Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 58
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR46 HANDBOLTI Landsliðsmarkvörð- urinn Hreiðar Levý Guðmunds- son mun líklega hafa vistaskipti í sumar en samningur hans við þýska B-deildarfélagið Emsdetten rennur þá út. Félagið hefur ekkert rætt við Hreiðar um nýjan samn- ing og því er hann farinn að líta í kringum sig. „Það eru margir leikmenn að renna út á samningi hjá félaginu en þeir vilja ekkert ræða málin fyrr en í sumar,“ segir Hreiðar Levý en útskýringin á því er lík- lega sú að félagið veit ekki fyrr en í sumar hver rekstrargrundvöll- urinn verður fyrir næsta vetur. Markvörðurinn hefur ekki hug á því að bíða endalaust eftir tilboði frá félaginu. „Framtíðin er óráðin hjá mér en það eru þreifingar víða. Ég hef fengið fyrirspurnir frá liðum í Þýskalandi, Danmörku og Noregi og svo kom eitt óvænt frá Hvíta- Rússlandi frá liði sem Gintaras Savykunas er að þjálfa,“ sagði Hreiðar og bætti við að eitthvað mikið þyrfti að gerast til að hann tæki tilboði frá Hvíta-Rússlandi. „Það er mjög líklegt að ég fari frá Emsdetten og ég er að skoða mín mál í rólegheitum. Það þarf að vega og meta öll tilboð sem koma. Þetta hefur gengið hægt síðustu vikur en virðist vera að taka smá kipp núna,“ sagði Hreið- ar, sem vill eðlilega ganga frá sínum málum sem fyrst. „Ég þarf að losa íbúðina mína hér 1. júní og það væri óneitan- lega skemmtilegra að vita hvert ég ætti að fara í kjölfarið,“ sagði Hreiðar kíminn. Hjá Emsdetten eru einnig þeir Fannar Þór Friðgeirsson og Sig- fús Sigurðsson. Patrekur Jóhann- esson þjálfar liðið en hann hefur lýst því yfir að hann sé á leið heim. - hbg Hreiðar Levý er líklega á förum frá Emsdetten: Hreiðar með tilboð frá liði í Hvíta-Rússlandi ÁHUGI VÍÐA Félög víða í Evrópu hafa sýnt Hreiðari Levý áhuga. Hann er hér í leik með Emsdetten. Enska úrvalsdeildin: Newcastle-Man. Utd 0-0 STAÐAN: ManUnited 33 20 10 3 70-32 70 Arsenal 32 18 9 5 63-31 63 Chelsea 32 18 7 7 58-26 61 Man City 32 16 8 8 50-30 56 Tottenham 31 14 11 6 44-36 53 Liverpool 33 14 7 12 46-39 49 Everton 33 11 14 8 47-41 47 Bolton 32 11 10 11 46-43 43 Aston Villa 33 10 10 13 42-54 40 Newcastle 33 10 10 13 48-47 40 WBA 33 10 9 14 47-62 39 Fulham 32 8 14 10 36-35 38 Stoke City 32 11 5 16 39-42 38 Birmingham 32 8 14 10 33-43 38 Sunderland 33 9 11 13 35-47 38 Blackburn 33 9 8 16 40-54 35 Wigan 33 7 13 13 32-53 34 Blackpool 33 9 6 18 47-69 33 West Ham 33 7 11 15 39-58 32 Wolves 32 9 5 18 36-56 32 ÚRSLIT FÓTBOLTI Þýska úrvalsdeildar- félagið Hoffenheim hefur ráðið sér nýjan þjálfara því Holger Stanislawski mun hætta með St. Pauli og tekur þess í stað við liði Hoffenheim í sumar. Nú er að sjá hvort hinn 41 árs gamli Stanislawski gefi Gylfa Þór Sigurðssyni fleiri tækifæri en núverandi þjálfari liðsins. Stanislawski hefur stýrt St. Pauli frá 2006, en hann lék á sínum tíma 257 leiki fyrir félagið og var þá í stöðu varnarmanns. Marco Pezzaiuoli tók við Hoffenheim á miðju tímabili þegar Ralf Rangnick hætti með liðið en Rangnick hefur síðan tekið við liði Schalke. - óój Gylfi og félagar í Hoffenheim: Fá nýjan þjálf- ara í sumar Við vitum sem er að dagblað á að vera skemmtilegt og upplýsandi. Það á að veita innsýn í líf fólks og varpa ljósi á atburði sem skipta okkur máli. Við hlustum á raddir lesenda og erum lifandi vettvangur fyrir skoðanaskipti. Allt sem þú þarft... Yfirburðir Fréttablaðsins á dagblaðamarkaði staðfestir Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Janúar til mars 2011, meðallestur á tölublað 18–49 ára. DV: 11% – Fréttatíminn: 