Fréttablaðið - 24.06.2011, Síða 8
24. júní 2011 FÖSTUDAGUR8
1. Hvaða lið keppa í úrslitum EM
U-21 í Danmörku?
2. Hver var útnefndur borgar-
listamaður Reykjavíkur?
3. Hvað eru margir flokkar í ríkis-
stjórn Finnlands?
SVÖR
1. Spánn og Sviss 2. Magnús p Pálsson
3. Sex
Opnunartími:
Mán-Fös. kl: 10-18
Laug-Sun. kl: 12-16
Fossháls 5-7 l 110 Reykjavík
Sími 551 5600 l utilegumadurinn.is
Dethleffs 2011 frá Þýska hjólhýsarisanum
Frá þýska hjólhýsarisanum Dethleffs
sýnum við hjólhýsi í hæðsta gæðaflokki
með ríkulegum staðalbúnaði þar sem
gæði og falleg hönnun fara vel saman
Verð: 5.298.000kr
560 SK Camper Style
Lengd utanmál 8,12 m.
Innanmál 6,10 m.
Breidd 2,50 m.
Verð: 4.248.000kr
510 DB Camper
Lengd utanmál 7,28 m.
Innanmál 5,25 m.
Breidd 2,30 m.
Verð: 5.698.000kr
560 SB Nomad
Lengd utanmál 8,12 m.
Innanmál 6,10 m.
Breidd 2,50 m.
Með Alde hitakerfi
Verð: 4.798.000kr
510 V Nomad
Lengd utanmál 7,28 m.
Innanmál 5,25 m.
Breidd 2,30 m.
Alde hitakerfi 310.000kr
SKIPULAGSMÁL Göngugötum í mið-
borg Reykjavíkur verður fjölgað
í sumar. Austurstræti hefur verið
breytt í göngugötu að Pósthús-
stræti, sem verður lokað fyrir
bílaumferð frá og með deginum í
dag til 31. ágúst. Einungis verður
opið fyrir bílaumferð milli klukk-
an 8 og 11 á morgnana.
Hafnarstræti austan Póst-
hússtrætis var lokað við Póst-
hússtræti 17. júní síðastliðinn
og verður lokað til 31. ágúst.
Óheimilt verður að leggja bílum
á þessum kafla en stæðum fyrir
hreyfihamlaða verður komið
fyrir á mótum Pósthússtrætis og
Hafnarstrætis. - sv
Miðborgin fyrir gangandi fólk:
Göngugötum
fjölgað í sumar
MIÐBORGIN GERÐ FYRIR GANGANDI
Ýmsar breytingar verða gerðar á
umferðarreglum í miðborginni í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
NEYTENDAMÁL „Verð á kjötvörum
mun vonandi lækka með hnitmið-
aðra vöruúrvali.“ Þetta segir fram-
kvæmdastjóri Bónuss, Guðmund-
ur Marteinsson, sem hefur varpað
fram þeirri hugmynd að skilarétt-
ur á kjötvörum verði afnuminn frá
og með 1. nóvember næstkomandi.
„Kjötsalar hafa kvartað undan
vöruskilunum en gleymt að taka
með í reikninginn hvað þeir hafa
fengið í staðinn fyrir skilaréttinn,
nefnilega frjálsan aðgang að búð-
unum. Þar með hafa þeir aukið
vöruúrvalið. Þeir hafa sjálfir pant-
að vöruna og ákveðið magnið sem
fer í verslanirnar með tilliti til
eigin birgðastöðu. Vöruskil innan
skynsemismarka eru þó hluti af
markaðssetningu vörunnar, það er
að segja varan er til allan tímann
á meðan verslunin er opin,“ segir
Guðmundur.
