Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1913, Page 16

Sameiningin - 01.06.1913, Page 16
112 flytja langar rœSur. Og aS vorar löngu rœður sé því ótímabœrar. Lengdin skemmir þá fyrir. ÞaS aS prédikun er löng, þarf alls ekki aS vera vottr um nokkuS lofsvert. Getr korniS af ónærgætni og miklu sjálfsáliti. Líka vitum vér, aB ekki er gagniS undir því komiS, aS mikið sé sagt, heldr undir því, aS það, sem segja þarf, sé á þann hátt sagt, aS þaS nái tökum á samvizku og vilja tilheyranda, festist í sálunni og verSi eign hans. Ekki er til neins aS tala viS fólk, þegar þaS hættir aS hlusta á. Bezt er aS hætta, þegar hugr tilheyrendanna fer aS hvarfla og at- hyglinni verSr ekki haldiS. Margr hefir ónýtt áhrif góSrar rœSu meS því aS kunna ekki aS hætta í tíma. Óvinsæl myndi sú farþega-lest þykja, sem æfinlega fceri fram-hjá biSstöS svo og svo langt, og setti farþega þar af og léti þá ganga til baka. Til eru haglbyssur, sem skjóta svo dreift, aS þær drepa ekkert. Og til eru líka rœSur, sem eru svo á víS og dreif — breidd og lengd svo mikil — aS þær koma hvergi nærri nokkrum. Allt fer utanhjá mark- inu, ef annars hefir á nokkurt mark veriS miSaS. Svo má boSskaprinn ekki vera óákveSinn og laus, ekki gefa flautir í staS brauSs. Efasýkin, kvilli, sem fólk vort þjáist nú mjög af, lækn- ast ekki meS þesskonar fœSu, né heldr meö því aS prédikarinn fari út- um alla heima og geima efasýkinnar, bendi á, aS efazt sé um hitt og þetta, einn líti svona á, annar öSruvísi o.s.frv. Marg-oft vakna þá nýjar efasemdir. Og þótt reynt sé aS kveSa þær niSr, þá tekst þaS marg-oft ekki. Sumt sitr eftir og grefr um sig. Svo er aSal-aSsetrs- staör sjúkdómsins ekki vit mannsins, heldr vilji hans. BoSskaprinn þarf því aS vera ákveSinn og jákvæSr, og beinast aS viljanum. Ekki heimspekis-grufl eSa eigin lífsskoöun gagnar, heldr guös eigiS lifandi og kröftugt orS meS eilíföar-myndugleik sínum. Þarsem enn fremr trúarruglingrinn er svo frámunalega mikill hjá oss — sjálfsagt aldrei jafnmikill og einmitt nú—, þá ríSr ekki minnst á því aS prédikunin sé skýr, en ekki loSin eSa þokukennd. Tónninn í lúörinum þarf aS vera hreinn. Röddin skýr rödd guös orSs. Skyldi þaS vera fjarri sanni aS segja, aS rödd íslenzkra presta, aS því er snertir boSun kristindóms, hafi veriS loSnasta röddin, sem kveöiS hefir viS hjá þjóS vorri um œSi-langan tima? Ekki ríör sízt á því, aS evangelíum sé prédikaS, óskoraS og óskert, og þá umfram allt Jesús Kristr í endrlausnardýrö hans, og réttlæti hans oss afrekaö. Kristindómr þjóöar vorrar er all-fjarri því aS vera evangeliskr. VerkaréttlætiS virSist skipa öndvegi. Þá ríör á aS prédika syndina, ekki í ‘homeopatiskri’ útþynning, svo hún hætti aS vera synd nema aS nafninu, heldr einsog guSs orS prédikar hana. „HeilbrigSir þurfa ekki læknis viS, heldr þeir, sem vanheilir eru“ — sagöi drottinn Jesús. Menn þurfa aS finna til sjúk- dómsins til dauöans hjá sér, ef þeir eiga aS fást til aS leita læknisins eilífa. Sú prédikun er þá tímabær, sem miSar á ástandiS trúarlega, eins- og þaS nú er, og trúarþarfirnar, einsog þær nií koma í ljós, og sýnir

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.