Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1913, Síða 18

Sameiningin - 01.06.1913, Síða 18
og síðan fyrir biskupnum sig beygöi, og sagði bljúgr: „Salve domine!“ Svo stóð hann upp, hann meira mæla vildi, en mál hans enginn nema biskup skildi: „Mig hefir páfinn sent af sinni náö frá sinnar tignar aðsetrssta'ð, Rómi, á þetta auma ísi þakta láð, að eyða mörgum heiðnum villudómi og hreinsa lýð af svörtu syndagrómi og djöfulinn að svifta sinni bráð. Það vald mér hefir guð og páfinn gefið; hér getið þér heyrt syndalausnar-bréfið: „Eg leysi þig af allri sekt og synd, það sama, hvað hún mikil kann að vera. Eg hreinsunarelds alla ára bind, svo eigi nokkurt mein þér kunni’ að gera. Eg hreinan skal þig öllum opinbera sem nýfœtt barn, er laugar skírnar-lind. Eg fyrir heljar-hlið set sterka branda, en himnaríkis dyr þér opnar standa. „Nú sjáið þér, hvert erindi mitt er, eg ei þarf framar heilagt mál að brýna. Frá páfanum eg boðskap yðr ber; hann býðr yðr kveðju guðs og sína. Hann ætlast til þér annizt nauðsyn mína, er eg með drottins erindsrekstr fer. Hann skipar ei, vill yðr aðeins biðja 1 orði’ og verki mig sem bezt að styðja. „Það kostar nokkuð, þó eg það ei tel, um þesskonar eg vona’ að menn ei hirði. Eg fyrir gjafverð syndakvittun sel, og silfr manna’ og gull er litils virði. Já, gull og silfr sálunum er byrði. Nú páfinn, guð og eg það yðr fel. Það kemr stundum greiði greiða móti, það getr skeð til yðar nokkuð hrjóti.“ Svo mælti hann og gráum augum gaut, og glotti’ á biskup nokkuð kímilega. En biskup hryggr höfði drap í skaut og horfði sér í gaupnir fullr trega; €n hinir sátu hnípnir alla vega, og eigi nokkrum orð af munni hraut.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.