Fréttablaðið - 24.06.2011, Page 2
24. júní 2011 FÖSTUDAGUR2
Guðrún, ertu að lyfta þér á
hærra plan?
„Já, þá sjaldan maður lyftir sér upp.“
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir hefur verið
meðal bestu körfuknattleikskvenna
landsins undanfarin ár. Hún hefur nú
ákveðið að hætta í körfubolta og einbeita
sér að kraftlyftingum.
ORKUVEITAN Allt umfram kjarna-
starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) verður skorið utan af fyrir-
tækinu og selt. Aðeins verður eftir
veitustarfsemi og allt sem ekki
skilar tekjum verður lagt af, sam-
kvæmt Bjarna Bjarnasyni, for-
stjóra OR.
Fyrirtækið hélt aðalfund í gær
og þar voru frekari aðhaldsað-
gerðir, sem boðaðar voru í mars,
kynntar. Starfsfólki verður fækkað
um 90 og fjöldi eigna verður seldur,
þar með talið Perlan og höfuðstöðv-
arnar að Bæjarhálsi 1.
Bjarni segir engar ákvarðanir
hafa verið teknar ennþá um upp-
sagnir, en til þeirra gæti komið í
tengslum við skipulagsbreytingar
og að einstaka einingar verði lagð-
ar niður. Ekki verði ráðið í stað
þeirra sem hætta sakir aldurs eða
vegna almennrar starfsmanna-
veltu.
„Við erum smátt og smátt að
breyta rekstrinum og ætlum að ein-
beita okkur algjörlega að kjarnan-
um, veitustarfsemi, og fara út með
allt sem ekki skilar tekjum.“
Bjarni segir starfsemi OR hafa
verið allt of víðfeðma og stjórnend-
ur hafi misst sjónar á hlutverki OR,
sem sé að þjónusta íbúa og eigend-
ur með veitustarfsemi.
„Ætlunin með þessu öllu er að
koma fyrirtækinu út úr þeim vanda
sem það rataði í. OR er í grunninn
mjög gott fyrirtæki. Vandinn er
ekki tæknilegur eða rekstrarleg-
ur, hann er fjárhagslegur.“ Bjarni
bendir á að afborgarnir af lánum
til næstu fimm ára nemi 107 millj-
örðum króna og það sé meira en
fyrirtækið ráði við að óbreyttu.
Samkvæmt raforkulögum á að
skipta orkufyrirtækjum upp í sam-
keppnisstarfsemi annars vegar og
hins vegar starfsemi sem byggir á
sérleyfum. Önnur orkufyrirtæki
hafa þegar gert það, en OR er á
undanþágu til áramóta. „Orkuveit-
unni verður skipt upp í tvö félög í
lok árs samkvæmt lögum,“ segir
Bjarni.
Dagur B. Eggertsson, formað-
ur borgarráðs, segir það eitt af
hlutverkum nýskipaðrar eigenda-
nefndar OR að útfæra skiptinguna.
Nokkrar leiðir séu mögulegar í
þeim efnum. Þreifingar hafi verið
um að OR fengi varanlega undan-
þágu frá lögunum, en undirtektir
við slíkt á Alþingi hafi ekki verið
góðar. kolbeinn@frettabladid.is
Uppskipting OR í tvö
félög í undirbúningi
Starfsfólki Orkuveitu Reykjavíkur verður fækkað um 90 til ársins 2016 og eignir
verða seldar. Afborganir af lánum nema 107 milljörðum á næstu fimm árum.
Unnið er að því að skipta fyrirtækinu upp í tvö félög samkvæmt lagaákvæðum.
AÐALFUNDUR Jón Gnarr borgarstjóri flytur tölu á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur í
gær. Um fyrsta opna aðalfund fyrirtækisins var að ræða. MYND/HELGI OLGEIRSSON
BJARNI
BJARNASON
DAGUR B.
EGGERTSSON
Vandinn er ekki
tæknilegur eða
rekstrarlegur, hann er fjár-
hagslegur.
