Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1913, Blaðsíða 23

Sameiningin - 01.06.1913, Blaðsíða 23
íi9 að Jesús sé son hans elsknlegr, og býðr þeim að hlýða hon- um. Til þess að þeir fái af hendi leyst hlutverk það hið göfuga, er þeim var fyrir sett, ríðr fremr öllu öðru á, að þeir hlýði Jesú. 6. Þá er píslar-sagan, og mun kristið fólk helzt vera henni vel kunnugt. Þar framkvæmir sæði konunnar verk það, sem því var frá eilífð fyrirhugað, mannkyninu til frelsunar. 7. Upprisa drottins Jesú. Þar opinberast sigrinn mesti, sem unninn hefir verið hér á jörðu frá upphafi mannkynssögunnar — hinn einstaklegi guðlegi sigr frels- arans yfir myrkraríkinu, og þarmeð frelsan mannanna frá eilífri glötun. Einnig er þar fyrirmynduð upprisa guðs barna á síðasta degi, þá er lægingar-líkamir þeirra, dýrðlega ummyndaðir, sameinast sálinni. Upprisa Jesú staðfestir og hina miklu spádóma í gamla testamentinu um Messías. 8. Uppstigning Jesú. Með því dásamlega nndri setr hann óafmáanlegan stimpil á friðþægingar-lærdóm- ínn. Á skírdagskvöld lofaði hann lærisveinum sínum, að hann skyldi senda þeim heilagan anda, sem myndi leiÖa þá í allan sannleikann. Þetta kom fram á hvítasunnudag —einsog kristnu fólki er kunnugt. Með gjöf andans, er þeim veittist þá, má svo kalla, að frelsarinn liafi afhent þeim skjalið mikla, sem hann áðr hafði útbúið og innsigl- að. Að sjálfsögðu hefir þá ómað í sálum þeirra rödd föð- ursins, er þeir áðr höfðu heyrt af himni ofan: „Hlýðið honum!“ Síðan hafa sömu orðin á öllum öldum í krist- inni kirkju veriÖ skilin svo sem töluð væri til allra læri- sveina Jesú Krists, enda mun sá skilningr haldast þar ó- breyttr til heimsloka. Sálmr, Eftir séra N. Steingr. borláksson. Lag: Sælir eru þeim sjálfr guS. 1. Æ, drottinn! hve mín synd er sár ■— ei sár það grœði’ eg, Jesús!

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.