Sameiningin - 01.06.1913, Blaðsíða 26
122
hefir til muna lamaS hiS sjálfstœöa séreöli fslendinga. Engu
aö síSr verör því þó ekki mótmælt, að vilji menn leita að því,
sem bezt er hugsað um stjórnmál í Canada, þá mun mikið af
hugsunum þeim finnast í fslendinga-byggðunum í Vestr-Canada.
Á fjölmennu kirkjuþingi (Tresbyteríana,) nú fyrir fám dögum
í Toronto, Ont., var þeim ummælum Vilhjálms Stefánssonar að nýju
sterklega mótmælt, að kristniboðið meðal Eskimóa hér norðr-við íshaf
valdi siðspilling hjá þvi fólki. Mótmælin komu í þetta skifti frá
kennimanni ensku kirkjunnar, þeim er C. E. Whitaker heitir, sem svo
eíSa svo lengi hefir starfað norðr þar. Gagnsök þunga og ákveðna
bar hann á landa vorn, sem hann hefir persónulega kynnzt útí óbyggð-
unum.
f síöasta blaSi var talsvert sýnt fram-á tungumáls-horfurnar hjá
brœðrum vorum NorSmönnum í SameinuSu kirkjunni. Margar grein-
ir hafa síöan veriö birtar um það efni í „Lutheraneren“, málgagni
þeirrar kirkjudeildar. Þar skiftir mjög skoSunum. Sumir þykjast
sjá, aS norskan verSi bráðum aS þoka fyrir ensku hér vestan hafs.
ASrir telja þaS helga skyldu aS varSveita hér hiS norska móSurmál
um takmarkalausa tíS þrátt fyrir alla örðugleika.
Margrét Einarsdóttir Eyford—48 ára—andaSist á Almenna spít-
alanum í Winnipeg 8. Júní. Hún var ekkja Kristjáns heitins Eyford,
sem dó í fyrra. Valkvendi, sem bar langvinnan sjúkdómskross dá-
samlega vel.
Jón Lárus Júlíus, ungr maör, á 22. aldrs ári (í. 11. Febr. 1892J,
vænn og vel gefinn, lézt og í Winnipeg sama dag (8. JúníJ, á heimili
foreldra sinna, sem eru meöal bezt þekktu íslendinga hér í bœ. Annan
efnilegan son, sem var yngri, höfSu foreldrarnir f Mr. og Mrs. Jón
JúlíusJ áðr misst, auk ungbarna tveggja. Síðasti missirinn kom fyrir
fám dögum eftir brúökaup dóttur þeirra, sem nú er ein systkinanna á
lífi.
Nýlátnir eru og hér í bœ viS góSan orSstir tveir rosknir heimilis-
feSr íslenzkir: Sigmundr Guðmundsson, 65 ára, og Guðlaugr Jónsson,
77 ára. BáSir af Vestrlandi, og er nú heill mannsaldr síðan þeir sett-
ust aS hér í landi. Hinn fyrr nefndi lætr eftir ekkju JRósuJ auk barna
uppkominna. Kona hins síðarnefnda (IngibjörgJ andaöist 1. Marz
þ- á- _________________
Gjafir til gamalmenna-hœlisins fyrirhugaða: frá ónefndum í Min-
nesota (séra B. B. J.J $225; frá Konkordia-söfn. (séra G. G.J $17; frá
Siguröi Sigvaldasyni JWinnipegJ $1. — Þessum gjöfum hefi eg veitt
viStöku—meS þökkum. Winnipeg, 31. Maí 1913.
G. P. Thórðarson.