BJARNI BJARNASON
FORSTJÓRI ORKUVEITU REYKJAVÍKUR
KJARAMÁL „Þetta mjakast. Við
bindum vonir við að endar náist
saman.“ sagði Guðjón Arngríms-
son, upplýs-
ingafulltrúi
Icelandair í
gærkvöldi.
Sáttafundur
í kjaradeilu
Félags
íslenskra
atvinnuflug-
manna og Ice-
landair, sem
hófst klukkan
hálftíu í gær-
morgun, stóð enn yfir hjá Ríkis-
sáttasemjara þegar Fréttablaðið
fór í prentun í gærkvöldi.
Ef ekki næst að semja fyrir
klukkan 14 í dag hefst yfir-
vinnubann hjá flugmönnum Ice-
landair. Guðjón gat ekki sagt til
um hvenær bannið tæki að hafa
áhrif á millilandaflug.
- sv
SPURNING DAGSINS
ORKUMÁL Alþjóða orkumálastofn-
unin og orkumálaráðuneyti Banda-
ríkjanna ætla að setja sextíu millj-
ónir olíutunna á markað á næstu
þrjátíu dögum. Tunnurnar eru
hluti af varaforða Bandaríkjanna
og Alþjóða orkumálastofnunar-
innar.
Gripið var til þessara aðgerða
til að vega upp á móti minnkandi
framleiðslu á olíu vegna átaka í
Líbíu og öðrum löndum. Orku-
málaráðherra Bandaríkjanna,
Steven Chu, sagði í gær að fylgst
væri náið með ástandi á olíumark-
aði og Bandaríkin væru tilbúin að
grípa til frekari aðgerða ef þess
gerðist þörf.
Olíuverð lækkaði talsvert eftir
þessa tilkynningu, meðal annars á
Íslandi. Flest olíufélögin lækkuðu
verð á bensínlítranum um þrjár
krónur í kjölfar tíðindanna. Ódýr-
astur er bensínlítrinn hjá Orkunni.
Varaforði Bandaríkjamanna er
í sögulegu hámarki, 727 milljón
tunnur. 87,5 milljónir olíutunna
eru notaðar í heiminum á hverjum
degi. Þar af nota Bandaríkjamenn
tæpar tuttugu milljónir tunna. - þeb
Bensínverð lækkaði á Íslandi vegna frétta um 60 milljónir olíutunna:
Setja varaforða olíu á markað
BENSÍNSTÖÐ Í BANDARÍKJUNUM
Olíuverðið lækkaði í Bandaríkjunum
eins og annars staðar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓLK Hávarður Tryggvason lagði
í gær af stað í tæplega 700 kíló-
metra langa hjólaferð um Vest-
firði.
Hávarður hjólar til styrkt-
ar Grensásdeild og er það hluti
af átakinu Á rás fyrir Grensás.
Hægt er að styrkja hann í gegnum
heimasíðu Grensásdeildar.
Hann lagði af stað frá Ísafirði
á miðvikudag. Hann mun hjóla
í vestur í gegnum Bíldudal og
Patreksfjörð, Flókalund, innfirði
Breiðafjarðar, Steinadalsheiði, á
Hólmavík og Ísafjarðardjúp aftur
til Ísafjarðar. Ferðalagið er tæpir
700 kílómetrar og fimm þúsund
metra hækkanir yfir fjallvegi. - þeb
Fer um Vestfirði fyrir Grensás:
Hjólar tæpa
700 kílómetra
Á SILFURTORGI Daníel Jakobsson,
bæjarstjóri Ísafjarðar, kvaddi Hávarð á
Silfurtorgi bæjarins áður en hann lagði
upp í ferðina.
BOLUNGARVÍK Rúður brotnuðu og
þök skemmdust í Bolungarvík í
gærdag þegar grjóti rigndi yfir
bæinn. Verið var að sprengja
vegna snjóflóðagarðs í fjallinu
fyrir ofan bæinn og svo virðist
sem sprengingin hafi verið mun
öflugri en verktakinn bjóst við.
