Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 48
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR36
Myndlist ★★★
Tilbúningur
Harpa Dögg Kjartansdóttir og
Ragnhildur Jóhannsdóttir
Gallerí Ágúst
Samsettar myndir, fundnar
myndir, gamlar bækur, notaðar
málningardósir. Gripir með fortíð
birtast í umbreyttri mynd á sýn-
ingu þeirra Hörpu Daggar Kjart-
ansdóttur og Ragnhildar Jóhanns-
dóttur sem nú stendur yfir í
Gallerí Ágúst.
Harpa Dögg hefur um nokkurt
skeið unnið fíngerðar klippimynd-
ir, hér setur hún þær meðal ann-
ars fram á bakgrunni úr útflöttum
málningardósum þar sem leifar
málningar lifa enn. Á myndun-
um má sjá gróður og fólk, fíngerð
form, skapa dálítið óræðan ævin-
týraheim. Myndirnar laða áhorf-
andann til sín.
Vinnuaðferðin er bæði gömul
og ný, klippimyndir í sjálfu sér
eiga sér langa sögu og áttu sér
ákveðinn hápunkt hjá súrrealist-
um í Frakklandi í kringum 1920,
ekki síst hjá Max Ernst. Samspil
ólíkra og órökréttra þátta á mynd-
fleti minnir einnig á vinnuaðferð-
ir súrrealista, en útgangspunktur
samtímalistamanns hlýtur þó að
vera annar. Margir kannast við
klippimynd og pennateikningu
Muggs frá 1920, Sjöundi dagur í
Paradís. Myndir Hörpu Daggar
minna á málverk en eru þó hreinar
klippimyndir.
Ragnhildur Jóhannsdóttir notar
einnig vinnuaðferð sem súrreal-
istar og Dadaistar lögðu stund á,
klippir út texta og setur saman á
ný þannig að nýr texti verður til.
Þetta er afar þekkt vinnuaðferð
og hefur birst á margvíslegan
máta í listum á síðustu öld. Ragn-
hildi tekst ágætlega upp, hún nær
að skapa listhlut, objekt, úr klippi-
verkum sínum. Stórt veggverk er
bæði heillandi og fráhrindandi
í senn þar sem magn útklipptra
setninga verður yfirþyrmandi,
offlæði textans óþægilegt, aðfar-
ir listamannsins sem minna á
óhugnanlega krufningu verða þrá-
hyggjukenndar. Verkin sem Ragn-
hildur sýnir hér eru öll unnin með
sömu aðferð.
Á sínum tíma voru vinnuaðferðir
súrrealistanna nýjar af nálinni og
hugmyndafræði þeirra nýstárleg.
Klippimynd Muggs var tiltölulega
einstök, á mörkum myndskreyt-
inga og frjálsrar myndlistar, eins
og mikið af hans list. Krafan um
frumleika tilheyrir liðinni tíð, það
er óþarfi að vera alltaf að finna
upp hjólið og listamönnum að sjálf-
sögðu frjálst að sækja í smiðju lið-
ins tíma og prjóna í kringum það
sem fyrir er. Hér er útkoman
áhugaverð, það er forvitnilegt að
skoða skrúð fíngerðra klippimynda
og lesa texta Ragnhildar. Mikið
lengra ná verkin þó ekki.
Sýningin í Gallerí Ágúst er
falleg, vandlega unnin, vel hugs-
uð. Niðurstaðan mætti þó vera
áleitnari, skilja meira eftir sig. Það
fer þó ekki milli mála að hér eru
hæfileikaríkar listakonur á ferð
sem eiga mikið inni og forvitni-
legt verður að fylgjast með þróun
verka þeirra á næstunni.
Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Heildin er helst til
áferðarfalleg og gæti verið áleitnari.
Engu að síður vönduð og vel unnin
sýning, áhorfandinn nýtur þess að
rýna í smágerðar myndir og lesa ljóð.
