Sameiningin - 01.09.1913, Blaðsíða 3
mtmmngm.
Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufdagi ítl. í Vestrheimi
RITSTJÓRI JÓN BJARNASON.
XXVIII. árg. WINNIPEG, SEPTEMBER 1913. Nr. 7
i
Friðjón Friðriksson
T.ATIXX.
Hann andaðist liór í Winnipeg sunnudagskvöld 17.
Ágúst. Áðeins þrem sólarhringum áðr lagðist hann
sjúkr- Hið skyndilega fráfall hans kom öllum óvart, því
þótt hann öðru livoru kenndi nokkurs lasleika á síðasta
missiri, grunaði engan, að hann gengi með mein það, er
nú svo fljótt varð honum að bana.
Þar misstu Yestr-lslendingar þann úr liópi sínum hér’,
sem öllum mun liafa komið saman um að verið liafi frábær
fyrirmvndarmaðr. „Manna vænstr, manna hyggmastr og
manna beztr“—sagði Jón Ögmundsson um Isleif Gizurar-
son, fóstrföðr sinn. Sama viljum vér segja um Friðjón
Friðriksson, þess full-vísir, að þann vitnisburð samþykki
allir þeir mörgu, er liann þekktu. Því er nú söknuðrinn
eftir hann látinn svo almennr 0g hjartanlegr.
Ilann var fœddr að Hóli á Melrakkasléttu 21. Ágúst
1849. Foreldrar hans voru þau Friðrik Jónsson og Þór-
liildr Friðriksdóttir kona lians. Þótt ekki væri hann í
venjulegum skilningi skólagenginn, naut liann þó tals-
verðrar og notadrjúgrar menntunar heima á Islandi, vann
og þar að ýmsu, sem sérstaka þekking- þurfti til. Árið
1873 10. Júlí kvæntist liann, rétt áðr en liann með hinni
góðu liúsfreyju sinni—Guðnýju Sezelju Sigurðardóttur—,
sem nú er orðin ekkja, lagði á stað vestr um haf til lieims-