Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1913, Side 9

Sameiningin - 01.06.1913, Side 9
io5 arina, einsog einhverskonar andlegt jórtr, sem þeir meS engu móti geti án veriö di*ykklanga stund. Þessi leiSi ávani hlýtr aS hafa miðr heppileg áhrif á þá fnenn, sem honum eru háðir. Hann er einsog deyfingarlyf, sem sljóvgar skilning manna og hugsun. Hvernig á þessu stendr, verör oss ljóst, er vér athugum, hvaö í honum er fólgið. Mót- sögn er það, þegar einhverjar tvær kenningar eða frásagnir kcma þannig hvor upp á móti annarri, að önnur hvor getr ekki verið rétt, nerna hin sé röng. Auðvitað getr önnur hvor verið. rétt, e'ða þá báðar rangar. Þegar nú einhver maðr þykist finna slíkar andstœður hjá mótstöðumanni sínum, eða í kenningum þeim, sem hann vill kollvarpa, gjörir sig ánœgðan með þann fund, hrópar um hann fjöllunum hærra og lætr þar allri rannsókn og íhugun málsins staðar numið, — hvað hefir hann unnið með því? Hann hefir gjört sjálfan sig merkilegan /eða ómerkileganj, — það er allt og snmt. Hafi hann i raun réttri fundið mótsögn, þá eru menn litlu nær um það, hvorum megin sannleikrinn liggr, eða hvort ekki þurfi að leita að honum á enn öðrum slóðum. Láti ein'hver maðr sér tíðrœtt um slíkan fund, þá hefir hann bent mönnum á, a'ð vegrinn til sannleikans kvíslist þar í þrjár götur eða fleiri; en hver þeirra sé sú rétta er mönnum jafn-huliö, eftir sem áðr, ef ekki er gjört meira en að benda á mótsögnina. En einmitt þessu atriöi virðist margr sá gleyrna, sem nasvís er í þessu „mótsagna“-snuðri. Hvenær sem hann rekr sig á eitthvaö, sem hœglega megi búa til andstœður úr, virðist hann verða svo hrifinn af þeim mikilleik vizku sinnar, sem fundrinn leiði í ljós, að hann gleymir alveg, hvaS það var, sem hann ætlaöi að leita eftir i fyrstu — aö það var sannleikrinn, en ekki tómar „mótsagna-flœkjur“. Sönnum framförum, hvort heldr eru á sviði hugsunar eða farmkvæmda, verðr ekki hrundið áfram með því að vekja upp slíka drauga, heldr með því að kveöa þá niðr. Vilji menn koma einhverju í framkvæmd, þá rísa óðar upp óteljandi erviðleikar — óteljandi „mótsagnir" —, sem virðast koma í bága við fyrir- ætlunina a'S! gjöra henni ókleift áframhaldiö. Ekkert verðr gjört með því einu að setjast niör og einblína á þessar andstœður. Það þarf að ryðja þeim úr vegi, gjöra þær að engu, sýna fram á, að þar sé um liillingar einar að rœ'öa eða mýflugur gjörðar að úlföldum, áðr en nokkuð getr oröiö úr framkvæmdinni. Vilji menn sanna eða hrekja einhverja kenning, þá verðr hið sama uppá teningi; þá birtast örðugleikar eða mótsagnir á báð-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.