Fréttablaðið - 24.06.2011, Síða 24
4 föstudagur 24. júní
Unnur Ösp
Stefáns dóttir hlaut
Grímuverðlaunin fyrir
leik sinn í verkinu Elsku
barn í Borgarleikhúsinu
og er þar með komin í
hóp nokkurra af bestu
leikkonum landsins.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmyndir: Anton Brink
U
nnur Ösp er fædd
og uppalin í Reykja-
vík og sleit barns-
skónum í Breið-
holtinu. „Ég er upp-
runalega úr „gettóinu“ eins og
margt eðalfólk í kringum mig.
Það virðist vera taug tengd list-
inni sem á uppruna sinn í Breið-
holtinu,“ segir hún. Unnur Ösp
hefur að eigin sögn leikið frá
blautu barnsbeini og á mennta-
skólaárunum var hún meðlim-
ur í leikfélagi Menntaskólans við
Hamrahlíð. Í leikfélaginu kynntist
hún einnig núverandi eiginmanni
sínum, leikaranum Birni Thors, og
hafa þau verið saman í nær fjór-
tán ár. „Bráðum höfum við verið
saman meiri hluta ævinnar, sem
er skrítin tilhugsun, en gleðileg,“
segir hún brosandi og bætir við að
það sé mikill kostur að þau hjón-
in starfi innan sama fags því þau
leiti mikið hvort til annars í starfi
sínu og sýni viðkvæmum hliðum
þess gagnkvæman skilning.
FYRSTI SIGURINN
Grímuverðlaunin voru veitt í síð-
ustu viku og var Unnur Ösp valin
besta leikkona í aðalhlutverki.
Þetta eru hennar fyrstu leiklistar-
verðlaun og segist hún afar stolt
af því að vera nú komin í hóp með
sínum uppáhaldsleikkonum. „Það
er eiginlega fjarstæðukennd til-
hugsun að vera komin í hóp með
Eddu Heiðrúnu Backman og fleiri
fyrirmyndum mínum sem ég ólst
upp við að dást að. Þetta eru held
ég fyrstu verðlaun sem ég vinn á
ævinni, fyrir utan einhverja ljóða-
samkeppni sem barn. Ég er engin
afrekskona, var aðallega á vara-
mannabekknum í handboltanum
og dróst aftur úr í kapphlaupum á
skólamótum. Það var því ljúft að
vinna eitthvað,“ segir hún og hlær.
Hún tekur þó fram að sér hafi allt-
af fundist skrítið að hægt sé að
keppa til verðlauna í listgreinum.
„Ég held að helsti tilgangur svona
verðlauna sé að vekja athygli fólks
á listinni og fá fleiri til að mæta
í leikhús, kvikmyndahús og til að
lesa fleiri bækur. En auðvitað er
maður stoltur þó svo það megi
ekki taka svona of alvarlega.“
Aðspurð viðurkennir Unnur
Ösp að sigurinn hafi komið henni
á óvart enda hafi sýningin verið
lítil og sýningar fáar. „Þetta kom
mér á óvart þar sem við gátum að-
eins sýnt Elsku barn í skamman
tíma og sýningin fór því ekki hátt.
Borgarleikhúsið mun hins vegar
taka hana aftur til sýninga næsta
vetur. Ég lít á þetta fyrst og fremst
sem hrós, þetta er lang stærsta
hlutverk sem ég hef fengist við og
auðvitað er maður ánægður þegar
einhverjum líkar vinna manns.“
Leikverkið Elsku barn fjallar um
unga móður sem sökuð er um að
hafa myrt börn sín tvö og situr í
fangelsi vegna þessa. Unnur Ösp
segir hlutverkið það erfiðasta sem
hún hefur tekið að sér því fátt sé
erfiðara fyrir móður en að kafa
ofan í þær tilfinningar er tengj-
ast barnsmissi. „Ég er sjálf móðir
og það var því ansi krefjandi að
reyna að setja sig í spor móður
sem annars vegar hefur misst
bæði börn sín, og hins vegar situr
í fangelsi grunuð um að hafa myrt
þau. Á meðan á sýningum stóð
þurfti ég að lifa með þessari konu,
halda með henni og reyna að fá
áhorfendur til að finna til sam-
úðar með henni þrátt fyrir fortíð
hennar. En þetta er það sem gerir
leiklist svona spennandi að mínu
mati, maður sprengir utan af sér
sína öryggisramma og kafar ofan
í mannlegt eðli.“
SÉRSTÖK VINNA
Unnur Ösp viðurkennir að leik-
listin geti verið sérstök vinna og
segir algengustu spurningar fólks
varðandi leiklistina vera hvern-
ig leikarar fari að því að muna
svo mikinn texta og kyssa aðra
en maka sinn. „Ég er mjög með-
vituð um hvað þetta getur verið
skrítin og sérstök vinna fyrir fólk
sem þekkir lítið til hennar. En
það er minna mál að eiga að vera
ástfangin af sjarmerandi mót-
leikara en að túlka mikla sorg
og missi. Það er ekki alltaf fyrir-
sjáanlegt hvað vefst mest fyrir
manni í þessari vinnu. Það hefur
verið sagt að leikarar ættu allir að
sækja sálfræðitíma því við séum
eins og hús sem alltaf er verið að
flytja inn og út úr. Persónur leik-
verkanna ferðast um huga manns
og maður þarf að vera í góðu jafn-
vægi til að geta aðgreint sig al-
gerlega frá persónunum að leikn-
um loknum. Svo er það auð vitað
gagnrýnin, það þurfa ekki allir að
venjast því að lesa um það í blöð-
unum hvernig þeir standa sig í
vinnunni. Maður þarf að vera ansi
tilfinningakaldur ef maður á ekki
að láta slæma gagnrýni á sig fá,“
útskýrir hún.
