Fréttablaðið - 20.04.2011, Page 4
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR4
Borgin hefur það
alveg í hendi sér að
rífa húsið og senda félaginu
reikninginn. Það hlýtur bara
að vera hægt
EINAR LOGI VIGNISSON
ÍBÚI Á ÞÓRSGÖTU 12
SKIPULAGSMÁL Íbúar á Þórsgötu 12
í Þingholtunum hafa ítrekað sent
borgaryfirvöldum bréf vegna nið-
urnídds húss við Baldursgötu 32.
Húsið er í eigu fasteignafélagsins
Baldursgötu ehf. sem er jafnframt
skráður eigandi fyrir Baldurs-
götu 34, sem er í útleigu. Fyrir-
tækið hefur í tæpt ár verið beitt
dagsektum af borgaryfirvöldum,
sem eru nú komnar í innheimtu
og skipta milljónum, samkvæmt
upplýsingum frá byggingafulltrúa
borgarinnar.
Baldursgata 32 hefur staðið auð
í um það bil sex ár. Húsið brann
árið 2008 og hefur ekkert verið
gert til þess að endurbæta það.
Einar Logi Vignisson, íbúi á
Þórsgötu 12, segir ólíðandi að
borgaryfirvöld aðhafist ekkert í
málinu. Hann segir mikla slysa-
hættu og sjónmengun stafa af hús-
inu og ekkert hafi verið að gert,
þrátt fyrir ítrekuð tilmæli íbúa.
„Borgin hefur það alveg í hendi
sér að rífa húsið og senda félaginu
reikninginn. Það hlýtur bara að
vera hægt,“ segir Einar.
Magnús Sædal Svavarsson,
byggingafulltrúi Reykjavíkur-
borgar, segir mál sem tengist
mannvirkjum sem þessum flókin
og ekkert eitt sé hægt að gera til
þess að kippa þeim í liðinn. Verið
sé að beita fyrirtækið Baldursgötu
ehf. dagsektum, sem séu nú komn-
ar í innheimtu. Fyrirtækið sé að
brjóta ákvæði byggingareglugerð-
ar með því að vera með mannvirki
í niðurníðslu. Hins vegar geti yfir-
völd líklega ekki rifið húsið að
óbreyttu.
„Dagsektirnar eru málsmeðferð
sem búið er að samþykkja. En ég
held að [Baldursgata ehf.] sé komið
í gjaldþrotameðferð, sem gerir það
að verkum að veðin á húsinu fær-
ast yfir á lóðina, verði það rifið,“
segir Magnús. „Þá standa fáar
byggingar undir þeim kostnaði
sem því fylgir.“
Gangi eigendur Baldurs-
götu ekki frá dagsektunum á
næstunni fer eignin á uppboð.
„Það er sorgarsaga sem tengist
svona mannvirkjum,“ segir Magn-
ús. „Og það er nú komið að því að
við fáum einhverja niðurstöðu í
þetta mál.“
sunna@frettabladid.is
GENGIÐ 19.04.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,9294
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,50 114,04
185,05 185,95
161,94 162,84
21,712 21,840
20,852 20,974
18,146 18,252
1,3746 1,3826
180,51 181,59
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Þórsgata
Skólavörðustígur
Njálsgata
Bal
dur
sga
ta
Týs
gata
Freyjugata Lokastígur
Nja
rða
rgat
a
Fr
ak
ka
st
íg
ur
Eiríksgata
BALDURSGATA 32
Hallgrím
skirkja
Kort af Þingholtunum í Reykjavík
Baldursgata 32 snýr að mörgum nærliggjandi götum, eins og Freyjugötu
og Þórsgötu. Borgaryfirvöld sendu hundruð aðvörunarbréfa árið 2008
til eigenda húsa sem talin voru í niðurníðslu og hótað var að beita
dagsektum ef ekkert yrði að gert. Fasteignafélagið sem á Baldursgötu
32 hefur verið beitt sektum í tæpt ár, sem eru nú komnar í innheimtu.
SJÁVARÚTVEGUR Samtök íslenskra
fiskimanna harma þá ákvörðun
stjórnvalda að halda fyrirkomulagi
strandveiða óbreyttu á milli ára.
Í ályktun segir að fyrir síðustu
kosningar hafi stjórnarflokkarnir
lofað frjálsum handfæraveiðum og
í þeim anda hafi fjölmargir fjárfest
í bátum og búnaði. Ekkert annað
en gjaldþrot blasir við þessum hópi
fólks vegna blekkinga stjórnmála-
manna, segir í ályktuninni.
