Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1913, Page 22

Sameiningin - 01.06.1913, Page 22
n8 NOKKRAR ATHUGANIR um máttarstoðir þær, sem kristindómrinn er byggðr á. Eftir herra Svein Sölvason. 1. Fyrst er boðskapr engilsins til Maríu meyjar; hann tekr aftr í syndafallssöguna og sýnir nákvæmlega sambandið við fyrirheitið, sem guð gaf forðurn, um að sæði (afkvæmi) konunnar skuli merja höfuð höggorms- ins; nú á fyrirheit það að rætast. 2. Þarnæst er sagan um fœðing frelsarans með öllum þeim dásemdum, sem henni eru samvaxnar; hann er nú fœddr, sem frelsa skyldi syndfallið mannkynið frá glötun og dauða. 3. Þá er sagan um skírn Jesú — vígslu hans til hins mikla embættis, — hans, sem faðirinn hafði frá eilífð fyr- irhugað mannkyninu til frelsunar. Faðirinn lýsir þá yfir því, að Jesús sé sonr lians elskulegr, sem hann hafi vel- þóknan á; jafnframt úthellir faðirinn yfir soninn hinni miklu gjöf heilags anda, og býr liann þarmeð svo út sem þurfti til framkvæmdar verki því, er hann þá hóf að vinna, en jafnframt til þess hann fengi staðizt freistingarnar, sem fyrir honum lágu upp-frá því. 4. Næst er freistingar-sagan. Af henni sést, að freistingar þær, sem Jesús varð þá að mœta, þótt ekki sé þær nema í þrem þáttum, voru svo víðtœkar, að í þeim felast allar þær freistingar, sem mœta oss mönnum á lífs- leiðinni: freisting til að meta líkamlegu þarfirnar meir en þær andlegu, — freisting til stœrilætis og ofmetnaðar, —freisting til ágirndar með öllu liinu djöfullega föruneyti liennar. Með sönnu má segja, að með þessum freisting- um hafi frelsarans verið freistað á allan hátt einsog vor, (en) án syndar (Hebr. 4, 15). Hann stóðst alla þessa reynslu. 5. Ummyndunar-sagan. Þar er stór-merkilegt at- riði, sem kristindómrinn hefir að undirstöðu. Lærisvein- arnir hafa heyrt kenning Jesú og séð kraftaverk hans; þeim til fullvissu um það, hver hann sé, eru þeir þrír, sem þá voru með honum, látnir sjá dýrðlega ummyndan hans, og af himni ofan lýsir guð faðir yfir því í álieyrn þeirra,

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.