Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.06.2011, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 18.06.2011, Qupperneq 10
10 18. júní 2011 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR ums.is SÍÐASTI DAGUR FYRIR GREIÐSLUSKJÓL NÝRRA UMSÓKNA UM GREIÐSLUAÐLÖGUN ER 30. JÚNÍ 2011 Standmynd Jóns Sigurðs-sonar forseta á Austurvelli er dagleg áminning um að við eigum þjóðhetju. Það er góður vitnisburður um þjóð- rækni Íslendinga að minnast þess með margvíslegu móti og myndar- skap að tvö hundruð ár eru nú frá fæðingu hans. Nokkrum skrefum vestan við Austurvöll er standmynd Skúla Magnússonar landfógeta. Í des- ember verða þrjú hundruð ár frá fæðingu hans. Engar spurnir eru af því að þeirra merku tímamóta verði minnst með þeim hætti sem efni standa til. Fyrir hundrað árum þótti við- eigandi að minnast fæðingar- daga beggja þessara höfuð- forvígismanna endurreisnar Íslands á átj- ándu og nítj- ándu öld. Báðir skildu þeir að verslunarfrelsið var lykillinn að framförum. Fyrir baráttu Skúla fógeta varð verslun- in frjáls öllum þegnum Dana- konungs. Fyrir baráttu Jóns for- seta varð verslunin alfrjáls við allar þjóðir. Í tilefni þessara tveggja tíma- mótadaga fyrir heilli öld þótti mönnum rétt og skylt að gera meir úr verslunarfrelsinu en nú virðist vera. Á því minningar- ári frelsisforkólfanna sýndist sumum það vera svolítil þversögn að Alþingi taldi þá rétt að kanna hvort tiltækilegt væri að auka tekjur ríkissjóðs með því að gera innflutning á kolum, steinolíu og tóbaki háðan einkarétti. Sams konar þverstæða birtist nú í því að Alþingi frestaði í sátt og samlyndi fyrir rúmri viku að ákveða með lögum hvernig inn- leiða á frjálsa verslun með gjald- eyri að nýju. Ástæðan var tíma- skortur fyrir frelsishátíðina sem var í vændum. Sá kaldi pólitíski veruleiki má vel heita „súrra sifja þorri“ svo notað sé tungutak Egg- erts Ólafssonar um sambúðartíma þjóðar og einokunar. „Súrra sifja þorri“ Ógerningur er að geta sér til um á hvern veg liðn-ar frelsishetjur hefðu litið á mál samtímans ef þær væru nú uppi. Í gegnum tíðina hafa menn þó brugðið nafni Jóns forseta fyrir sig í margvíslegum tilgangi. Svo kynlegt sem það er notuðu menn jafnvel nafn hans sem sverð og skjöld í baráttu gegn þátttöku Íslands í Fríverslunar- samtökum Evrópu. Framhjá þeirri staðreynd verð- ur ekki litið nú að sá skuggi fell- ur á hátíðahöldin að frelsi fólks og fyrirtækja til þess að eiga óhindruð viðskipti í gjaldgengri mynt er verulega takmarkað. Upplausn gjaldeyrishaftanna er grundvallar mál. Þau takmarka framfarasókn þjóðarinnar eftir sömu lögmálum og þeir verslunar- fjötrar sem Skúli fógeti og Jón for- seti áttu stærstan þátt í að leysa. Eftir hrun gjaldmiðilsins varð ekki umflúið að grípa til tíma- bundinna ráðstafana af þessu tagi. Og viðurkenna verður að lausnin er ekki einfalt úrlausnarefni. Til- raunir eru að sönnu hafnar með aðgerðir sem hugsaðar eru til að auðvelda afnám þessarar frelsis- skerðingar. Það er lofsvert. Áhyggjuefnið er hins vegar að hvorki ríkisstjórnin né stjórnar- andstöðuflokkarnir hafa sýnt fram á með sannfærandi hætti að samstaða geti orðið um heild- stæða efnahagsstefnu sem gerir þetta mögulegt í raun og veru og þannig að hald sé í til frambúðar. Það sem verra er: Hvorug fylking- in á Alþingi hefur lagt fyrir þjóð- ina sannfærandi áætlanir um að hún geti byggt verslun sína og við- skipti við aðrar þjóðir á stöðugri og gjaldgengri mynt jafnvel þó að höftunum yrði aflétt. Skugginn á frelsishátíðinni Hátíðarræður á minn-ingar dögum þessa árs hafa sannarlega mikið gildi. Hitt skiptir þó öllu meira máli að menn geri sér grein fyrir að frelsisbaráttan er ævarandi. Hún er ekki föst í því fari sem Jón forseti skildi við hana og því síður í því fari sem Skúli fógeti hvarf frá. Allt skipu- lag verslunar og viðskipta og sam- starfs við aðrar þjóðir þarf að ráðast af alþjóðlegu umhverfi og þörfum hvers tíma. Frelsi fólksins til viðskipta sín á milli og við aðrar þjóðir er enn sem fyrr forsenda framfara. Nútíminn kallar hins vegar á