Samtökin krefjast þess að stjórn-
völd aflétti nú þegar „ólögmætum
hömlum á handfæraveiðar“ og
segja engin vistfræðileg, hagfræði-
leg eða siðfræðileg rök hníga til
annars. - shá
Samtök íslenskra fiskimanna:
Harma óbreytt
fyrirkomulag
UMHVERFISMÁL Lagt hefur verið
fram lagafrumvarp á Alþingi um
aukinn rétt almennings til þess
að fá upplýsingar í umhverfismál-
um. Tilefnið eru viðbrögð stjórn-
sýslunnar og vandkvæði sem urðu
innan hennar þegar upp kom díox-
ínmengun í nokkrum sorpbrennslu-
stöðvum á Íslandi. Þá varð ljóst að
styrkja þyrfti rétt almennings til
upplýsinga og herða á frumkvæðis-
skyldu stjórnvalda til þess að veita
upplýsingar og vernda almenning.
Flutningsmenn frumvarpsins
eru Ólína Þorvarðardóttir, Mörður
Árnason, Birgitta Jónsdóttir, Skúli
Helgason og
Ó l a f u r Þ ó r
Gunnarsson.
Í kjölfar frétta
um mikla díox-
ínmengun frá
sorpbrennslu-
stöðinni Funa
ákvað umhverf-
isnefnd Alþing-
is að skoða
nánar þá lög-
gjöf um umhverfismál og upplýs-
ingaskyldu stjórnvalda er snýr að
mengunarmálum. Niðurstaðan
varð sú að kveða þurfi skýrar á um
frumkvæðis- og viðbragðsskyldu
stjórnsýslustofnana í íslenskri lög-
gjöf og um rétt almennings til þess
að vernda lífsgæði sín. Þeir laga-
bálkar sem komu sérstaklega til
skoðunar voru lög um aðbúnað, holl-
ustuhætti og öryggi á vinnustöðum,
lög um mengunarvarnir, og lög um
upplýsingarétt um umhverfismál.
Flutningsmenn vonast til þess að
með lagabreytingunum verði staða
almennings gagnvart stjórnvöldum
og skylda stjórnvalda tryggð, sem
og að tryggður verði réttur fólks til
að búa við heilsusamleg skilyrði og
varðveita lífsgæði sín. - shá
Lagafrumvarp lagt fram um rétt fólks til upplýsinga í umhverfismálum:
Réttur almennings aukinn
ÓLÍNA ÞORVARÐ-
ARDÓTTIR
STJÓRNMÁL Félagsfundur VG
á Akranesi skorar á Ásmund
Einar Daðason að segja af sér
þingmennsku þar sem hann
hafi fyrirgert trausti þeirra
sem kusu lista VG í síðustu
kosningum.
Fundurinn harmar að
Ásmundur Einar, Atli Gíslason
og Lilja Mósesdóttir hafi sagt
sig úr þingflokki VG, greitt
atkvæði með vantrauststillögu
á ríkisstjórnina sem VG á aðild
að og stillt sér þar með upp sem
andstæðingar hennar. - bþs
Vinstri græn á Akranesi:
Ásmundur
hætti á þingi
HEILBRIGÐISMÁL Ófremdarástand
ríkir í heilbrigðisumdæmi Suður-
lands vegna fjölda veikra einstak-
linga sem eru á biðlistum eftir
hjúkrunarrýmum. Er þetta álykt-
un samráðsnefndar heilbrigðisum-
dæmis Suðurlands, sem sett var
fram á fundi með rekstraraðilum
hjúkrunarheimila hinn 14. apríl
síðastliðinn.
Á fundinum kom fram að á sama
tíma og þörf íbúa eftir hjúkrunar-
rýmum ykist væri hjúkrunarrým-
um á svæðinu fækkað. Nú væru 27
einstaklingar í bið eftir hjúkrunar-
rýmum í umdæminu. - sv
Nefnd um heilbrigðismál:
Slæmt ástand
á Suðurlandi
Íbúar á Þórsgötu æfir vegna
aðgerðaleysis borgarinnar
Íbúar á Þórsgötu hafa ítrekað sent yfirvöldum bréf vegna Baldursgötu 32, sem hefur staðið auð í sex ár og
brann 2008. Yfirvöld hafa í tæpt ár beitt dagsektum, sem skipta nú milljónum og eru komnar í innheimtu.
a
LÖ
va
va
da
fj
la
he
um
va
hó
me
stæ
frá
ha
og
af
Þ
flo
mis
á re
íha
skr
G
M
i
SKIPULAGSMÁL Ítarleg úttekt var gerð á ástandi húsa í miðborginni árið 2008. Þeir eigendur bygginga þar sem endurbóta var krafist skiptu hundruðum, segir Magn-ús Sædal Svavarsson, bygginga-fulltrúi hjá Reykjavíkurborg.
