Fréttablaðið - 20.04.2011, Side 30
MARKAÐURINN20. APRÍL 2011 MIÐVIKUDAGUR4
Ú T T E K T
F
leiri komu á vegum ís-
lenskra stjórnvalda á
vorfund Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins (AGS) og
Alþjóðabankans í Wash-
ington D.C. um nýliðna helgi en
alla jafna koma frá stjórnvöld-
um annarra landa. Yfirleitt koma
ekki nema fjármálaráðherrar eða
seðlabankastjórar með fylgiliði
sínu til að sitja fundi. Frá Íslandi
komu hins vegar bæði Steingrím-
ur J. Sigfússon fjármálaráðherra
og Árni Páll Árnason efnahags-
og viðskiptaráðherra ásamt fylgd-
arliði. Þá kom einnig til fundanna
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðla-
bankastjóri og Jón Sigurgeirsson,
framkvæmdastjóri skrifstofu
bankastjóra Seðlabankans.
Reyndar er það svo að lönd
sem eru með efnahagsáætlun í
samstarfi við AGS senda yfir-
leitt fleiri til funda á stórfund-
um sjóðsins en önnur lönd, enda
er umfang samstarfsins held-
ur meira en hjá hinum. Þá hefur
orðið sú skipulagsbreyting í sam-
starfi Íslands og AGS að forræði
samskiptanna hefur færst frá
fjármálaráðuneytinu og yfir í
efnahags- og viðskiptaráðuneytið.
Þá herma heimildir blaðsins að
innan AGS þyki traustvekjandi að
þjóðir sem eru með efnahagsáætl-
un í gangi í samstarfi við sjóðinn
sendi fleiri til fundar en annars.
Þykir það til marks um að þjóð-
irnar taki verkefni sitt alvarlega
og vilji standa við þær áætlanir
sem fram hafa verið settar um
umbætur.
Enda er það svo að áætlun Ís-
lands hjá AGS þykir afar vel heppn-
uð og jafnvel þannig að hún end-
urspegli breytt viðmót og aðferða-
fræði hjá sjóðnum. Á árum áður
þykir sjóðurinn hafa gert mistök í
stífni við að krefjast niður skurðar
hjá þjóðum í kröggum og eins með
því að vilja alls ekki beita verk-
færum á borð við gjaldeyrishöft.
Þannig hafi ríki mátt þurfa að þola
veikari gjaldmiðil en ella og niður-
skurð af þeirri stærðargráðu að
hamlaði vexti.
Dæmi Íslands er allt annað og
kom fram í samtali blaðsins við
Steingrím J. Sigfússon fjármála-
ráðherra þegar hann var staddur
á vorfundi sjóðsins að AGS væri
áhugasamt um að efnahagsáætl-
unin héldi áfram að ganga vel.
„Þeir líta á farsæl lok áætlunar-
innar sem ákveðna skrautfjöður í
hattinn hjá sér,“ sagði hann.
Núna fer Norðmaður fyrir
kjördæmi Íslands hjá AGS, en
þjóðirnar skiptast á um að veita
því forystu. Þannig var Geir H.
Haarde í forsvari fyrir kjördæm-
ið árin 2001 til 2003. Á fyrsta
fundi í kjördæminu á föstudag
var Steingrímur beðinn að fara
yfir þróun mála hjá Íslandi og
segir að þeirri samantekt hafi
verið afar vel tekið. Framgang-
ur efnahagsáætlunar Íslands hjá
AGS virðist tryggur.
Þó svo að ferð íslenskra ráðamanna
til höfuðstaðs Bandaríkjanna hafi
um margt verið árangursrík, efna-
hagsáætlun landsins hjá AGS gangi
vel, fjármögnun hennar sé tryggð
og stjórnvöld annarra ríkja sýni
skilning á þróun mála varðandi Ice-
save, þá lentu þeir engu að síður í
ótrúlegum hrakningum í ferð sinni.
Segja má að vandræðin hafi
þegar hafist við millilendingu í
New York á leiðinni til Washing-
ton síðasta fimmtudag. Þar varð
nefnilega eftir farangur fjármála-
ráðherra og aðstoðarmanns hans
og varð ekki endurheimtur fyrr en
síðla kvölds í Washington. Öfugt
var farið með fulltrúa Seðlabank-
ans. Farangurinn fór mannlaus til
Washington.
Í HRINGIÐU MÓTMÆLA
Á hótelinu í Georgetown í Washing-
ton varð svo skemmtileg uppákoma
þegar Íslendingarnir biðu lyftunn-
ar sem færa átti hópinn upp á her-
bergi. Þegar dyrnar opnuðust stóð
nefnilega fyrir innan enginn annar
en George Osborne, fjármálaráð-
herra Breta. Að kynningum lokn-
um áttu menn þar smáspjall um
stöðu mála og herma heimildir
blaðsins að vel hafi farið á með
mönnum.
Í Washington var svo mikill ör-
yggisviðbúnaður vegna þess heims-
H R A K F A R I R Í S L E N S K
Á FUNDARSTAÐ
Ys og þys í nýrri
skrifstofubyggingu
Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins í
Washington.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
VIÐ UPPHAF VORFUNDARINS 14. APRÍL SÍÐASTLIÐINN John Lipsky, aðstoðarframkvæmdastjóri AGS, og Dominique Strauss-
Khan, framkvæmdastjóri sjóðsins, svara spurningum blaðamanna í höfuðstöðvum AGS í Washington í Bandaríkjunum áður en þar hófst
vorfundur AGS og Alþjóðabankans í síðustu viku. Fundinum stýrir Caroline Atkinsson, yfirmaður ytri samskipta hjá sjóðnum.
NORDICPHOTOS/AFP
Farsæl endalok efnahagsáætlunar Íslands hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í sumarlok eru talin
geta verið „skrautfjöður” í hatt sjóðsins sem
víða þarf að taka á erfiðum málum. Óli Kristján
Ármannsson sótti heim vorfund sjóðsins og
Alþjóðabankans í Washington í Bandaríkjunum.
Áætlun Íslands til fyrirmyndar
Öflugur greiðendavefur með hagnýtum
upplýsingum s.s.