Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1913, Blaðsíða 28

Sameiningin - 01.06.1913, Blaðsíða 28
124 Hann komst aS því, að þetta var samsœri af hendi arabskra þræla- kaupmanna, sem vildu hann feigan. Fjörutíu bréf skrifaöi hann þaö- an, en Arabarnir, sem hann sendi þau meö og borgaði vel fyrir flutn- inginn, sáu svo um, að þau komust aldrei til skila. Hann var þarna aö kalla má einn síns liðs, meðalalaus og illa útbúinn; en sama var þó alltaf traust hans til föðursins á himnum. Eftir fárra vikna hvíld lagði hann á stað aftr í vestrátt, aö kanna ókunna stigu, aðallega til að kanna á þá, er nefnist Lualaba, og hélt hann um hríð, að það væri Níl. í þeim leiðangri var hann tvö ár rúm, og mest af þeim tíma var hann í Norðrálfunni talinn dauör. Þrátt fyrir margvíslega erviðleika komst hann alla leið vestr að Lualaba, eftir margar tafir, sem aðallega stöfuðu af því, að Arabar, sem ráku þrælaverzlun um þær slóöir, gjörðu allt, sem þeim var unnt, til að tefja hann og spilla fyrir honum. Honum voru sendir menn, sem var látið heita að ætti að hjálpa honum, en áttu ekkert annað erindi en að gjöra honum sem mesta farartálma. Með því móti var ekki viö því að búast, aö feröin gengi greitt. Þeir stálu frá honum, rœgðu hann við landslýðinn og frömdu allskonar svívirðingar, sem þeir svo töldu fólkinu trú um að hann væri valdr að. Livingstone var nú kominn til Nyangwe, þorps við Lualaba-á, í landi Manyuema-manna; það var í Júlí 1871; og þar kom þaö fyrir, sem að líkindum var eitthvert mesta og sárasta mótlætið, sem hann varð að þola um dagana. Arabar tveir, sem þóttust vera vinir hans og bandamenn, létu fyrst þræla sína brenna upp ein tíu blökkumanna- þorp, — en þrættu auðvitað fyrir, að þeir ætti þar nokkurn hlut að máli—; og svo nokkrum dögum seinna, þegar um 1500 manns voru saman komnir til markaðar, og Livingstone var að ganga þar um og tala við fólkið, þá fóru þessir þrælar allt í einu að skjóta á varnar- laust fólkið; það flúði niðr-að ánni og fór í báta sína; en í flaustrinu og þrengslunum hvolfdi mörgum þeirra, en þrælmennin stóðu á ár- bakkanum og létu skothríöina dynja miskunnarlaust á þessu vesalings saklausa fólki, sem var að reyna að bjarga lífi sínu á flótta. Sjálfsagt ein fjögur hundruð manns voru myrt þann dag; en þrælarnir héldu á- fram hryöjuverkunum og kveiktu í hverju þorpinu á fœtr öðru. „Það fór um mig hrollr, sem orð fá ekki lýst“ — reit Livingstone í dagbók sína—, „við að sjá varnarlaust kvenfólk myrt hundruðum saman fyrir augunum á mér; mér fannst engu líkara en aö eg væri staddr í hel- víti.“ Hann gat ekki fest yndi þarna lengr, og afréð að halda sem hraðast aftr austr til Ujiji. En sárast var það, að hvar sem hann fór um landið, þarsem þetta þrælslega ódæði haföi veriö unnið, fann

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.