldast, eins og við finnum til, sem þektum jólin iieima ? Og eru jólin okk- ar, fullorðna fólksins, eins helg og göfgandi, eins og þau voru á fyrri tíð? — Eg efast um það. Mér finst Santa Claus vera kominn í stað Jesú; mér finnast veraldlegar gjafir vera komnar í stað liimn- eskra gjafa; mér finst himneska dýrðin og sælan vera að rýma fyrir jarðneskri gleði, um jólin. í staðinn fyrir jólabarnið himneska, sem stráir frá sér helgum geislum friðar og blessunar, höfum við feng- ið skrípamynd jólasveinsins, sem kallaður er “hinn heilagi Nikulás.” Hann ber poka í bak og fyrir, fulla af leikföngum og sætindum, skríður svo niður reykháf- ana. og skilur eftir gjafirnar í húsunum. Þetta er ekki ljótt; karlinn er allra bezti karl; en þegar hann kemur í stað Jesú Krists í hugum barnanna (sem vera mun víðar en menn ætla), þá er jóla-hátíðin vanhelguð, og þá eru bömunum sannarlega gefnir steinar fyrir brauð. Santa Claus getur aldrei orðið meira en skrítinn, góður karl í liuga barnanna; hann hefir engin skilyrði til þess að leiða andlegan yl og liimneskt ljós í hjörtu barna og unglinga, ljós, sem göfgi hugsjónir þeirra og lýsi þeim á vegi lífsins. En Jesús, barnið heilaga, sem fæddist á jólunum, guðbarnið, sem var á allan hátt eins og önnur böm, nema miklu, miklu betri og máttugri, hann hertekur hugi barn- anna, og hefir betrandi áhrif á alt líf þeirra. Jesús er þeim ímynd hins fegursta og bezta; hann er svo góður og mikil, að hann hjálpar öllum og gleður alla, og sú gleði, sem hann veitir, endist alla æfi. Börnin vita, að fyrir Jesúm eru jólin til, vegna kærleika hans eiga þau

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.