Fréttablaðið - 18.06.2011, Síða 56
18. júní 2011 LAUGARDAGUR28
krakkar@frettabladid.is
28
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Flestir krakkar eru nú þegar byrjaðir að nýta
góða veðrið í útileiki eða þá rigningardaga
í skemmtilega innileiki. Einn af fjörugri úti-
leikjum, sem krökkum á öllum aldri finnst
skemmtilegur, er stórfiskaleikur. Stórfiskaleikur
er einfaldur eltingaleikur en til að fara í hann
þarf stórt svæði, helst grasflöt, sem hægt er að
hlaupa endanna á milli.
Í upphafi er einn valinn, svokallaður hákarl, til
að standa á miðjum velli en aðrir, litlu fisk-
arnir, standa á öðrum enda vallarins, tilbúnir
að hlaupa þegar hákarlinn gefur merki. Þegar
merki er gefið hefst hlaupið, sem snýst um að
litlu fiskarnir reyna að hlaupa yfir á hinn enda
vallarins án þess að sá sem eltir nái að klukka
þá. Ef það gerist hins vegar snýst hlutverk litlu
fiskanna við og þeir eiga að hjálpa hákarlinum
að elta þá sem eftir eru.
Ef leikmenn ná að hlaupa alla leið yfir völlinn
án þess að vera klukkaðir eru þeir stikkfrí
þangað til aftur er gefið merki um að hlaupa
til baka og þannig gengur leikurinn – hlaupið
er endanna á milli uns aðeins einn lítill fiskur
stendur eftir.
Hvers konar nafn er Níels Thi-
baud Girerd? Ég er hálfur
Frakki þar sem pabbi er Frakki
og Girerd er fjölskyldunafnið.
Foreldrum mínum þótti Thibaud
hins vegar bara töff. Ég gúggl-
aði nafnið og þá reyndist þetta
vera franskur musterisriddari
frá 13. öld. Svo er til dagur heil-
ags Thibaud, það er 8. júli, þann-
ig að það er bara gleði.
Talarðu þá frönsku? Ekki eitt
orð. Sem er einnig töff, fer bara
eftir því hvernig þú lítur á það.
Hvernig er að vera með eigin
sjónvarpsþátt? Gaman, sérstak-
lega ef maður veit að fólk
hefur gaman af honum.
Dreymdi þig um að
verða skemmti-
kraftur? Ég
get nú ekki
sagt það.
Frá því ég
man eftir mér
hefur draumur-
inn aðallega verið
að leikstýra.
Áttu þér einhver
átrúnaðargoð? Charlie
Chaplin og svo get ég ekki
gert upp á milli Páls Óskars og
Ragga Bjarna, en ég hef tekið
viðtal við báða.
Hver er skemmtilegasti við-
mælandinn sem þú hefur
fengið? Kristján Jóhannsson
stórtenór vegna þess að við elsk-
um báðir óperusöng, þrátt fyrir
mun á hæfileikum.
Færðu aldrei sviðsskrekk?
Þú getur rétt ímyndað þér. Til
dæmis þegar ég spila á tónleik-
um í grunnskólum.
Þú talar mikið um mömmu
þína í þættinum þínum? Eruð
þið góðir vinir? Ég og mamma
erum mjög góðir vinir. Eða eins
og besti vinur minn Tómasi
Gauti segir: „Þið eruð steiktustu
mæðgin sem ég hef á ævinni
kynnst!“
Ertu í skóla? Ég geng í Mennta-
skólann við Hamrahlíð. Á það
samt til að hjóla. Djók, þetta var
ömurlegur brandari.
Hver eru helstu áhugamálin?
Leikhús. Við mamma eigum kort
og förum ævinlega á frumsýn-
ingarnar í Þjóðleikhúsinu. Svo
horfi ég á gamlar kvikmyndir,
Sound of Music, Singing in the
Rain og fleiri. Mér finnst líka
fátt betra en að hanga í góðra
vina hópi.
Hvað ertu lengi að greiða þér?
Metið mitt er 20 mínútur, það
var reyndar bara einu sinni. Í
dag greiði ég mér nú ekkert sér-
staklega mikið. Mér finnst töff
að vera með úfið hár sko.
Nú ætlarðu í hringferð um land-
ið að taka upp efni fyrir þáttinn.
Hefurðu ferðast mikið innan-
lands?
Ég hef ferðast vítt og breitt um
Suðurland. Starfaði nefnilega á
ferðaskrifstofunni Reykjavík
Excursion Kynnisferðir síðustu
fimm sumur. Svæðið undir Eyja-
fjöllum er í mestu uppáhaldi.
Verða nýju þættirnir öðru-
vísi? Kannski ekki
frábrugðnir, nema
hvað v iðmæl-
endurnir verða
bændur en ekki
frægt fólk.
Ætlarðu svo að
halda áfram í
skemmtana-
bransanum
eða snúa þér
að öðru þegar
þú eldist? Mig
langaði að
verða lækn-
ir eins og afi
minn þegar ég
var sjö ára. Þá
spurði mamma
mig spurning-
ar sem ég gleymi
aldrei: „Níels minn,
hvort mundi þig langa
til að skemmta fólki
eða bjarga því?“
Niður staðan varð
sú að mig langaði til
að skemmta fólki og
vona að ég geri það
um ókomna tíð, sama
með hvaða hætti það
verður.
HEITIR EFTIR RIDDARA
Nilla dreymdi eitt sinn um að verða læknir en ætlar nú að gerast leikstjóri.
Gamlar kvikmyndir, leikhúsferðir og hangs með vinunum er í mestu uppáhaldi.
„Pabbi, pabbi,“ kallar ungur
sonur til föður síns. „Hvað
kostar brúðkaup?“
„Ég veit það ekki,“ segir faðir-
inn. „Ég er enn að borga fyrir
það“.
Skjaldbaka er á ferðinni í New
York þegar gengi af sniglum
rænir hana. Lögreglan mætir á
staðinn til að rannsaka málið
og spyr skjaldbökuna hvað
hafi gerst. „Ég veit það ekki,
svarar skjaldbakan. „Þetta
gerðist allt svo hratt.“
Faðir, við son sinn: „Nonni
minn, hvað ertu að gera með
þessa mýflugu?“
Nonni litli: „Ég ætla að gefa
mömmu hana.“
Faðir: „Af hverju í
ósköpunum?“
Nonni litli: „Nú, þú segir að
hún geri alltaf úlfalda úr
mýflugu!“
Skemmtilegur leikur í sumar
...mig langaði
til að skemmta
fólki og vona að ég
geri það um ókomna
tíð, sama með hvaða
hætti það verður.“
FRÓÐLEIKUR Slóðin http://namsgagnastofnun.is/krakka-
sidur/ hefur að geyma tengla fyrir fróðleiksþyrsta krakka.
Við þökkum öllum sem komu með tillögur að nafni á
skvettulegu kúna kærlega fyrir þátttökuna.
Skvetta skal hún heita
www.ms.is
24
Bragi Halldórsson