Sprengingum við snjóflóða-
garðinn hefur verið hætt í bili
en aðrar framkvæmdir munu
halda áfram. Grjóthnullungarnir
voru sumir hverjir hnefastórir
og þykir mikil mildi að enginn
slasaðist, þar sem fjöldi fólks
var utandyra að vinna í görð-
um sínum. Vinnueftirlitið hefur
fengið málið til skoðunar.
- sv
Grjóti rigndi yfir Bolungarvík:
Brotnar rúður
og skemmd þök
STJÓRNSÝSLA Borgarráð hefur skip-
að úttektarnefnd sem fara mun
yfir málefni Orkuveitu Reykjavík-
ur (OR). Rannsaka á þá þætti sem
leiddu til núverandi fjárhagsstöðu
fyrirtækisins.
Mun úttekt nefndarinnar bein-
ast sérstaklega að því að skoða
hvernig staðið var að mikilvægum
skuldbindandi ákvörðunum, þar á
meðal aðkomu eigenda, stjórnar og
stjórnenda að þessum ákvörðunum.
Úttektin mun enn fremur beinast að
vinnubrögðum stjórnar, forstjóra
og framkvæmdastjórnar og sam-
vinnu þeirra á milli. Þá verða ýmsir
þættir innra eftirlits fyrirtækisins
metnir og áhættustýring þess skoð-
uð. Kemur þetta fram í erindisbréfi
úttektarnefndarinnar.
Markmiðið er að skýra aðdrag-
anda og orsakir stöðu rekstrar
Orkuveitu Reykjavíkur og mun
úttektarnefndin gera grein fyrir
niðurstöðum sínum í skýrslu til eig-
enda Orkuveitu Reykjavíkur sem
áætlað er að verði tilbúin fyrir 1.
mars 2012.
Margrét Pétursdóttir, sviðsstjóri
endurskoðunarsviðs Ernst & Young,
verður formaður nefndarinnar og
með henni sitja Ása Ólafsdóttir lög-
fræðingur og Ómar Hlynur Krist-
mundsson, dósent í opinberri stjórn-
sýslu við Háskóla Íslands. - kóp
Úttektarnefnd um málefni Orkuveitu Reykjavíkur skipuð:
Fjárhagsmálefni OR rannsökuð
ORKUVEITAN Borgarráð hefur skipað úttektarnefnd til að kanna þá þætti sem leiddu
til núverandi fjárhagsstöðu fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
Tólf teknir á Reykjanesbraut
Lögreglan stöðvaði tólf ökumenn
á Reykjanesbraut í gærdag fyrir of
hraðan akstur. Sá sem ók hraðast
var á 133 kílómetra hraða og bíður
hans nú 90 þúsund króna sekt og þrír
refsipunktar í ökuferilsskrá.
Keyrði á fjóra bíla
Ökumaður fólksbifreiðar missti
stjórn á bíl sínum á Dalvegi í gær.
Lenti bíllinn á öfugum vegarhelmingi
og framan á öðrum bíl sem kom
úr gagnstæðri átt. Við það hentist
bifreiðin upp á gangstétt og niður
brekku þar sem hún hafnaði á
tveimur bílum sem voru kyrrstæðir og
mannlausir. Enginn slasaðist í árekstr-
inum og þykir það hin mesta mildi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Enn var fundað í gærkvöldi:
Yfirvinnubann
í dag ef ekki
tekst að semja
GUÐJÓN
ARNGRÍMSSON
BANDARÍKIN Cameron og Tyler
Winklevoss, tvíburabræðurnir
sem telja sig eiga hugmyndina að
Facebook, hafa ákveðið að áfrýja
ekki úrskurði Alríkisdómstóls til
Hæstaréttar.
Í úrskurðinum segir að þeir
hafi gert samning sem virðist
þeim mjög hagstæður og vildi
Alríkisdómstóll því ekki rifta
honum. Dómstóllinn vísaði máli
þeirra frá í apríl síðastliðnum en
þeir vildu rifta sáttargjörð sem
þeir gerðu við Mark Zuckerberg,
vegna deilna um höfundarrétt.
Facebook-dómur stendur:
Tvíburar áfrýja
ekki úrskurði