Fréttablaðið - 20.04.2011, Síða 36

Fréttablaðið - 20.04.2011, Síða 36
MARKAÐURINN20. APRÍL 2011 MIÐVIKUDAGUR U T A N D A G S K R Á R 4.490 kr. á mánuði í 18 mánuði 500 kr. símnotkun á mán. í 6 mán. fylgir! Staðgreitt: 74.990 kr. Nokia C7 d a g u r & s t e in i Stærstiskemmtista›u r í heimi! Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, MM Selfossi og á Glerártorgi Akureyri | Þjónustuver 519 1919 www.nova.is | m.nova.is | Facebook | Twitter Farsímatilboð Nova gilda með áskrift og frelsi: Mánaðarleg afborgun er greidd með kreditkorti + 250 kr./mán. greiðslugjald. Ekkert mánaðargjald í frelsi en 590 kr. í áskrift og þá fylgir 150 MB netnotkun á mánuði. Tveir snjallir Nokia farsímar hjá Nova! Páskaegg nr. 4 o g 500 kr. símnotk un á mánuði í 6 má nuði fylgir! 5.490 kr. á mánuði í 18 mánuði 500 kr. símnotkun á mán. í 6 mán. fylgir! Staðgreitt: 89.990 kr. Nokia N8 Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing Greinarhöfundur var svo heppinn að komast nýverið út fyrir land- steinana. Í Vesturheimi rambaði hann inn í litla vínbúð og varð furðu lostinn yfir frábæru úr- vali af gæðamaltviskíi. Því varð úr að hann festi kaup á flösku af Glenmorangie Sonn- alta Hálandamaltviskíi á um það bil hálfvirði af því sem ætla mætti að flaskan kost- aði í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Sonnalta er sérútgáfa af tólf ára gömlu maltviskíi frá Glen- morangie sem fyrst leit dags- ins ljós í apríl 2009 og skemmst frá því að segja að þetta er eitt- hvert besta viskí sem undirritað- ur hefur komist í tæri við, og það þó að sopinn sé að mestu laus við móreykskeiminn sem annars ein- kennir það viskí sem honum alla jafna hugnast best. Í 2010 útgáfu viskíbiblíu Jims Murray (Jim Murray‘s Whisky Bible 2010) fær Sonnalta einkunn upp á 96,5 af hundrað mögulegum. „Án nokk- urs vafa hið fullkomna eftir- bragð,“ segir þar og vel óhætt að taka undir þau orð. Sonnalta maltvískíið hefur göngu sína í framleiðsluferlinu eins og hvert annað viskí frá Glenmoran- gie og er látið þrosk- ast í tíu ár í tunnum úr hvítri eik. Síðan er það flutt yfir í tunnur sem áður höfðu að geyma spænskt Pedro Ximé- nes sérrí. Í þeirri vist bætist í sopann dýpt og sæta sem sérríið er heimsfrægt fyrir, án þess þó að keimurinn nái að verða yfirþyrmandi í lokaútgáfunni. Úr verður djúpgullið viskí sem sumir segja hinn fullkomna enda- punkt á góðri máltíð. Aðrir gætu haldið því fram að best væri að vera ekki að blanda áti í málið, heldur láta sopann bara njóta sín. Ilmurinn er sætur og þungur með margslungnum krydduðum keim og segja má að sopinn sé svipað- ur, þó einnig komi þar inn áveð- inn ferskleiki. Eftirbragðið er svo nær endalaust og ótrúlega ríkt og margbreytilegt. Viskíið er margrómað og vann meðal annars til silfurverðlauna í flokki Hálandavískís árið 2009 í alþjóðlegri samkeppni áfengra drykkja (IWSC). Sama ár fékk Sonnalta gullverðlaun í flokki maltvískís í alþjóðasamkeppni brenndra drykkja (ISC). Fyrir þá sem kunna ekki að meta mikinn móreyk í drykkjum sínum, líkt og þann sem ein- kennir Islay-viskí á borð við Laphroaig, hefur Glenmorangie verið vinsæll valkostur. Viskíin sem koma frá brugghúsi Glen- morangie í norðanverðum Há- löndum Skotlands, nærri bænum Tain, eru afar bragðgóð en um leið bragðmikil og með ríkt og gott eftirbragð. Sonnalta er afar vel heppnað tilbrigði við gæða- stef Glenmorangie og að lík- indum í flokki með allra bestu viskíum sem núna eru í sölu. Ríkur sopi og margslunginn „Lykillinn að því að vera ánægður með lífið og finna lífsfyllingu er að veita því athygli hvaða verkum við erum að sinna,“ segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent í stjórnun og leiðtogafræðum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Bók hennar Á réttri hillu kom út fyrir hálfum mánuði og rataði beint á metsölulista. Markmið Árelíu með bókinni er að hjálpa lesendum að rýna í sjálfan sig og finna út frá nokkr- um grunnþáttum hvar hæfileik- ar þeirra liggja. Eftir lestur- inn geta þeir tekið próf og kom- ist að því hvers konar manngerð þeir eru, hvar styrkur þeirra og veikleikar liggja. Manngerðirnar eru sextán talsins og birtir Árelía viðtöl við 32 manns undir nafni sem eiga það sammerkt að hafa fundið þann starfsvettvang sem hentar þeim. Þar á meðal eru nokkrir stjórnendur, prestur, lögreglumaður, húsmóðir og hár- greiðslukona, framkvæmdastjóri hjá fagfjárfestingarsjóði og milli- stjórnendur. „Þetta er rosalega einfalt en öfl- ugt tæki,“ segir Árelía sem hefur eftir einum lesanda að honum fannst bókin erfið. Við nánari at- hugun komst hún að því að bókin hafði ýtt við honum. „Þá varð ég ánægð. Það veitti mér gleði. Það er vinna að komast að því hvað mann langar til að gera,“ segir hún. - jab Bók fyrir þá sem vantar hillu í lífinu Í G L A S I M E Ð Ó L A K R I S T J Á N I MEÐ LYKLANA AÐ LÍFINU Það er vinna að komast að því hvað mann langar til að gera, segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Gunnlaugur Þráinsson, markaðsstjóri olíuverslunar- innar N1 hætti störfum fyrir u m m á nu ð i . H a n n v i l d i ekki tjá sig um málið í samtali við Fréttablaðið að öðru leyti en því að hann hefði sagt upp. Uppsögnin kemur nokkuð á óvart innan auglýsingageirans enda Gunnlaugur með reynd- ari mönnum. Hann var á árum áður einn af eigendum og fram- kvæmdastjóri auglýsingastofunn- ar Gott fólk og er sagður hafa skilað því að N1 hlaut markaðs- verðlaun ÍMARK, félags íslensks markaðsfólks, fyrir tveimur árum. Ekki náðist í Hermann Guð- mundsson þegar eftir því var leitað í gær. Eftir því sem næst verður komist hefur enginn verið ráðinn í stað Gunnlaugs en Katrín Guðjónsdóttir, hægri hönd hans, hefur verið gerð að deildarstjóra markaðsdeildar. Í kringum næstu áramót mun skoðað hvort nýr markaðsstjóri verði ráðinn. - jab Markaðs stjóri farinn frá N1 MARKAÐSVERÐLAUN Hermann Guðmundsson, forstjóri olíuverslunar N1, tók við markaðsverðlaunum ÍMARK árið 2009.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.