Fréttablaðið - 20.04.2011, Síða 2

Fréttablaðið - 20.04.2011, Síða 2
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR2 SKIPULAGSMÁL „Ég horfi á krakk- ana leika sér á svæðinu og hef af því þungar áhyggjur að hérna verði slys fyrr en seinna. Í grunn- inn safnast mikið vatn og verður því best lýst sem stöðuvatni innan bæjarmarkanna,“ segir Þórleifur V. Friðriksson, prentsmiðjustjóri Hjá GuðjónÓ í Þverholti 13. Við Þverholt 15 stendur svæði eins og það var þegar jarðvinnu lauk árið 2008 en Byggingafélag námsmanna hugðist reisa 400 stúdentaíbúðir á lóðum við Þver- holt og Einholt. Svæðið er nú í eigu Landsbankans. Böðvar Jónsson, framkvæmda- stjóri Byggingafélags námsmanna, segir félagið annast svæðið fyrir Landsbankann en hann sér ekki í fljótu bragði hvað er hægt að gera til að gera svæðið öruggara en nú er. Svæðið hafi verið girt af og dælur settar upp til að dæla vatni úr grunninum þegar það hafi safnast upp. Þórleifur segir að þrátt fyrir að dælt sé upp úr grunninum dugi það ekki til. Grunnurinn fyllist hraðar en dælt sé og fyrr en varir séu komin börn til að leika sér. Að því hafi hann ítrekað orðið vitni. Þórleifur segir ástandið á svæð- inu bagalegt því vegna fram- kvæmdanna á sínum tíma hafi meirihluta Þverholtsins verið breytt í einstefnugötu. Það geri rekstur fyrirtækis eins og stórrar prentsmiðju ekki auðveldari. Hann spyr hvort ekki megi taka til á svæðinu; loka grunninum og gera Þverholtið þannig úr garði að auð- veldara sé fyrir fólk og fyrirtæki að sinna sínum daglegu störfum. Magnús Sædal Svavarsson, byggingafulltrúi Reykjavíkur- borgar, tekur undir að óviðun- andi sé hvernig skilið hafi verið við svæðið. „Það er ekki hægt að fullyrða hvað þetta mun bíða svona lengi en það kostar líklega tugi milljóna að koma þessu í eitt- hvert nothæft ástand; fylla holuna og ganga frá þessu.“ Hvað hættur varðar á byggingarsvæðinu segir Magnús að hann sé „sæmilega rólegur yfir þessu, en ekki meira en það. En það er niðurdrepandi að þetta þurfi að vera svona og þetta væri betur eini staðurinn. Þeir eru því miður miklu fleiri.“ Kristján Kristjánsson, upplýs- ingafulltrúi Landsbankans, segir bankann hafa reynt að fá sam- starfsaðila til að byggja svæðið upp. Komið hafi til greina að halda áfram með verkefnið eins og það var hugsað en hingað til hafi sú leit verið árangurslaus. Reginn, dótturfélag Landsbankans sem fer með umsýslu og ráðstöfun fast- eigna og fasteignafélaga, tekur sennilega við svæðinu, að sögn Kristjáns. Reginn mun reyna að þróa verkefnið áfram undir sínum hatti. svavar@frettabladid.is En þetta er niður- drepandi að þetta þurfi að vera svona og þetta væri betur eini staðurinn. Þeir eru því miður miklu fleiri. MAGNÚS SÆDAL SVAVARSSON BYGGINGAFULLTRÚI REYKJAVÍKURBORGAR Fólk í Þverholti telur húsgrunn slysagildru Stórt byggingasvæði við Þverholt hefur staðið óhreyft frá hruni. Fólk á svæðinu óttast slys á börnum sem sækja á svæðið til að leika sér. Dýrt er talið að laga svæðið en Landsbankinn leitar að samstarfsaðilum til að klára uppbyggingu. BYGGINGAREITUR VIÐ ÞVERHOLT 15 Eins og sjá má safnast mikið vatn í grunninn. Börn sækja inn fyrir girðinguna og er óttast að slys geti orðið, þar sem vatnið verður mjög djúpt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI NÁTTÚRA Alls mældust 1.090 jarð- skjálftar undir landinu og á hafsvæðinu í kringum Ísland í marsmánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Stærstu skjálftarnir urðu norður á Kolbeinseyjarhrygg; sá stærsti náði stærð 4 á Richter- kvarða. Stærsti skjálftinn á land- inu varð við Kleifarvatn og mæld- ist 3,5 að stærð. Í febrúarmánuði urðu hátt í 2.000 skjálftar undir landinu og á hafsvæðinu í kringum Ísland. Mest var virknin við Krýsuvík. - sv Mikill fjöldi jarðskjálfta: Rúmlega 1.000 skjálftar í mars SVÍÞJÓÐ 24 ára karlmaður var í gær fundinn sekur um þrettán árásir á konur í Örebro, þar af þrjár nauðganir. Maðurinn var handtekinn í októ- ber síðastliðnum, en þá hafði lög- regla um fimm ára skeið rannsak- að röð kynferðisglæpa í borginni. Alls var maðurinn, Niklas Elias- son, ákærður fyrir þrjár nauðg- anir, níu tilraunir til nauðgunar og tvö tilfelli af kynferðislegri áreitni. Eliasson mun nú gangast undir geðrannsókn, en dóms er fyrst að vænta í málinu í júní. - þj Sænskt dómsmál: Raðnauðgari fundinn sekur LÖGREGLUMÁL Maður á þrítugs- aldri hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Maðurinn var undir áhrifum fíkniefna þegar hann ók á skokkara á Eyja- fjarðarbraut í janúar síðastliðn- um með þeim afleiðingum að hann lést. Í þvagi ökumannsins, sem er fæddur árið 1986, fundust leifar af kannabisefni. Því er hann ákærður