Húseigendur fengu bréf heim þar sem óskað var eftir því að þeir gengju betur frá húsum sínum, ellegar yrði dagsektum beitt. Engar sektir hafa þó verið sendar út, nú þremur árum síðar, sökum þess ástands sem skall á skömmu eftir úttekt borgarinnar.„Við tókum miðborgina fyrst í gegn, því þar er mjög víða pott-ur brotinn,“ segir Magnús. „Við fórum kerfisbundið yfir svæð-ið og sendum út bréf þess efnis að ef menn sinntu ekki málum, gæti verið gripið til þvingunar-aðgerða í formi dagsekta. En það hefur enn ekki verið tekið á þeim málum.“
Magnús segir að dagsektum verði aldrei skellt á fyrirvara-laust, en hafi ekkert verið aðhafst verði hvert og eitt tilvik metið fyrir sig og tillögur um tíma-frest lagðar fram fyrir viðkom-andi aðila. Eigendur hafi þó and-mælarétt. Ef slíku sé beitt verði málið lagt fyrir borgaryfirvöld. Sé úrskurður yfirvalda sá að eig-andi þurfi að sinna endurbótum á húsi sínu hafi viðkomandi 30 til 40 daga til að sinna málum.
„Ýmsir tóku sig þó til þegar við sendum út bréfin,“ segir Magnús. „En það sem þarf að gerast er að við Íslendingar förum að haga okkur eins og siðaðar þjóðir og halda mannvirkjum okkar við. Við verðum að fara að taka okkur á.“ Páll Hjaltason, formaður skipu-
lagsráðs, segir sífellt verið að vinna í því að bæta ásýnd mið-borgarinnar. Það hafi ekki þótt vænlegt til árangurs að beita dag-sektum í því árferði sem nú er í
samfélaginu, en verið sé að skoða hinar ýmsu leiðir til þess að bæta ástandið.
„Þetta er orðin hálfgerð sorgar-saga,“ segir Páll. „Þessi hús eru mestmegnis í eigu bankanna eða undir vernd þeirra á einn eða annan hátt.“
Páll segir þó vissulega tvinn-ast inn í þetta varanlegri lausnir á skipulagsmálum heldur en ein-faldlega að bæta ásýnd einstakra húsa. Samantekt um eignarhald á húsunum liggi fyrir og verið sé að útfæra hvernig sanngjarnast væri að leysa úr vandanum.
sunna@frettabladid.is
Hundruð bygginga
í miðborg niðurníddSkipulagsnefnd Reykjavíkurbogar sendi hundruð aðvarana til húseigenda árið 2008 vegna niðurníddra bygginga. Hótað var dagsektum ef ekkert yrði að gert. Enginn hefur verið sektaður og segir byggingafulltrúi marga hafa tekið sig á.
RÚSTIR EINAR Baldursgata 32 í Reykjavík er rústir einar eftir mikinn bruna. Ekkert hefur verið aðhafst varðandi endurbætur á húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
PÁLL HJALTASON MAGNÚS SÆDAL
SVAVARSSON
m
Um 2
Um 20
nám í
sinnir
skólum
kennsl
ans í G
mynda
segir í
ME
a mánuði. - þj
G dl
SUÐU
fram
lést
Höfð
veri
unda
Fe
Ferr
meða
álegg
Ferr
Ítalíu
Súk
D
S-
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
23°
22°
18°
23°
25°
14°
14°
20°
22°
20°
21°
XX°
17°
24°
16°
11°Á MORGUN
6-15 m/s
Hvassast SV-til.
FÖSTUDAGUR
5-10 m/s
um allt land.
4
2
0
4
6
7
10
7
5
6
7
8
6
5
4
3
10
11
5
11
70
7
4 5
8
5 6
4
5
9
10
PÁSKASPÁIN Línur
eru farnar að skýr-
ast í páskaspánni.
Það verður lægða-
gangur næstu
daga, suðlægar
áttir með úrkomu
S- og V-til en þó
léttir til inn á milli.
NA-lands verður
besta veðrið, hitinn
allt að 10°C, bjart
með köfl um og
úrkomulítið.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
UMFJÖLLUN FRÉTTABLAÐSINS Í GÆR
Fréttablaðið fjallaði um fjölda bygginga
í miðborg Reykjavíkur í gær sem yfirvöld
töldu svo illa farnar að eigendur voru
skyldaðir til þess að gera endurbætur.
Lítið hefur þó gerst síðan 2008 þegar
aðvaranirnar voru sendar út. Afar fáum
dagsektum hefur verið beitt.
Ranglega var sagt í Fréttablaðinu í
gær að húsvörður í Háskólabíói hefði
verið ákærður fyrir að slá eign sinni
á farsíma sem tapaðist í húsnæði
bíósins. Hið rétta er að starfsmaður-
inn var almennur starfsmaður, ekki
húsvörður.
LEIÐRÉTTING