49% Fr ét ta bl að ið HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 72% M or gu nb la ði ð 29% DV: 10% – Fréttatíminn: 37% ALLT LANDIÐ 60% 26% Fr ét ta bl að ið M or gu nb la ði ð Fréttablaðið og Morgunblaðið kemur út sex daga vikunnar, á meðan DV kemur út þrisvar í viku og Fréttatíminn einu sinni. FÓTBOLTI Arsenal er aftur komið á fullt í toppbaráttu ensku úrvals- deildarinnar eftir að Man. Utd missteig sig í Newcastle. Þetta voru önnur vonbrigði fyrir lið Man. Utd á nokkrum dögum því liðið tapaði fyrir Man. City í undanúrslitum ensku bikarkeppn- innar um síðustu helgi. Forskot Man. Utd á toppnum er nú sjö stig en liðið hefur leik- ið einum leik meira en Arsenal. Vinni Arsenal leikinn sem það á inni verður munurinn aðeins fjög- ur stig og enn fimm leikir eftir í deildinni. Fyrri hálfleikur var virkilega líflegur og byrjaði með látum. Það voru tæpar tvær mínútur liðnar af leiknum þegar Wayne Rooney átti magnaða sendingu inn í teiginn á Javier Hernandez sem var í opnu færi. Tim Krul, markvörður New- castle, átti aftur á móti frábært úthlaup og varði skot Hernandez. Heimamenn í Newcastle báru enga virðingu fyrir toppliðinu og sóttu af nokkrum krafti. Þeir gerðu United oft lífið leitt með snörpum sóknum og það var nokk- uð að gera hjá hinum aldna Edwin van der Sar í marki Man. Utd. Bæði lið áttu sína spretti en þrátt fyrir það var ekkert skorað í fyrri hálfleiknum. Man. Utd herti róðurinn nokk- uð í síðari hálfleik og pressan að marki Newcastle þyngdist eftir því sem leið á hálfleikinn. Rúmum 20 mínútum fyrir leiks- lok fékk Ryan Giggs algjört dauða- færi. Fékk boltann einn og óvald- aður í miðjum teig Newcastle en skot hans fór fram hjá markinu. Þar fór Giggs illa með úrvalsfæri til þess að koma United yfir. Það var alveg sama hvað Man. Utd reyndi, boltinn vildi ekki í netið. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, skipti bæði Antonio Valencia og Michael Owen inn af bekknum en allt kom fyrir ekki. Gestirnir vildu fá víti í lokin þegar Danny Simpson virtist brjóta á Hernandez. Líklegast var rétt hjá dómaranum að flauta ekki. „Mér fannst ég ekki koma við hann. Ég fann ekki fyrir neinni snertingu. Mér fannst hann fara auðveldlega niður,“ sagði Simpson um atvikið en Ferguson sagði það vera hneyksli hjá dómaranum að gefa Hernandez spjald. „Þetta var klárt víti og móðgun hjá dómaranum að spjalda hann. Dómarinn átti góðan dag en olli sjálfum sér vonbrigðum með þessu spjaldi,“ sagði Ferguson pirraður. „Newcastle spilaði annars vel í þessum leik og gerði okkur erf- itt fyrir. Við komum okkur í fínar stöður en náðum ekki að láta markvörðinn þeirra hafa fyrir hlutunum. Ég held við séum samt í fínni stöðu enda einum leik færra eftir.“ Alan Pardew, stjóri Newcastle, sagði dómarann hafa gert rétt með því að dæma ekki víti. „Danny setti fótinn út sem er alltaf hættu- legt. Hann snerti samt ekki Hern- andez sem lét sig falla. Ég tek ofan fyrir dómaranum að falla ekki í gildruna því þetta var ekki auðveld ákvörðun,“ sagði Pardew. henry@frettabladid.is Newcastle kveikti von fyrir Arsenal Man. Utd varð af mikilvægum stigum í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í gær er liðið gerði marka- laust jafntefli gegn Newcastle á útivelli. Þrátt fyrir mikla pressu tókst Man. Utd ekki að skora í leiknum. RÁÐALAUS Ryan Giggs og félagar í Man. Utd náðu ekki að koma inn marki hjá Newcastle í gær og opnuðu toppbaráttuna upp á gátt í leiðinni. United vildi fá víti í lokin en fékk ekki frá dómaranum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.