Fréttablaðið - 24.06.2011, Page 20
24. júní 2011 FÖSTUDAGUR2
„Ég ólst upp við Hellisgerði og garð-
urinn var leiksvæði mitt. Þegar ég
flutti aftur á æskuheimilið endur-
nýjaði ég kynnin við álfana,“ segir
Ragnhildur Jónsdóttir myndlistar-
maður. Hún ásamt fjölskyldu sinni
stendur í dag klukkan 18 að opnun
Álfagarðs í Hellisgerði.
Álfagarðurinn verður miðstöð
álfa og huldufólks með aðsetur í
Oddrúnarbæ sem er lítið hús í garð-
inum. Þar verður að finna upplýs-
ingar um verur Hellisgerðis og
hægt að kaupa listmuni og hand-
verk sem tengjast garðinum og álf-
heimum. Þar verður einnig hægt að
kaupa nesti og fá lánað teppi fyrir
lautarferð. Ragnhildur mun sjálf
bjóða upp á álfagöngur og verður
með tvær slíkar um helgina, laug-
ardag og sunnudag klukkan 13. „Ég
skipulagði þessar göngur með einni
huldukonunni og mun túlka fyrir
hana. Þá eru fleiri verur sem vilja
vera með okkur í þessum ferðum,“
segir Ragnhildur glaðlega og bætir
við að huldukonurnar klæði sig sér-
staklega uppá fyrir þessar göngur.
„Já, já þær eru í kjólum sem þær
saumuðu sérstaklega fyrir þetta til-
efni.“
Ragnhildur segir Hellisgerði
sérstakan stað. „Hér er óskemmt
hraunsvæði sem var fyrir níutíu
árum bjargað frá því að leggjast
undir byggð. Hér er fjölbreytt flóra
af álfum, dvergum og huldufólki
enda hefur slíkum verum fjölgað
í garðinum eftir því sem byggðin í
Hafnarfirði hefur þést,“ lýsir Ragn-
hildur sem segir álfana sjálfa hafa
fengið hugmyndina að álfagarð-
inum. „Það er í raun ekki nema í
nokkra áratugi sem lítið samband
hefur verið milli álfa og manna. Nú
vilja þeir vera í betra sambandi,“
segir hún. Innt eftir því hvort álf-
arnir séu góðir segir hún svo vera.
„Þeir sem búa í Hellisgerði eru góð-
viljaðir þó tveir séu reyndar pínu
nöldurseggir.“
Álfagarðurinn verður opinn dag-
lega frá 12 til 16 og eftir samkomu-
lagi. Í dag klukkan 18 hefst opnunin
á Hátíð lífsins sem er sumarhátíð
álfa en einnig verður opnuð sýn-
ing á listaverkum eftir nokkra
listamenn sem tengjast Hellisgerði
sterkum böndum. Í dag verður einn-
ig stofnað Hollvinafélag Hellisgerð-
is fyrir þá sem vilja vinna að vexti
og viðgangi svæðisins.
solveig@frettabladid.is
Álfar í sínu fínasta pússi
Álfagarðurinn opnar í Hellisgerði í Hafnarfirði í dag. Opnunin hefst á Hátíð lífsins sem er sumarhátíð
álfa. Ragnhildur Jónsdóttir er í góðu sambandi við álfana í Hellisgerði og kynnir þá fyrir gestum.
Álfarnir sjálfir stungu hugmyndinni að álfagarðinum að Ragnhildi og vilja vera í betra samband við mannfólkið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lifandi tónlist verður alla laugardaga í sumar á veitingastaðnum 1862 Nordic
Bistro í Hofi á Akureyri. Tónleikarnir hefjast klukkan 13 og verða utandyra
þegar veður leyfir. Aðgangur er ókeypis og verður boðið upp á allt frá klass-
ískum djassi yfir í brasilíska salsatóna.
Brú til Borgar hefst klukkan 12.30
á morgun þegar félagsheimilið
Borg verður opnað og gestir geta
skoðað ljósmyndir Böðvars Stef-
ánssonar, fyrrverandi skólastjóra
á Ljósafossi. Hátíðin verður form-
lega sett klukkan 13. Þá tekur
við fjölbreytt dagskrá þar sem
félagar í kvæðamannafélaginu
Árgala flytja frumort efni, Guðjón
Friðriksson sagnfræðingur flyt-
ur minningabrot frá sumardvöl í
Klausturhólum og sungin verða
íslensk sönglög. Glíma, íslenski
hundurinn, búvélar og þjóðbún-
ingar fá einnig sinn sess.
Dagskrá sunnudagsins hefst
klukkan 9.45 í Þrastarlundi á
ferðinni Listin, lífið og landið.
Klukkan 13.30 hefst í Borg, mál-
þing um Einar Má Guðmundsson
og ritverk hans um Grímsnesið.
Til umfjöllunar verða þrjár bækur
Einars Más um upp-
vaxtarár föðurfólks
hans í Gríms-
nesinu. Aðgang-
ur að dagskránni
á laugardaginn
og málþinginu
er ókeypis. Nán-
ari upplýsingar
má finna
á www.
hollvin-
ir.blog.
is
Menning í Borg
HÁTÍÐIN BRÚ TIL BORGAR VERÐUR
HALDIN Í FJÓRÐA SINN NÚ UM
HELGINA. ÞAR VERÐUR ÍSLENSK
MENNING Í HÁVEGUM HÖFÐ.
Damaskussmíði,
sýning á verkum
Sigrúnar Guðmunds-
dóttur myndhöggvara,
opnar í Listmunahorni
Árbæjarsafns á morg-
un klukkan 14. Til
sýnis verða hnífar og
dálkar auk ljósmynda
af vinnuferli og ein-
stökum hnífsblöðum.
minjasafnreykja-
vikur.is
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 16, sími 553 7300
Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17
Toppur
5.990
Til í
bleiku,
hvítu
og
turkish.
S•M•L
Toppur
1.990
Blúndu-
toppur
2.690
10 litir
Pils
5.990
Hálsmen
3.750
Hlýrabolur
3.450
Blúndubolur
2.990
Peysa
(5 litir)
4.990
Hálsmen
1.790
Bolur
4.990 kr.
4 litir
Skart
1.290 kr.
Full búð af nýjum sumarvörum
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó,
Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,
Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
Rýmum fyrir
nýjum vörum
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
30% afsláttur af öllu í verslun
sendum frítt úr vefverslun
www.lindesign.is
VANDAÐIR
SÆNSKIR
KLOSSAR
Opið
mán.fim 12–18, fös. 12–16,
Sími 694 7911
Eikjuvogur 29, 104 Rvk.