Sameiningin - 01.06.1913, Side 27
123
KVITTANIR fyrir peningum, er mér hafa veriö greiddir.—Safn-
aðagjöld: Lúterssöfn. $9, Selkirk-söfn. $15.—1 heiðingjatrúboðs-sjóð:
Fríkirkjusöfn. $4.85, sd.sk. Fríkirkjusafn. $1.95, Frelsissöfn. $10.50,
sd.sk. Frelsissafn. $4.30, Immanúelssöfn. í Baldri $11.05. — Ennfremr:
gjöf frá ónefndri konu í heiöingjatrúboös-sjóö $15. fÞ'essi gjöf gat
ekki birzt í ársreikningum, er lagðir veröa fram á kirkjuþingi næsta,
því reikningarnir voru fullgjörðir, þegar gjöfin kom til féhirðisj
Friðjón Friðriksson, varaféh. k.fél.
FYRIR UNGA FÓLKIÐ.
Deild þessa annast séra Priðrik Hallgrímsson.
David Livingstone
1813 — 19. MARZ — 1913.
(NiSrlag.)
V. Síðustu ferðirnar.
Þessi þáttr nær yfir átta síðustu æfiár Livingstone’s.—Hann hélt
fyrst frá Englandi til Bombay á Indlandi, og bjó sig þar til ferðar-
innar. Þaðan hélt hann svo til Zanzibar, á austrströnd Afríku, og
svo þaðan inn-í landiö. Tilgangr feröarinnar var sá, að finna upptök
stóránna þriggja: Kongo, Zambesi og Nílár; og í þeirri leit var hann
á ferðinni fram og aftr milli vatnanna stóru fjögurra: Nyassa, Tan-
ganyika, Moers og Bangweolo.
Raun var honum það mikil, hve illa þeir reyndust honum flestir,
förunautarnir, sem hann haföi fengið sér í Bombay. Fjöldi af þeim
strauk frá honum, er þeim fór að leiðast ferðavolkiö, og höfðu þeir
með sér á burtu mikið af farangri hans, og þar á meðal meðala-
kassann, svo langa-lengi var hann meöalalaus meö öllu, og lengst af
þeim tíma fárveikr; en sumir þeirra komu svo illa fram, aö hann
neyddist til að senda þá heim aftr; aðeins örfáir af öllum hópnum
reyndust honum tryggir til hins síðasta.
Eftir þriggja ára hrakninga og ótrúlega erviðleika, veikindi,
hungr og vosbúð, komst hann til Ujiji við austrströnd Tanganyika-
vatns, og var hann þá svo máttfarinn, að síðustu áfangana varð hann
að láta bera sig. Þar átti hann von á blöðum og bréfum og töluverð-
um forða af meðulum og öðrum nauðsynjum; en mest-öllu af þvt
hafði verið stolið, og ekki lá þar fyrir honum nema eitt gamalt bréf.