Smágerður ævintýraheimur
Meira í leiðinniN1 VERSLANIR WWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
1118 HF377
MUNDO GILL
· Stillanlegt bak
· Stillanleg hæð
· PU áklæði
VERÐ
24.990 KR.
ÞÆGILEGUR
SPARNAÐUR GLÆSILEGIR SKRIFBORÐSSTÓLARÁ ÓTRÚLEGA HAGSTÆÐU VERÐI
1118 HM071
MUNDO ELI
· Stillanleg hæð
· Micro efni
VERÐ
24.990 KR.
1118 HF328
MUNDO BUFFET
· Stillanlegt bak
· Stillanleg hæð
· Ekta leður
VERÐ
29.990 KR.
1118 HF4081
MUNDO FINNSSON
· Stillanlegir
armar og bak
· Stillanleg hæð
· Ekta leður
· Til svartur og hvítur
VERÐ
29.990 KR.
1118 HF394-1A
MUNDO LORENZO
· Stillanlegt bak
· Stillanleg hæð
· Svart leður
VERÐ
34.990 KR.
1118 HF029
MUNDO FREDRIK
· Stillanleg hæð
· Micro fiber
VERÐ
6.990 KR.
TAK-
MAR
KAÐ
MAG
N!
TILVALIN FERMINGAGJÖF
1118 HF384
MUNDO EAGLE
· Stillanlegt bak
· Stillanleg hæð
· Hnakkapúði
· Svart PU-áklæði
VERÐ
22.990 KR.
Hin árlega tónlistarhátíð Músík
í Mývatnssveit verður haldin í
þrettánda sinn á morgun, skírdag,
og föstudaginn langa.
Hátíðin samanstendur af
tvennum tónleikum með ólíkri
efnisskrá. Flytjendur í ár eru
Þóra Einarsdóttir sópran, Einar
Jóhannes son klarinettleikari,
Laufey Sigurðardótir fiðluleikari
og Anna Áslaug Ragnarsdóttir,
sem leikur á píanó og orgel.
Fyrri tónleikarnir verða haldnir
í félagsheimilinu Skjólbrekku á
morgun klukkan 20. Þar verða
meðal annars flutt verk eftir
Händel, Mozart, Schubert og
Stravinskí ásamt innlendum og
erlendum sönglögum.
Síðari tónleikarnir eru í Reykja-
hlíðarkirkju á föstudaginn langa
klukkan 21. Þar tekur tónlistin
mið af deginum og flutt verða verk
eftir Bach og Mozart.
Aðgöngumiðasala verður við
innganginn á hvorum tónleikastað.
Músík í Mývatnssveit
Skrælingjasýningin nefn-
ist ný ljóðabók eftir Krist-
ínu Svövu Tómasdóttur
sem Bjartur gefur út nú í
Dymbilviku.
Þetta er önnur ljóðabók
Kristínar Svövu, en hún
vakti talsverða athygli fyrir
frumraun sína, Blótgælur,
sem kom út fyrir jól 2007.
Var hún meðal annars valin
ljóðabók ársins af starfs-
fólki bókaverslana.
Um Blótgælur sagði gagnrýnandi
Fréttablaðsins meðal annars í fjög-
urra stjarna dómi á sínum tíma:
„Blótgælur Kristínar
Svövu sæta tíðindum, eitur-
sætar rósir í hnappagat
ljóðsins, markviss og mark-
verð frumraun. Þroskuð og
heilsteypt ljóð sem einkenn-
ast af ríkulegri skáldgáfu,
frumlegri og írónískri sýn á
samtímann, og óbilandi trú
á eigið ágæti (hlutverk og
gildi skáldskapar).“
Aprílmánuður hefur
reynst bókaunnendum gjöfull, því
auk bókar Kristínar Svövu koma
út fimm nýjar ljóðabækur á vegum
Uppheima.
Skrælingjasýning
Kristínar Svövu
KRISTÍN SVAVA
TÓMASDÓTTIR
MÚSÍK Í MÝVATNSSVEIT Flytjendur í ár eru Þóra Einarsdóttir, Laufey Sigurðardóttir,
Anna Áslaug Ragnarsdóttir og Einar Jóhannesson.