Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1913, Blaðsíða 5

Sameiningin - 01.06.1913, Blaðsíða 5
IOI fimmtugt, og er sunnudagsskólinri mér enn til eins mik- illar ánœgju og nokkurn tíma áðr. Sú er trúa mín, að vér ættum að taka siðferðilegum framförum að sama skapi sem oss eykst vit og þekking. 1 dag með meira siðferðis-krafti en í gær, og þannig dag eftir dag. En til þess að geta vaxið svo þurfum vér á sunnudagsskólanum að lialda, þeim stuðningi og þeirri andlegu u])plvfting, er þar fæst. Hvetja vil eg menn kirkjunnar til þess ekki aðeins að sœkja sunnudagsskóla, lieldr einnig til þess að taka þar að sér kennara-starf. Þess em eg fullvís, að með því að kenna í sunnudagsskóla liafi eg unnið mér sjálfum meira gagn en þeim, sem eg leitaðist við að kenna. Enginn af oss ætti að vera iðjulaus í kristnum söfn- uði. Vinna styrkir alla í trúnni, karla jafnt sem konur. Freistarinn kemr börnum til að gjöra eittlivað rangt, ef þau eru ekki látin liafast að eittlivað, sem er rétt eða sak- laust; alveg eins fyrir fullorðnu safnaðarfólki. Hætta vofir æfinlega yfir kristnum manni, sem er iðjulaus. Hm þann mann, sem náð hefir þekking á því, hvað Jesús Kristr var, meðan liann dvaldi hér á jörðu, mun sú verða reynd, svo framarlega sem hann leitast við að breyta eftir honum, að hann gefr sér engan tíma til að gjöra sér áhyggju út-af grufli því ýmislegu, sem raska vill ró sumra kirkjumanna. Og engan tíma hefi eg til að lilusta á þann kennimann, sem er að prédika um það, sem hann trúir ekki, meðan heimrinn bíðr eftir að fá að heyra um það, sem liann trúir. Að ending vil eg brýna það fyrir þeim, sem orð mín lieyra, að með engu móti má vanrœkja þá og þær, sem eru á œsku-skeiði. Oss eru fengin börnin og fyrir þeim trúað, og það er lieilagt trúnaðar-mál. Þau hafa augu á oss og liafa það eftir, sem þau sjá til vor, líka það, sem vér vilj- um ekld að þau liafi eftir. Vei því barni, sem upp er alið á heimili, þarsem fólk liefir illan munnsöfnuð, eða gys er gjört að trúnni, eða yfir borðum rœtt um fjárgróða eða föt eða mat, en ekki um neitt, sem er gott og lyftir sálum til guðs. Og ekki ætti foreldrar að láta sér nœgja, að segja börnum sínum að sœkja sunnudagsskólann; þau ætti sjálf að fara þangað með börnin. Ef vér látum oss eins

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.