fyrir umferðarlagabrot og fyrir manndráp með gáleysis- legum akstri. Maðurinn sem lést hét Gísli Ólafur Ólafsson. Hann var 49 ára gamall og til heimilis á Akureyri. - sv Manndráp af gáleysi: Undir áhrifum við stýrið og ók á skokkara AKUREYRI Maðurinn sem hefur verið ákærður er búsettur á Akureyri, en slysið átti sér stað rétt sunnan við bæinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavíkur komst í gær að þeirri niðurstöðu að gengistrygg- ðir fjármögnunarleigusamningar væru ólöglegir. Milljarðar króna og hundruð starfa eru í húfi, sagði Árni Jóhannsson, forstöðumað- ur mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, í fréttum Stöðvar 2 í gær. Samningar sem þessir voru gerðir á sínum tíma til að fjármagna kaup fyrir- tækja á atvinnutækjum, svo sem flutninga- bílum, gröfum og öðrum tækjum. Fyrirtækið Kraftvélaleigan gerði slíkan samning við Íslandsbanka en í úrskurði héraðsdóms segir að samningurinn hafi verið gengistryggður lánssamningur í íslenskum krónum og því ólöglegur. Árni sagði í samtali við Stöð 2 að mörg fyrirtæki væru í vandræðum sökum nei- kvæðrar eiginfjárstöðu. „Þetta getur örugglega hjálpað mjög mörgum þeirra til að snúa þeirri þróun við í jákvæða eigin- fjárstöðu og vonandi er að þau nái áttum sínum og geti byggt sig upp að nýju,“ sagði Árni. Íslandsbanki, sem hefur gert um fjögur þúsund slíka samninga, hyggst áfrýja mál- inu til Hæstaréttar, en Árni vonast til að niðurstaða verði komin í byrjun sumars. - þj Tímamótadómur Héraðsdóms Reykjavíkur gæti komið mörgum fyrirtækjum til bjargar: Milljarðar í húfi eftir gengislánadóm TÍMAMÓTADÓMUR Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær að gengistryggðir fjármögnunarleigusamningar vegna vinnuvéla væru ólögmætir. Dómurinn gæti haft mikil áhrif á framkvæmdir og iðnað í landinu. NORDICPHOTOS/GETTY LÖGREGLUMÁL Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur fyrir lík- amsárás gegn tveimur stúlkum með ársmillibili í gær. Maðurinn nefbraut aðra stúlkuna í septem- ber árið 2009 þegar hann réðst á hana að tilefnislausu. Seinni árás- in var í júlí á síðasta ári, þegar maðurinn hrinti stúlku í götuna með þeim afleiðingum að hún hlaut yfirborðsáverka á handlegg, tognun í olnboga og mjóbaki. Maðurinn sagðist muna lítið eftir atvikunum þar sem hann væri með athyglisbrest og gleymdi auðveldlega því sem kæmi fyrir hann. Hann var dæmdur í níu mánaða fangelsi, en fresta skal fullnustu sjö mánaða refsingarinnar. - sv Ber fyrir sig minnisleysi: Dæmdur fyrir árásir á stúlkur ALÞINGI Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir nýtt frumvarp um upp- lýsingalög sem nú liggur fyrir Alþingi, meingallað. Sigurður Kári krefst þess að frumvarpið verði dreg- ið til baka og samið verði nýtt frá grunni. „Ef lögin væru í gildi núna eins og lagt er til, þá mætti búast við því að mikilvægum upplýsingum í tengslum við Icesave-málið kynni að vera lokað og ekki upplýst um þær fyrr en 2120,“ sagði Sigurð- ur Kári við fréttastofu Stöðvar 2 í gærkvöld. Hann sagði frumvarpið afturför frá þeim upplýsingalög- um sem nú eru í gildi og hafi reynst mjög vel. Breyting laganna hefði í för með sér að þjóð- skjalavörður gæti ákveðið að loka fyrir aðgang almennings að gögnum í allt að 110 ár. Markmið breytinganna er þó að tryggja upplýsingarétt og tjáningarfrelsi. Þessi ákvæði þess hafa verið harð- lega gagnrýnd, meðal annars af Sagnfræðingafélag- inu og borgarskjalaverði. Í umsögn Blaðamannafélags Íslands um frum- varp forsætisráðherra kemur fram að ef lögin hefðu verið í gildi undanfarin misseri, hefði Árbótarmálið til að mynda ekki komið upp á yfirborðið. - sv Þingmaður Sjálfstæðisflokks krefst þess að frumvarp verði dregið til baka: Afturför frá núverandi lögum SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON Þingmaðurinn krefst þess að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra taki frumvarp um breytingar á upplýsingalögum til baka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Atli, heldurðu að þú gætir haldið pókerfeisinu ef þú hittir Lady Gaga? „Ég myndi allavegana reyna að halda því, en er ekki viss um að það tækist.“ Atli Freyr Arnarson rær öllum árum að því að því að verða aðstoðarmaður stór- stjörnunnar Lady Gaga. Kristín kjörin í stjórn Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, var í vikunni kjörin í stjórn samtaka evrópskra háskóla. Þetta þykir eitt mesta virðingarembætti sem íslenskum háskóla hefur hlotnast, en í samtökunum eru 850 háskólar frá nær 50 löndum. SKÓLAMÁL SPURNING DAGSINS Skemmtilegar hugmyndir fyrir fermingar- veisluborðið á www.gottimatinn.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.