Fréttablaðið - 24.06.2011, Síða 12
24. júní 2011 FÖSTUDAGUR12
Föstudagsviðtaliðföstuda
gur Ally Dingwall, framkvæmdastjóri fi skafurða hjá matvælakeðjunni Sainsbury‘s
Ekki fyrir okkur
Íslensku umhverfismerki var hleypt af
stokkunum á haustmánuðum 2008 með
því fororði að íslenskum hagsmunum
væri best borgið með séríslensku merki.
Merkinu er ætlað að undirstrika sér-
stöðu íslenskra sjávarafurða og treysta
orðspor þjóðarinnar sem ábyrgrar fisk-
veiðiþjóðar. Vottunarferlið er unnið
samkvæmt ströngustu alþjóðlegum
kröfum. Kröfulýsingar eru unnar sam-
kvæmt leiðbeiningum Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna
(FAO) um umhverfismerkingar og vott-
un vegna veiða úr villtum fiskistofnum.
Rétt eins og hjá MSC en talsmenn þeirra
segja mikilvægt að það komist til skila
að MSC og íslenska merkið séu ekki and-
stæður og það sé ekki spurning hvort
allur iðnaðurinn velji íslenska merkið
eða MSC. Spurningin sé um markaðs-
þörf fyrirtækja og mögulegt fyrir fyrir-
tæki að hafa fleiri en eina vottun.
Dingwall þekkir vel til íslenska
merkisins og segir það uppfylla ströng-
ustu kröfur. „En ef við myndum taka
upp íslenska merkið myndi það aðeins
flækja málin fyrir okkar viðskipta-
vini. Eitt merki, í okkar tilfelli MSC,
á að segja alla söguna. Því er íslenska
merkið ekki fyrir okkur. Mörg lönd hafa
tekið upp sín eigin merki, hvort sem það
er í samkeppni eða til þess að vinna með
MSC, en MSC segir alla söguna og hin
merkin bæta engu við.“
Spurður um hvort MSC sé hafið yfir
gagnrýni, sem hefur verið hávær hér á
landi, segir Dingwall að ekkert sé hafið
yfir gagnrýni. „Gagnrýni er af hinu
góða því að hún keyrir umbætur áfram.“
Hvalveiðar
Fiskveiðar eru pólitískar og það á ekki
síst við hér á Íslandi. Hvalveiðar eru
hluti af þeirri mynd. Hafa hvalveið-
ar áhrif á sölu íslenskra sjávarafurða
á stórum mörkuðum og eru veiðarnar
eins skaðlegar ímynd þjóðarinnar og
haldið er fram?
„Sainsbury‘s hefur þá stefnu varð-
andi hvalveiðar að við kaupum ekki
vörur af fyrirtæki sem er á einhvern
hátt tengt hvalveiðum. Meirihluti neyt-
enda í Bretlandi er á móti veiðunum og
við hlustum á þær raddir.“
Ekki sama hvernig
Sainsbury‘s kaupir aðeins íslenska ýsu
og þorsk sem veidd eru á línu, á hand-
færi eða í dragnót. Með öðrum orðum
fisk af dagróðrabátum eða bátum sem
landa afla eftir stuttan tíma á sjó. Ding-
wall segir ástæðuna einfalda. „Við
tókum þessa ákvörðun árið 2007. Að
hluta til vegna stefnu okkar um sjálf-
bærni veiða því þessi veiðarfæri taka
minni meðafla. Aðallega voru það þó
gæði hráefnisins sem réðu þessari
ákvörðun. Við töldum þetta bestu leið-
ina til að uppfylla kröfur viðskiptavina
okkar um gæði.“
Dingwall tekur fram að Sainsbury‘s
selji trollveiddan fisk en það nái til ann-
arra tegunda en þorsks og ýsu.
Framtíðin
Hvað um framtíðina? Verður umhverf-
isvottun, eins og MSC, skilyrði fyrir
sölu sjávarafurða á stórum mörkuð-
um?
„Ég held að neytendur séu nú þegar
farnir að spyrja sig vissra spurn-
inga ef MSC merkið er ekki að finna
á umbúðunum“, svarar Dingwall.
„Við sjáum vitundarvakningu hjá
okkar viðskiptavinum og í Bretlandi
almennt. Ég held því að í framtíðinni
verði sífellt meiri eftirspurn eftir
þeim skilaboðum sem umhverfismerki
stendur fyrir, ekki síst MSC af því það
hefur afgerandi forystu. En gleymum
ekki að vottun um sjálfbærni er ekki
nóg ef gæðin eru ekki til staðar. Gæðin
verða alltaf í forgrunni og þess vegna
kaupum við íslenskan fisk en engin
vara tekur honum fram í gæðum.“
Ef við
myndum
taka upp
íslenska
merkið myndi það að-
eins flækja málin fyrir
okkar viðskiptavini.
Krafa neytenda um sjálf-
bæra nýtingu fiskistofna,
skynsamlega fiskveiði-
stjórnun og tillitssemi
við vistkerfi sjávar verður
sífellt háværari. Dreifingar-
og söluaðilar þurfa þess
vegna að svara kallinu um
umhverfisvottaðar sjávar-
afurðir. Þetta staðfestir
Ally Dingwall, hjá bresku
matvælakeðjunni Sains-
bury‘s, í viðtali við Svavar
Hávarðsson.