Hann segir kjötsala hafa kvart-
að undan kostnaði vegna vöruskil-
anna. „Nú losna þeir við hann og
þá skyldi maður ætla að þeir gætu
lækkað verðið. Búðin gæti einn-
ig gefið fimmtíu prósenta afslátt
á vöru sem er að renna út á tíma
og þá nyti kúnninn góðs af því.“
Guðmundur leggur áherslu á
að vöruskilin séu föst í hendi og
að hægt sé að reikna þau út. „Það
hefur hins vegar ekki þótt til-
tökumál þegar vara er ekki til hjá
kjötsala. Frá áramótum hefur til
dæmis verið mikill skortur á kjúk-
lingum. Ég hef ekki getað sent
Reykjagarði eða Matfugli reikn-
ing vegna sölutapsins.“
Að sögn Guðmundar er vöruúr-
valið orðið of mikið. „Fjöldi vöru-
númera til dæmis í hverri tegund
áleggs er orðinn allt of mikill, sér-
staklega í lágvöruverðsverslunum
eins og Bónus.“
Framkvæmdastjórinn tekur það
fram að hann hafi sent kjötbirgj-
um bréf um hugmynd sína. „Þetta
verður ekki einhliða ákvörðun. Ég
er bara að varpa þessari hugmynd
fram.“
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, telur eðli-
legt að verslanir sjái um sín inn-
kaup og beri ábyrgð á þeim.
„Það leiðir til þess að panti
verslun vöru í of miklu magni
muni hún einfaldlega lækka verð-
ið áður en síðasti söludagur rennur
upp. Það er betra að selja á hálf-
virði en að fleygja vörunni. Verði
skilarétturinn afnuminn á það að
gefa svigrúm til að lækka heild-
söluverðið. Ég geng út frá því og
geri kröfu til þess að verðlækkan-
irnar skili sér til neytenda.“
ibs@frettabladid.is
Bónus telur afnám skila-
réttar lækka verð á kjöti
Kjötsalar hafa ákveðið magn kjöts sem fer í verslanir og eru sagðir hafa kvartað undan kostnaðinum. Vöru-
úrvalið orðið of mikið að mati framkvæmdastjóra Bónuss sem telur að lækka mætti verð á kjötvörum.
MATARINNKAUP Vonast er til að verð á kjötvörum lækki verði skilaréttur afnuminn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég geng út frá því og
geri kröfu til þess að
verðlækkanirnar skili sér til
neytenda.
JÓHANNES GUNNARSSON
FORMAÐUR NEYTENDASAMTAKANNA
EVRÓPUMÁL Utanríkisráðherra,
Össur Skarphéðinsson, skrifaði
á þriðjudag undir fríverslunar-
samning EFTA-ríkjanna (Íslands,
Liechtensteins, Noregs og Sviss)
við Hong Kong. Undirritunin fór
fram í Schaan í Liechtenstein.
Þetta er fyrsti fríverslunar-
samningur sem Hong Kong gerir
við Evrópuríki, að því er fram
kemur í tilkynningu ráðuneytis-
ins.
Samningurinn tekur bæði til
vöru- og þjónustuviðskipta en einn
kafli hans fjallar sérstaklega um
umhverfismál
í þessu sam-
hengi. Það er
að frumkvæði
Norðmanna að
kveðið er á um
umhverfismál
í þessu sam-
hengi.
Þá var sam-
hl iða samn-
ingnum skrifað
undir annan samning um vinnu-
réttindi. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem réttindi launþega hafa
orðið umfjöllunarefni í fríverslun-
arviðræðum EFTA-ríkja.
Ráðherrar EFTA-ríkjanna hafa
áhuga á nánara fríverslunarsam-
starfi við mörg ríki og Össur
Skarphéðinsson lýsti yfir stuðn-
ingi við fríverslunarviðræður við
til dæmis Indland, Rússland og
Hvíta-Rússland. Hann segir nauð-
synlegt að ræða við Hvít-Rússa
um mannréttindi þar í landi.
Rætt var og um EES-samstarf-
ið, skýrslu Eftirlitsstofnunar
EFTA, og fleira.
- kóþ
Réttindi launþega og umhverfismál tengd nýjum fríverslunarsamningi:
EFTA semur við Hong Kong
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
ESB Tvær nýjar skýrslur frá Evr-
ópusambandinu sýna, að mati
framkvæmdastjórnar þess, fram
á nauðsyn þess að gera endurbæt-
ur á fiskveiðistefnu þess. Annars
vegar er skýrsla, sem sýnir að
undanfarin ár hefur dregið úr
hagkvæmni fiskveiðiflota ESB-
ríkjanna. Hagnaður af fiskveið-
um hefur dregist saman.
Hin skýrslan sýnir að fiskveiði-
flotinn hefur minnkað mjög hægt
síðustu ár, eða innan við þrjú
prósent árlega, sem þýðir að lítið
hefur dregið úr ofveiði. - gb
Nýjar skýrslur frá ESB:
Fiskveiðar ESB
óhagkvæmari
VEISTU SVARIÐ?