Fréttablaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 22
2 föstudagur 24. júní
núna
✽ sól og gleði
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Anton Brink Útlitshönnun Kristín
Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
N
orræni t ískutvíæring-
urinn verður haldinn í
annað sinn í Seattle þann
30. september og stendur
hann yfir til 13. nóvember. Norræna
húsið er stofnandi tvíæringsins en
listakonan Hrafnhildur Arnardóttir
sinnir starfi sýningastjóra í ár.
Að sögn Ilmar Daggar Gísladóttur,
verkefnastjóra Norræna tískutvíær-
ingsins, er markmið viðburðarins
að kynna norræna hönnun fyrir
umheiminum. „Tvíæringurinn
er hugsaður eins og myndlist-
arsýning og var það sýningar-
stjórinn, Hrafnhildur Arnar-
dóttir, sem sá um að velja inn
þátttakendur. Valið endurspegl-
ar hennar sýn á nor-
ræna tísku og hönn-
un í dag,“ útskýr-
ir Ilmur Dögg og
bætir við: „List
Hrafnhildar er
mitt á milli þess
að vera tíska
og listaverk og
þess vegna er
sérstaklega
gaman að hafa
fengið hana til
liðs við okkur.”
Hrafnhildur er
betur þekkt sem Shoplifter og vinn-
ur mikið með hár og skapaði meðal
annars hárskúlptúrinn sem Björk bar
á plötuumslagi Medullu.
Fjöldi norrænna hönnuða tekur
þátt í viðburðinum og þeirra á meðal
eru Mundi, Hildur Yeoman, Aftur,
Aurum, Kría Jewelry, Vík Prjóns-
dóttir, Steinunn, danski hönnuð-
urinn Henrik Vibskov, hin
sænska Sandra Back lund
og finnska tvíeykið
Ivana Helsinki. Ilmur
Dögg segist mjög spennt
fyrir tvíæringnum enda sé
þetta stærsta sýning á nor-
rænni hönnun sem hald-
in er í Bandaríkjunum. „Þetta
er alveg ótrúlega spenn-
andi verkefni og
frábært tækifæri
fyrir litlar þjóðir
til að blómstra.
Svo skemm-
ir ekki fyrir að
við erum með
stórfeng-
legan hóp
hönnuða
hérna á
sýning-
unni.“
- sm
NORRÆNI TÍSKUTVÍÆRINGURINN FER FRAM Í SEATTLE Í HAUST:
VIBSKOV OG MUNDI
TIL SEATTLE
Spennandi tímar Ilmur Dögg Gísladóttir, verkefnastjóri Norræna tískutvíær-
ingsins sem haldinn er í Seattle í haust, segir viðburðinn frábært tækifæri fyrir
norræna hönnuði. Listakonan Hrafnhildur Arnardóttir er sýningarstjóri.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hrafnhildur
Arnardóttir
Hversu hreinar eru
hárvörurnar þínar?
Fæst í Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup, Heilsuver, Hagkaup, Árbæjarapóteki,
Apóteki Vesturlands, Apóteki Ólafsvíkur, Melabúðinni, Vöruval Vestmannaeyjum,
Þín verslun Seljabraut.
Innflutningsaðili: Gengur vel ehf
DERMA ECO LÍFRÆNT VOTTAÐAR HÚÐ- OG
HÁRSNYRTIVÖRUR Á SKYNSÖMU VERÐI
– Án Parabena, ilm og litarefna –
Derma Eco sjampó
Mýkir og verndar, fyrir
flestar hárgerðir
Derma Eco hárnæring
Mýkir hárið og eykur glans án
þess að veita fituga áferð.
SUMARLEGAR Leikkonan Kirsten
Dunst og stílistinn Leith Clark voru
sumarlegar og fínar er þær sóttu
Wimbledon-mótið. NORDICPHOTOS/GETTY
Hvað finnst í fataskápnum
Lífsstíls- og tískubloggið www.
stylelikeu.com er stórskemmti-
leg síða sem auðvelt er að gleyma
sér yfir. Umsjónarmenn síðunnar
heimsækja athyglisvert fólk, fá að
kíkja inn í fataskápa þess og kynn-
ast lífsspeki þess. Þeir heimsækja
alls kyns fólk, námsmenn í New
York, rapparann RZA
úr hljómsveitinni Wu
Tang Clan, listamann-
inn Terence Koh og of-
urstílistann Lori
Goldstein.
Síðan sam-
anstendur
af mynd-
um, við-
tölum og
ítarlegum
vídeóblogg-
um.
Straumar frá Sviss
Á síðunni www.playlust.net/wp er
fjallað um allt mögu-
legt; partý, tísku,
blaðagreinar og
ýmislegt annað.
Síðan er skrifuð á
þýsku en fyrir þá
sem ekki skilja
það fallega
tungumál er
engu minna
gaman að
skoða
myndirn-
ar á síð-
unni því þar
finnst ýmis-
legt áhugavert.
SNIÐUG TVÍEYKI Þessi tvíeyki úr pivoine Flora
línunni frá L‘Occitane eru kjörin í ferða-
budduna. Fyrra tvíeykið er á kinnar og
gefur andlitinu fallegan ljóma og hið síðara
er augnskuggi.
D
jasssveitin FaktorýFantas-
tic, sem einnig er húsband
skemmtistaðarins Faktorý,
mun leika ljúfa tóna fyrir gesti á
sunnudagskvöld. Sveitina skipa
þeir Baldur Tryggvason, Daníel
Björn Sigurðsson, Helgi Kristjáns-
son og Steinar Sigurðsson.
Það hefur verið þéttsetið á fyrri
tónleikum sveitarinnar og því
brá hún á það ráð að færa djass-
inn inn í nýjan hliðarsal staðar-
ins sem rúmar fleiri gesti. Hljóð-
færaleikarar og söngelskt fólk er
hvatt til að mæta og spreyta sig
á sviðinu með FaktorýFantastic á
sunnudaginn.
Tónleikarnir hefjast klukkan
21.30 og er aðgangur ókeypis.
Djasstónleikar á Faktorý:
Djassinn dunar
Djass á Faktorý Húsband Faktorý mun leika á alls oddi á sunnudagskvöld.