meiri sam- vinnu þjóða til þess að viðskipti geti gengið jafn greiðlega og fram- farakröfurnar kalla á. Í þessu ljósi er það dapurleg staðreynd að lögeyrir Íslendinga er nú ótrú- verðugri undirstaða í milliríkja- viðskiptum en þeir höfðu á fyrstu áratugum verslunarfrelsisins. Vel fór á því að stofna á hátíðar- fundi Alþingis háskólastöðu til að stýra ráðstefnum í tengslum við fæðingar stað Jóns forseta á Hrafnseyri. Hitt væri þó stærra í sniðum ef forystumenn Alþingis gætu á afmælisárinu sameinast um trúverðuga stefnu sem leyst gæti verslunarfjötrana af fólkinu og tryggt landinu viðskipta umhverfi þar sem það stendur jafnfætis helstu samkeppnis þjóðunum bæði í Evrópu og í öðrum álfum. Því frelsi fólksins má ekki gleyma á þessu ári. Velsældin og velferðin velta á því. Frelsi fólksins S kýrsla hóps hagfræðinga, sem Jón Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra valdi sjálfur til að greina áhrif frumvarps síns um breytingar á fiskveiðistjórnuninni á hag sjávarútvegsins, er samfelldur áfellisdómur yfir málinu. Hagfræðingahópurinn tekur undir nánast öll atriði í þeirri gagnrýni sem þegar hefur komið fram á frumvarpið – og gott betur. Hann rífur mála- tilbúnað sjávarútvegsráðherrans niður þannig að þar stendur ekki steinn yfir steini. Það eina jákvæða í umsögn hagfræðinganna um stóra frum- varpið svokallaða, sem felur í sér heildarendurskoðun á fisk- veiðistjórnuninni, er að hækkun auðlindagjalds sé innan hóflegra marka – ef hún sé skoðuð einangrað. Sé hún hins vegar sett í sam- hengi við önnur ákvæði frumvarpsins sé hún of mikil. Sé vegið að möguleikum sjávarútvegsins til hagræðingar og langtíma- hagkvæmni skerði það afraksturinn af auðlindinni og þar með getu sjávarútvegsins til að standa undir gjaldtökunni. Mörg önnur ákvæði frumvarpsins telja hagfræðingarnir ein- mitt ganga gegn hagræðingu og langtímahagkvæmni í greininni. Þeir gagnrýna þannig of skamman gildistíma nýtingarsamninga útgerðarinnar og óvissu um hvað taki við. Þeir segja strandveiðar óhagkvæmar og hvetja til brottkasts. Með byggðakvóta sé lagt á sjávarútveginn, einn atvinnugreina, að koma til móts við byggða- vanda í stað þess að mæta honum með öðrum leiðum. Geðþóttavald sjávarútvegsráðherra um úthlutun úr kvótapottum sé líklegt til að leiða til sóunar. Útleiga á kvóta muni skerða afkomu útgerða sem fyrir eru og vegna ákvæða um leigu til eingöngu árs í senn verði mjög erfitt að fjármagna fjárfestingar í bátum og búnaði. Bann við veðsetningu aflaheimilda segja hagfræðingarnir að dragi úr fjárfestingargetu og tækniþróun greinarinnar og það sé beinlínis fjandsamlegt nýliðun, vegna þess að eingöngu fjársterkir aðilar geti þá fjármagnað kaup á útgerð í rekstri. Takmarkanir á framsali kvóta grafi undan því grundvallaratriði aflamarkskerfisins að viðskipti með aflaheimildir grisji úr þá aðila sem síður standa sig í veiðum og hleypi þeim að sem standa betur að vígi. Hagfræðingarnir mæla eindregið gegn þessum takmörkunum. Þess má sjá stað í fréttatilkynningunni sem Jón Bjarnason sendi út um álit hagfræðinganna að hann ætlar að reyna að komast hjá að taka mark á því. Hann segir að það sé „pólitísk ákvörðun, en ekki eingöngu hagfræðileg“ hvernig staðið sé að fiskveiðistjórnuninni. Sjávarútvegsráðherra og þeir í stjórnarliðinu sem geta talizt búa yfir sæmilegri skynsemi geta hins vegar engan veginn leyft sér að hunza þetta álit. Aukið jafnræði og réttlæti í sjávarútvegi má ekki kaupa því verði að setja afkomu greinarinnar í uppnám og þar með eina af undirstöðum íslenzks efnahagslífs. Ríkisstjórnin hét því við gerð kjarasamninga að skapa sjávar- útveginum góð rekstrarskilyrði. Miðað við skýrslu hagfræðinga- hópsins er sú forsenda samninga til þriggja ára algerlega brostin. Ríkisstjórnin á engan annan kost en að taka málið upp í heild sinni og hverfa frá því efnahagslega glapræði, sem felst í fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnuninni. Hagfræðinganefnd rífur niður kvótafrumvarpið: Ekki steinn yfir steini
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.