Frægðin er einn fylgifiska leik-
listarinnar en Unnur Ösp segist
lítið finna fyrir henni. „Hér heima
kannast allir hver við annan hvort
sem þeir eru þekktir eða ekki,
þetta er svo örsmátt samfélag.
Það var aftur á móti afar undar-
legt þegar ég fór með Vesturporti
og Borgarleikhúsinu til London í
vetur að leika Faust. Þá lenti ég
reglulega í því að vera stoppuð úti
á götu og beðin um eiginhandar-
áritun eða myndatöku. Það voru
mjög „absúrd“ kringumstæður,“
segir hún.
BESTA HLUTVERKIÐ
Unnur Ösp og Björn eiga saman
soninn Dag sem er fjögurra ára
gamall og segir Unnur Ösp að
móðurhlutverkið sé hennar uppá-
halds hlutverk. „Líf manns fær
dýpri tilgang þegar maður verður
foreldri. Þegar ég var á Grímunni
um daginn hugsaði ég um það
eitt að komast heim til að knúsa
strákinn, mig langaði ekkert út að
dansa og fagna.“
Þrátt fyrir miklar vinnu tarnir
og óreglulegan vinnutíma hafa
hjónin náð að skapa sér og syn-
inum nokkuð eðlilegt fjölskyldu-
líf. „Við reynum að forgangsraða
og taka tarnir til skiptis þann-
ig að við séum ekki undir miklu
álagi á sama tíma. Vinnutíminn
er leiðinlegur fyrir fjölskyldufólk
en við pössum okkur að elda allt-
af saman á kvöldin fyrir sýningar
og þannig höfum við náð að skapa
okkur heilbrigt fjölskyldulíf,“ út-
skýrir Unnur Ösp.
MÖRG JÁRN Í ELDINUM
Unnur Ösp er nú í fyrsta sinn á
leikferlinum fastráðin við leikhús
og segir mikið öryggi fylgja því.
Hún sinnir þó ýmsum störfum
samhliða leikstarfinu og er nú að
skrifa sitt fyrsta handrit að sjón-
varpsþáttum með vinkonu sinni
og samstarfskonu, Nínu Dögg
Filippusdóttur. Þættirnir munu
fjalla um kvenfanga og líf þeirra
innan fangelsisveggja. „Við erum
búnar að vinna að þessu í tölu-
verðan tíma, það er algjör tilvilj-
un að Elsku barn skuli fjalla um
það sama og þessi skrif okkar.
Við urðum skelfdar af þeirri stað-
reynd að mæður ungra barna sitja
sumar í fangelsi. Aðstæður þeirra
og brostnar vonir urðu okkur inn-
blástur í að skrifa seríu sem okkur
finnst skipta máli í samfélagsum-
ræðunni. Eins er kvikmyndagerð
mikill strákabransi og stundum
lítið um bitastæð kvenhlutverk
og okkur langaði að skrifa handrit
sem inniheldur fullt af athyglis-
verðum kvenhlutverkum og hafa
þannig bókstafleg áhrif á fram-
boðið,“ útskýrir hún.
Jón Páll Eyjólfsson leikstýrði
Unni Ösp í Elsku barni og til
stendur að hún taki að sér annað
hlutverk í nýju verki í hans leik-
stjórn. Verkið nefnist Eldhaf og
er eftir Wajdi Mouawad og verð-
ur sett upp í Borgarleikhúsinu á
ERFITT AÐ TÚLKA SORG OG MI
Það eru ekki allir sem þurfa að venj-
ast því að lesa um það í blöðunum
hvernig þeir standa sig í vinnunni.
Í hópi þeirra bestu Unnur Ösp
Stefánsdóttir hlaut Grímuverð-
launin fyrir leik sinn í verkinu Elsku
barn og er þar með komin í hóp
með bestu leikkonum landsins.
ir,
d-
Sumar útsalan
er hafin
30 - 70%
afsláttur