S
æmark sjávarafurðir, sem
er fiskútflutningsfyrirtæki
sem annast markaðssetningu
sjávarafurða frá útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækjum
víðs vegar um landið, hlaut í
gær vottun samkvæmt stöðlum Sjávar-
nytjaráðsins, eða Marine Stewardship
Council (MSC), fyrir fjögur samstarfs-
fyrirtækja sinna. Vottunin staðfestir að
þorsk- og ýsuveiðar fyrirtækjanna fjög-
urra, sem öll gera út frá Vestfjörðum,
með handfærum, línu og dragnót, upp-
fylla kröfur MSC, en vottunin byggir
á ítarlegu mati íslenskra sérfræðinga
undir stjórn Vottunarstofunnar Túns.
Það má segja að vottunin marki tíma-
mót, en MSC bauð íslenskri útgerð sam-
starf strax árið 1996. Því var hafnað
og útgerðin hefur lengst af tortryggt
Sjávarnytjaráðið vegna tengsla við
umhverfisverndarsamtök. Af þessu til-
efni kom hingað til lands forstjóri MSC,
Rupert Howes, og Ally Dingwall frá
Sainsbury‘s en verslunarkeðjan dreifir
stórum hluta af öllum þorski og ýsu sem
hér veiðist á línu og handfæri.
Risi í sölu sjávarfangs
Sainsbury‘s er næststærsta verslunar-
keðja Bretlands með 940 verslanir
undir sínum merkjum. Dingwall setur
þessa stærð fyrirtækisins í samhengi
með smá tölfræði. Verslanir fyrirtæk-
isins eru heimsóttar í 21 milljón skipti
í hverri viku. Starfsmenn eru rúmlega
150 þúsund talsins.
Hlutdeild þeirra á breskum matvæla-
markaði er rúm sextán prósent en hærri
í sölu sjávarfangs. „Hvað sölu fiskmet-
is varðar þá ákváðu forsvarsmenn fyr-
irtækisins árið 2006 að taka upp eigið
matskerfi á því hvort hráefnið sem til
okkar barst stæðist þær kröfur sem
neytendur gera. Okkar kerfi tekur tillit
til ástands fiskistofna, fiskveiðistjórn-
unar viðkomandi lands og umhverfis-
áhrifa veiðanna. Enginn fiskur er seld-
ur frá okkur sem stenst ekki kröfur um
ábyrgar veiðar og vinnslu,“ segir Ding-
wall.
Þetta sjálfstæða umhverfisvottunar-
kerfi var þróað í samstarfi við vísinda-
menn og byrgja, að sögn Dingwall.
„Þetta kerfi er til hliðar við sérstak-
lega umhverfisvottaðar vörur sem við
seljum. Þetta á bæði við um villtan fisk
og alinn. Við höfum þar hugfast hvaða
áhrif fiskeldi getur haft fyrir villtar
tegundir, til dæmis hvernig fóðrið er
tilkomið.“
Ábyrgð og sjálfbærni
Dingwall tekur fram að fyrirtækið
gerir skýran greinarmun á merkingu
orðanna ábyrgð og sjálfbærni. Hann
segir það tilkomið vegna þess að neyt-
endur séu ekki vissir um merkingu hug-
takanna og almennt sé hugtakið sjálf-
bærni ofnotað. „Við höfum mjög skýra
skilgreiningu á því hvað sjálfbærni
er og það kemur fram á okkar vörum.
Fyrir okkur er það vörur sem hafa hlot-
ið MSC vottun.“
Dingwall segir að vitund neytenda
um sjálfbærni í verslun með fiskmeti
hafi aukist mikið á stuttum tíma en
ítrekar orð sín um að margt geti valdið
misskilningi. „Við viljum einfalda þessi
skilaboð. Þau eru þau sömu fyrir allan
okkar villta fisk og þau skilaboð felast
í því umhverfismerki sem við notum.
Neytandinn á ekki að þurfa að vita um
þýðingu merkisins í smáatriðum heldur
aðeins að hann geti treyst því að merk-
ið standi fyrir að ströngustu skilyrðum
sé mætt. MSC er leiðandi á heimsvísu
og skilaboðin skýr og þeim kunnug sem
á annað borð láta þessi mál sig varða.
Fyrirtækið viðurkennir því MSC sem
það merki sem er leiðandi í heiminum.“
Sjálfbær nýting er krafa dagsins
ALLY DINGWALL Skoskur sjávarlíffræðingur sem ber ábyrgð á gæðum alls fiskmetis sem selt er hjá næststærstu
verslunarkeðju Bretlands. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég held að
neytendur
séu nú
þegar farnir
að spyrja
sig vissra
spurninga ef
MSC merkið
er ekki að
finna á um-
búðunum
b
m
va
ll
a
.is
Smellinn
forsteyptar einingalausnir frá BM Vallá
BM Vallá ehf.
Bíldshöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 412 5000
Fax: 412 5001
sala@bmvalla.is
Helstu kostir SMELLINN
húseininga:
Styttri byggingartími
Steypt við bestu aðstæður
Yfirborð frágengið
Gott einangrunargildi
Minni fjármagnskostnaður