Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1923, Blaðsíða 32

Sameiningin - 01.12.1923, Blaðsíða 32
382 til að búa í. en kona hans og barn lágu í helli, þar sem ekkert var nema kaldir og berir steinveggirnir. Og fjárhiröirinn hélt, að aumingja saklaust barniö mundi frjósa til dauðs þarna í hellinum, og þó hann væri harðbrjósta, komst hann viö, og hann langaði til að hjálpa því. Og hann leysti poka af öxl sinni og tók þaöan mjúkt hvítt gæruskinn og gaf ókunn- uga manninum, og sagði, aö hann ætti að láta barniö sofa á því. En undir eins og hann sýndi, að hann líka gat verið miskunn- samur, opnuöust augu hans og hann sá það, sem hann ekki áöur haföi getað séö, og heyröi þaö, sem hann áöur haföi ekki getað heyrt. Hann sá, aö alt umhverfis hann var hringur af silfur-vængj- uöum smáenglum, og hélt hver þeirra á hörpu og sungu allir meö hárri rödd, aö í nótt væri frelsarinn fæddur, sem ætti aö endur- leysa heiminn frá synd hans, fÞá skildi hann, hvers vegna allir hlutir væru svo glaðir þessa nótt, aö þeir vildu ekkert rangt gera. Og þaö voru ekki einungis englar umhverfis fjárhiröinn, held- iUr sá hann þá alstaðar. Þeir sátu inni í hellinum, þeir sátu í fjallshlíðinnni, og þeir flugu um i loftinu. Þeir gengu i stórum fylkingum, og er þeir fóru hjá, stönzuöu þeir og litu á barniö. Það var slíkur fögnuður og gleöi og söngur og leikur. Og alt þetta sá hann i dimmu næturinnar, þó áður gæti hann ekki séö neitt. Hann var svo glaður, vegna þess augu hans höföu opnast, að hann féll á kné og þakkaði Guði.” Nú andvarpaöi amma og sagði: “Það sem þessi fjárhirðir sá, það getum viö líka séð, því englarnir fljúga niður frá himni ál hverri jólanótt, ef við einungis gætum séð þá.” Svo lagði amma hendina á kollinn á mér og sagði “Þú veröur aö muna þetta, því það er eins satt og aö eg sé þig og þú sérö mig. Þetta 'birtist ekki í ljósi lampa eða kerta, og ekki Vegna sólar eða tungls, en þaö, sem á ríður, er að vér höfum auga, sem getur séð dýrð Guðs.” K. K. O. þýddi.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.