Fréttablaðið - 20.04.2011, Page 50
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR38
folk@frettabladid.is
Skráðu þig á americanexpress.is
og fáðu tvöfalda Vildarpunkta Icelandair
af allri veltu til 30. apríl!
Páskaglaðningur Icelandair
American Express®
Ása og Jóna Ottesen opna
vefverslunina Lakka-
lakk. Búðin á að sverja
sig í ætt við NastyGal og
Pixiemarket.
„Það má segja að við séum að leita
aftur í ræturnar með að opna búð
en við höfum báðar verið viðloð-
andi þennan verslunar- og tísku-
bransa lengi,“ segir Ása Ottesen,
einn vinsælasti tískubloggari
landsins. Hún ætlar í samvinnu
við systur sína, Jónu, að opna vef-
verslun stútfulla af nýjustu tísku á
næstu dögum.
Ása hefur löngum staðið vakt-
ina í tískuverslunum bæjarins og
nú síðast í Gyllta kettinum þar sem
hún starfaði sem verslunarstjóri
og stílisti í nokkur ár. Jóna hefur
einnig verið með annan fótinn í
verslunarbransanum en hún er nú
búsett í New York og hefur séð um
flestöll innkaup fyrir búðina. „Jóna
átti hugmyndina að þessu öllu
saman og hefur verið að þeysast
um New York til að finna falleg föt
og ýmsa fylgihluti. Við höfum fulla
trú á því að það sé markaður fyrir
flotta vefverslun á Íslandi,“ segir
Ása en fyrirmyndin fyrir búðinni
eru vefbúðir á borð við NastyGal
og Pixiemarket sem tískusinnaðir
Íslendingar ættu að kannast við.
Búð þeirra systra hefur fengið
nafnið Lakkalakk en það liggur
skemmtileg saga á bak við nafn-
ið. „Litla systir okkar var alltaf að
biðja okkur um að naglalakka sig
þegar hún var lítil nema hún sagði
lakkalakk í staðinn fyrir nagla-
lakk. Þetta nafn er því okkur kært
og passar vel að okkar mati,“ segir
Ása en vefurinn lakkalakk.com
verður ekki bara sölusíða heldur
ætla systurnar að halda úti tísku-
bloggi og gera reglulega mynda-
þætti og vídeó með nýjustu vör-
unum. Nú þegar má fá smá forskot
fyrir opnunina á Facebook-síðu
Lakkalakk.
En er ekkert mál að opna búð?
„Jú, það er sko mikið mál. Við
eigum sem betur fer góða að sem
hafa trú á okkur,” segir Ása og
bætir við að fyrsta sendingin hafi
verið að koma í hús og að fatnaður-
inn líti vel út. „Mig klæjar í puttana
að fá mér eitthvað sjálf en við pönt-
uðum bara nokkur stykki af hverri
flík til að byrja með og því verð ég
að sitja á mér svo það verði eitthvað
til fyrir viðskiptavinina,“ segir Ása
og telur niður í opnun síðunnar
lakkalakk.com 20. maí.
alfrun@frettabladid.is
Tískusystur opna vefverslun
OPNA VERSLUN Systurnar Ása og Jóna Ottesen opna nýja vefverslun á næstu dögum. Verslunin hefur fengið nafnið Lakkalakk.
Leikkonan Kate Winslet segist
í viðtali við breska blaðið Hello
varla geta sest niður og slappað
af án þess að fá samviskubit.
Winslet er tveggja barna ein-
stæð móðir og segist hafa látið
sjálfa sig sitja á hakanum síðan
hún varð móðir. „Ég var búin að
gleyma því hvernig það var að
setjast niður og lesa eða bara til
að slappa af. Það er nóg um verk-
efni heima fyrir sem ég get frek-
ar afgreitt en nú verð ég að skipa
sjálfri mér að slappa af nokkrum
sinnum á dag,“ segir Winslet,
sem skildi við leikstjórann Sam
Mendes fyrir ári.
Stöðugt
samviskubit
NÓG AÐ GERA Kate Winslet viðurkennir
að henni gangi ekki vel að slappa af
heima fyrir og fái samviskubit þegar hún
loks láti af því verða. NORDICPHOTOS/GETTY
Feðgarnir Óskar og Pan Thor-
arensen sem skipa rafdúettinn
Stereo Hypnosis spila á tón-
listarhátíð í borginni Vilníus í
Litháen 28. apríl. Hátíðin nefnist
Jauna Muzika og er stærsta raf-
tónlistarhátíð Eystrasaltsríkj-
anna. Þetta verður í fyrsta sinn
sem þeir feðgar spila í Litháen
en fyrir tveimur árum stigu þeir
á svið í Eistlandi, Lettlandi og í
Rússlandi. Síðasta sumar spiluðu
þeir svo á þrennum tónleikum í
Flórens á Ítalíu. Tvær EP-plötur
eru væntanlegar frá Stereo Hyp-
nosis á árinu. Önnur var tekin
upp í Toscana-héraði á Ítalíu árið
2009 en hin á Hellissandi fyrir
ári.
Feðgar spila
í Litháen
Jóna átti hugmyndina að þessu öllu saman og hefur
verið að þeysast um New York til að finna falleg föt og
ýmsa fylgihluti. Við höfum fulla trú á því að það sé markaður
fyrir flotta vefverslun á Íslandi.
ÁSA OTTESEN
VERSLUNAREIGANDI
Ofurfyrirsætan Cindy Crawford
telur fyrirsætubransann hafa
breyst mikið frá því hún var á
hátindi ferils síns. „Bransinn
hefur breyst mikið. Ég
sá CoverGirl aug-
lýsingu með Taylor
Swift og hugsaði
með mér: „Vá, það
er mun erfiðara
fyrir fyrirsætur
að verða sér úti
um vinnu í dag.
Þú verður að
geta dansað og
sungið ofan á
allt annað.“
Þegar ég var
uppi á mitt
besta þótti
eðlilegt að
vera í fata-
stærð sex, núna
þykir eðlilegt að
vera í stærð tvö.“
Breyttur
bransi
Hljómsveitin Hvanndalsbræður
og söngvarinn Magni Ásgeirsson
hafa sent frá sér lagið Frjáls.
Tvíeykið hefur unnið töluvert
saman að undanförnu og þótti
þeim tími kominn á að gefa út lag
saman. Hvanndalsbræður hafa
verið starfandi í níu ár og gáfu á
síðasta ári út sína fimmtu plötu,
sem fékk fínar viðtökur. Hljóm-
sveitin hefur í nógu að snúast um
páskana því fram undan eru böll
á Græna hattinum, Spot, Loga-
landi og í Gamla kaupfélaginu á
Akranesi.
Gefa saman
út lagið Frjáls
NÝTT LAG Hvanndalsbræður og Magni
hafa gefið út lagið Frjáls.
HISSA Fyrirsætan
Cindy Crawford segir
fyrirsætubransann
hafa breyst mikið á
síðustu árum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ástralska fyrirsætan Miranda Kerr
fyllir 28 árin í dag. 28